Félagsbréf - 01.07.1962, Page 24

Félagsbréf - 01.07.1962, Page 24
20 FÉLAGSBRÉF sem voru þó ætlaðar til lestrar almenningi á íslandi, sýna trú hans á þetta fólk, sem kynni að skilja ástæður, meta röksemdir, og ekki þyrfti né sæmdi að æsa upp eins og múg með því að höfða til lægri hvata þess og tilfinninga. Meira traust og kurteisi, meiri virðingu hefur enginn stjórnmálaforingi sýnt því fólki, sem hann var að laða til fylgis við málstað sinn. Það er líka eitt sérkenni íslenzkrar sjálfstæðisbaráttu, að þar er allt frá upphafi hugsað um sem rýmstan kosningarétt, jafnframt meira þjóðfrelsi. A Islandi lá það í augum uppi, hver fjarstæða var að miða þann rétt við álnir og aura. VII. Benedikt Sveinbjarnarson Gröndal segir í Dægradvöl með sínu hispurslausa orðalagi: „Þá (það er um miðja nítjándu öld) voru allir framfaramenn skoðaðir hér sem hálfvitlausir." Eg lief reynt að benda á, að hugdjörfustu menn þessa tímabils hafi séð sumt betur en aðrir samtíðarmenn þeirra sáu. En samt var sízt að undra, þótt mörgum heilvita mönnum ofbyði, hversu hátt þeir stefndu og stórt þá dreymdi. Furðulegast er í rauninni, að brattgengustu mönnunum skyldi alltaf á endanum verða bezt til fylgis meðal bænda og búaliðs. Einu sinni heyrði ég íslenzkan stjórnmálamann segja við er- lendan ráðherra, sem þótti hann vera nokkuð óbilgjarn: „Það er nú svona fyrir okkur íslendingum. Við getum ekki að því gert, að okkur finnst við alltaf vera stórveldi!“ Mér er þetta minnis- stætt af einni ástæðu. Þessi ágæti landi minn sagði það brosandi, eins og hvert annað gamansamt öfugmæli. En um leið fann ég greinilega, að einmitt svona hugsaði hann sjálfur í lijarta sínu, hvað sem heilinn möglaði. Það má kalla þetta nærsýni, þröngsýni, vanmetakennd á villu- stigum, heimsku og öðrum illum nöfnum. Líka má leita að ein- stöku öðrum sálfræðilegum skýringum. Okkur finnst við ósjálf- rátt stærri, af því að við byggjum þetta víða og tignarlega land. Við erum miklu fleiri en við sýnumst, af því að lifandi svipir þúsund ára sögu byggja landið með okkur. Víkingarnir, sem kusu sér og námu hér bólstaði, voru sambornir bræður þeirra manna, sem unnu Normandí, síðan Bretland, meitluðu loks svip sinn í ásýnd heims-

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.