Félagsbréf - 01.07.1962, Síða 54

Félagsbréf - 01.07.1962, Síða 54
50 F É L A G S B R É F litssýning stóð yfir á vcrkum Léger í Loúvre. Hann var sterkur persónuleiki, ég minnist sérstaklega þessara vélrænu mynda, ef svo má að orði komast. — En Módernistasafnið? — Þar voru fáar myndir eftir hvern, fimm lil sex myndir eftir jjessa stóru málara: Matisse, Picasso, Cézanne. Eg held, að abstraktlistin hafi náð liæst hjá Kandinsky og Mondrian. Herbin er ákallega fínn málari. Ég er líka hrifinn af Klee, það er maður, sem einmitt var í mjög nánum tengslum við náttúr- una. Hann hefur nálgazt hið abstrakta í mörgum myndum, svo að nærri má telja hann til brautryðjendanna. Ég minnist Magnelli, Manessier, Vasarely og Deyrolle, sérstaklega Soulage. Ég sá fallega sýningu með Bissiere í París. Eg var mjög hrifinn af Juan Gris, Picasso og Braque. Einar talar um Cézanne: — Cézanne er hinn mikli brautryðj- andi. Ef maður ber seinustu myndir hans saman við samtímamálara eins og Degas, Pissaro og fleiri, þá sker hann sig úr. Það má nú segja, að Van Gogh og Gauguin hafi skorið sig úr, en ein- hvern veginn finnst mér speglast í sein- uslu myndum Cézanne jjetta kúbiska form, sem varð lil á eftir. Það er um merkilega jjróun að ræða hjá Cézanne. Ef fyrstu myndir hans eru bornar saman við jiær síðustu finnst manni, J

x

Félagsbréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.