Félagsbréf - 01.07.1962, Page 33
FÉLAGSBRÉF
29
allur sem smekklegastur. Þá er og það,
að þar til valdir menn veita beztu bók-
unum meðmæli, sem bæði almennings-
bókasöín og foreldrar hafa hliðsjón af,
þegar valdar eru bækur. Einnig veita
menntamálaráðuneyti sumra landa ár-
leg verðlaun þeim höfundum, sem
taldir eru hafa skrifað beztu barna- eða
unglingabækur ársins, og merkir bóka-
útgefendur hafa tekið upp sama hátt.
Loks er þess að geta, að í flestum menn-
ingarlöndum eru' gefnir út ódýrir
bókaflokkar, sem í eru bækur, er lík-
legt þykir að henti börnum og ungl-
ingum, þótt ekki hafi þær verið skrif-
aðar með tilliti til neins sérstaks ald-
ursflokks.
1 þessum löndum er menningarleg-
um leiðtogum — víðsýnum bókaútgef-
endum ekki síður en öðrum — það
mjög ljóst, hve mikilvægt er, að hörn
og unglingar lesi ekki fyrst og fremst
einhvern óhroða. Þeir gera sér grein
fyrir því, sem Hannes Þorsteinsson
vitnar um ærið eftirminnilega, og er-
lendur menningarleiðtogi og sérfræð-
ingur um barna- og unglingabækur
orðar þannig:
„Áhrif þess, sem menn lesa í bernsku,
verða aldrei afmáð. Með því er lagður
grundvöllur að bókmenntasmekk full-
orðna mannsins. Þess vegna eru svik
við bókmenntir barna og unglinga svik
við menninguna. Frekar nú en nokkru
sinni áður ríður okkur á, að þær bók-
menntir eigi sér bæði bókmenntalegt
gildi og siðferðilega reisn — eða að
minnsta kosti uppeldislegan tilgang.“
Hér á landi ríkir hins vegar algert
tómlœti í þessum ejnum. Menningar-
legum lei&togum vir'Sist flestum þykja
þa'S neSan viS virSingu sína aS geja
gaum aS þeirn bókmenntum, sem œtlaS-
ar eru börnum og unglingum, já, sumir
menntamenn hnussa viS, ef minnzt er
á slíkar bœkur.
Sannarlega mundi hér þörf úrbóta.
Almenna bókafélagið á að láta sig
skipta, hvað börnum og unglingum er
boðið til lestrar. Því hefur nú vaxið
svo fiskur um hrygg, að það hefur
getu og aðstöðu til þess. Og sem betur
fer hefur vaknað hjá ráðamönnum
þess áhugi á því, að það láti þessi mál
til sín taka. Ef vel tekst til, gætu af-
skipti þess markað merkileg tímamót
á þessum vettvangi.