Félagsbréf - 01.07.1962, Síða 31

Félagsbréf - 01.07.1962, Síða 31
FÉLAGSBRÉF 27 aðarritum Dýravinurinn og Nýjar kvöldvökur. Og loks nefna nokkrir til af þeim fáu bókum, sem ætlaðar voru börnum, Smásögur Péturs biskups, Hróa hött, ævintýri Andersens, Gúlliver í Putalandi og Róbinson Krúsó, allir þekkja Bernsku Sigurbjarnar Sveins- sonar. ... Þetta verður engan veginn talið óheppilegt val lestrarefnis handa börnum og unglingum, þótt málfarið sé raunar miður vandað á hinum þýddu sögum, sem Jóhann Jóhannesson gaf út. Auk hins heillandi og framandlega ævintýrablæs á sögum Vernes og Hagg- ards, lipurrar frásagnar og mikils ímyndunarafls hafa þær þann kost, að yfir þeim er hressilegur andi mann- dóms og framaþrár — og þær ýta undir ungan lesanda um að afla sér fróðleiks um umheiminn og undur mannlegrar hugvitssemi. 3. Þeirri oftast óbeinu, en mjög áhrifa- ríku menningarlegu handleiðslu, sem börnin nutu mjög víða í sveitum lands- ins og á þeim heimilum við sjávarsíð- una, sem höfðu aðstöðu til svipaðra menningarhátta, er nú ekki lengur til að dreifa. Þá er og þorri íslenzkra harna nútímans ekki í neitt svipuðum tengslum við atvinnulíf og lífsharáttu þjóðarinnar og hörnin voru yfirleitt fvrir hálfri öld, og með ári hverju fjölgar þeim hörnum og unglingum, sem fara á mis við hin ótrúlega ríku og frjóu uppeldisáhrif, sem náin kynni af náttúru landsins, gróðrarríki þess, af lífi villtra fugla og af íslenzkum hús- dýrum, veittu áður miklum meirihluta hinnar uppvaxandi kynslóðar. — í bæjum og þorpum njóta börnin ekki heldur þess samneytis við fullorðið fólk, sem áður hafði veigamikið gildi fyrir mótun barnanna hér áður á árum. Hjúum er þar ekki til að dreifa, og afar og ömmur eru nú yfirleitt ekki „í horninu“ hjá börnum og tengda- hörnum, heldur húa út af fyrir sig í eigin íbúðum, stundum mjög einmana, eða eru á elliheimilum. Áður en skóla- ganga barnanna hefst, læra þau nú málið einkum af eldn systkinum og leikfélögum, og ég hef aftur og aftur tekið eftir því, að foreldrarnir hirða lítt um að leiðrétta málfar barna — og um greinarmun góðs og ills gildir nú aðallega boð og bann — þú átt og þú mátt ekki — og þá aðallega frá hendi móðurinnar, en ekki lengur fortölur aldraðs vinar eða afa og ömmu, studd- ar sögulegum dæmum úr ævintýrum og sögum eða úr lífi sögumannsins sjálfs. Þegar svo litið er til þeirrar stað- reyndar, sem Hannes Þorsteinsson tel- ur afdráttarlausa og fram kemur í þeim orðum hans, sem ég hef kynnt lesendum þessarar greinar, og raunar ætti að vera auðskilin, mætti það vera öllum ljóst, hversu mikið er undir því komið, að börnin lesi eitthvað fleira en kennslubækurnar, sem þau verða því miður flest leið á og telja hálf-

x

Félagsbréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.