Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 22.10.2002, Side 43

Tímarit Máls og menningar - 22.10.2002, Side 43
bls. 43 ókunnugt fólk sem maður hittir á vettvangi glæps saman við gamla vini og kunningja má skilja fólkið betur og þannig um leið glæpinn. Það er með slíkum samanburði sem ungfrú Marple ræður morðgátuna í The Mirror Crack’d (1962). Persónuleiki morðingjans er þó ekki lykillinn að svarinu í það sinn heldur þvert á móti persónuleiki fórnarlambsins. Ungfrú Marple er svo heppin að hitta fórnarlambið, Heather Badcock, skömmu áður en hún er myrt og frú Badcock minnir hana ákaft á vin- konu hennar, Alison Wilde. En henni lýsir ung- frú Marple svo: Alison always saw her own point of view so clearly that she didn’t always see how things might appear to, or affect, other people. (21) (Alison sá hlutina alltaf svo skýrt frá eigin sjónarhorni að hún sá stundum ekki hvernig hlutirnir gætu horft við öðrum.) 7 Þó að frú Badcock sé vænsta kona er hún hættulega sjálfhverf. Þar sem það hvarflar aldrei að henni að horfa á atburði frá sjónar- horni annarra er hún berskjölduð. Þegar frú Badcock er myrt kappkostar morð- inginn að leiða athyglina frá henni og það geng- ur vel þar sem fæstir átta sig á mikilvægi skap- gerðar hennar. Ýmis málsatvik virðast benda til að ætlunin hafi ekki verið að myrða hana og hver ætti líka að vilja myrða góðgjarna og lítils- verða húsmóður í smáþorpi? Fræg kvikmynda- stjarna er flutt í sveitina, verið er að taka kvik- mynd og fólkið sem vinnur við hana fer að týna tölunni. Allt þetta virðist mun áhugaverðara og hættulegra en frú Badcock. En það er einmitt frú Badcock sem reynist mikilvægasta persón- an í þessum harmleik. Frú Badcock mætir kát og glöð og ónæm á náungann í boð til kvik- myndaleikkonunnar Marinu Gregg og fer að segja henni langa sögu um hvernig hún hafi fyr- ir langa löngu farið á skemmtun hjá frægu kon- unni. Hún hafi fengið rauða hunda en ekki látið það stoppa sig heldur farðað sig. Frú Badcock gleymir alveg að rauðir hundar eru mjög smit- andi og hefur líka alveg gleymt því að þungað- ar konur mega ekki smitast af þeim. En Marina Gregg hafði einmitt verið ólétt af barninu sem hún hafði þráð allt sitt líf þegar hún hitti frú Badcock í fyrra skiptið. Barnið hafði fæðst van- gefið og leikkonan fengið taugaáfall. Fram að því að hún hittir frú Badcock aftur vissi hún ekki hver hafði smitað hana. Frú Badcock segir þannig annarri konu skemmtisögu um eigin seiglu en fyrir þeirri konu er sagan harmleikur og það sem meira er: Þessi ókunnuga kona er komin í heimsókn til þess að státa sig af því að hafa eyðilagt líf hennar: It’s a thing she has boasted of all through her life. Heather Badcock meant no harm. She never did mean harm but there is no doubt that people like Heather Badcock (and my old friend Alison Wilde), are capable of doing a lot of harm because they lack – not kindness, they have kindness – but any real consideration for the way their actions may affect other people. She thought always of dómum. Þessi lítt menntaða eiginkona frægs læknis er almennt talin heimsk, stendur sig illa í hvers konar leikjum sem krefjast hugsunar og er þar að auki sú eina sem ekki veit að maður hennar heldur framhjá henni. Þetta ger- ir það að verkum að ýmsar persónur sögunnar – en þó fyrst og fremst lesendur – reikna ekki með að hún hafi framið vel skipulagt morð. Hún reynist þó býsna klók og hefur framið morðið en ekki á þann hátt sem fyrst leit út fyrir. Eða eins og hún orðar það sjálf: „But then I’m not really as stupid as people think! If you’re very slow and just stare, people think you don’t take things in – and sometimes, underneath, you’re laughing at them!“ (181) (En ég er nú heldur ekki alveg eins heimsk og fólk heldur. Ef maður er bara sljór og starir heldur fólk að maður skilji ekkert – og stundum, undir niðri, hlær maður að því). 6 Það er Hercule Poirot sem glímir við einfalda en skýra hugsun frú Christow. Þar af leiðandi kemur aldrei í ljós hvort frú Christow hefði minnt ungfrú Marple á eiginkonu bakarans eða smiðsins í þorpinu heima. Bæði lesendur og persónur sagna Agöthu Christie hafa hleg- ið mikið að því hvernig ungfrú Marple skilur kjarna allra glæpamanna með því að bera aðal- persónur fléttunnar saman við þorpara í St. Mary Mead. Aðferðin sýnir þó grundvallaratriði í hugmyndum Agöthu Christie: Lausn glæps- ins felst í að skilja fólkið sem kemur við sögu. Og fólk líkist hvert öðru. Með því að bera Ekkert dulargervi, – engin málning, – ekkert falskt skegg. Persónuleiki! Ég brá honum á mig eins og hanzka. Þegar ég afklæddist honum, þá varð ég ég sjálfur, hljóður, lítt áberandi, rétt eins og hver annar. 42 Agatha Christie 17.10.2002 11:06 Page 43

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.