Félagsbréf - 01.07.1962, Qupperneq 15

Félagsbréf - 01.07.1962, Qupperneq 15
FÉLAGSBRÉF 11 En það lá í augum uppi, að þótt hin rígbundna einokun hefði verið afnumin — eins og jafnvel síðar, eftir að verzlunin var gefin alveg frjáls að lögum, — var veldi hinna dönsku selstöðukaupmanna eitt af því, sem stóð efnalegri viðreisn þjóðarinnar mest fyrir þrifum. Verzlunin var bæði vond, og allur arður af henni var fluttur úr landinu. Árið 1703 voru íslendingar 50 þúsundir. Á átjándu öldinni fækkaði þeim ýmist langt niður fyrir þá tölu, allt niður í hér um bil 34 þúsundir, eða fjölgaði aftur, þegar svíaði til. Eftir móðu- harðindin og fleira, sem þá dundi yfir, var tala landsmanna árið 1787 undir 39 þúsundum. Nú var Bjarni Thorsteinsson fæddur 1781 og í Skaftafellssýslu, sem liarðast var leikin. Sumar þær liörm- ungar máttu vera honum í barnsminni og frásagnir af þeim öllum mjög hugstæðar. Var ekki eðlilegt að álykta af sögu átjándu aldar, að hvenær sem mannfjöldinn næði 50 þúsundum gæti verið vá fyrir dyrum, hvað þá ef hann yrði meiri en þær 54 þúsundir, sem nú voru í landinu? Til hvers var að fjölga fólkinu úr hófi fram, ef afleiðingin yrði því meiri mannfellir þess á inilli? Loks leynir það sér ekki, að Bjarni amtmaður og fleiri mætir samtíðarmenn hans voru ekki einungis vantrúaðir á afkomuskil- yrði íslendinga, heldur á þjóðina sjálfa. Þótt svo ætti að heita, að fólk væri nú hætt að falla af hor og harðrétti, eimdi margvíslega eftir af áhrifum hallæranna á heilsufar og táp, dugnað og framtaks- serni, enda svalt fólkið enn oft og einatt hálfu hungri. Hætt var við, að ónytjungum og alls konar vanmetalýð mundi fjölga rneir að tiltölu en hinum, sem vildu bjarga sér og gátu bjargað sér. Einstaka „yngri mönnum fannst amtmaður of bölsýnn í riti sínu, einkum á framtíð fiskveiðanna, sem gætu orðið öruggari og arð- vænlegri, ef þiljubátar kæmu í stað opinna báta. En reynslan sýndi, að gagngerðar breytingar á útgerðinni áttu langt í land. íslendinga skorti bæði fé til þess að afla sér betri skipa og kunnáttu að far'a með þau, og þeir voru fortryggnir á allar nýjungar. Svo aðdáanleg sem framsókn þjóðarinnar var að sumu leyti á nítjándu öldinni, kom árangurinn fyrir efnahag hennar og lífs- kjör raunalega hægt og seint. Öldin var oft og einatt hörð, þótt með rninni ósköpum væri en hin átjánda. Það fór líka svo, að hin öra mannfjölgun, sem Bjarni Thorsteinsson óttaðist, hélt ekki
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Félagsbréf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.