Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1877, Page 47
StjórnartíÖindi B 6.
41
1877
annan staö, er kemur til beiðni landsetans á Ilólmi, að liin árlega laudskuld af Hólmi
verði, meðan beiðandinn búi á jörðunni, ákveðin 4 vættir, eins og hann lieflr goldið
síðan Vilborgarkot byggðist.
Út af þessu skal til þóknanlegrar leiðbeiningar, birtingar og annarar ráðstafanar
þjónustusamlega tjáð, að eptir því sem fram liofir farið í þessu máli þykir rjettast, að
leggja svo fyrir hlutaðeigandi umboðsmann, að vilji ábúandinn á Vilborgarkoti eigi kann-
ast við eignarrjett umboðsins að þeim hluta jarðarinnar, er mældur er úr Hólmslandi, og
greiða eptir hann landskuld, eptir því sem nákvæmar verður til tekið, skuli hann höfða
mál gegn honurn til þess að sleppa jarðarpartinum, og skal í þessu efni cigi látið ógetið
þess, að eigi virðist loku skotið fyrir slíka málssókn með tjeðum yfirrjettardómi, þótt hon-
um sje eigi áfrýjað, því hann snertir að eins lúkningu ógreiddrar landsskuldar, en verður
eigi álitinn hafa í sjer geymda fullnaðar-úrlausn ágreiningsins um eignarrjett að jarðar-
partinum. Að því er snertir landskuldina af Hólmi, leyfir ráðgjafinn, að hana megi greiða
með 4 vættum fyrst um sinn, þangað til fengin cru fullnaðar-úrslit á umgetnu ágrein-
ingsatriði.
— lirjef ráðgjafans fyrir ísland tíl hmdahöfðingja um ckkju-framfœrslu
skyldu embættismanns. — Eptir að send hafði verið fjárhagsráðgjafa ríkisins
beiðni hjeraðslæknisins í 1. læknishjeraði, Jónasar Jónassonar, um, að lögboðinni ekkjufram-
fœrslu þeirri, er keypt hafði verið handa konu hans, yrði breytt í lífsábyrgð, og var beiðni
þessi send hingað með þóknanlegu brjefi yðar, licrra landshöfðingi, frá 12. oktbr. f. á., hefir
tjeður ráðgjafi skýrt frá, að þar sem liann liafi, þrátt fyrir ósk þá, er Jónas hafði látið í
ljósi á eyðublaði undir ekkjuframfœrsluskýrslu, um að fullnœgja ekkjuframfœrsluskyldu
sinni með lífsábyrgð, samt orðið að kaupa lífsfje sem lögboðna ekkjuframfœrslu handa
konu hans, er nemi 380 krónum, og hafi lífsfjárstofnunin gefið út innritunarskírteini fyrir
því, ltr. D. D. N. 12580, er hann (fjárhagsráðgjafinn) varðveiti í bráð, — þá standi svo á
því, að 22. gr. laganna frá 18. júní 18701 um lífsábyrgðar og framfœrzlustofnunina frá
1871 því að eins heimilar embættismanni undanþágu frá hinni skilyrðislausu skylduhans
til að sjá konunni fyrir lífsfje eptir sinn dag, samkvæmt lögum frá 15. janúar 1851, sbr.
opið brjef 31. maí 18552, að liann kaupi lífsábyrgð, og gegni hinum almennu skilyrðum
þeim, er þar fyrir cru sett. En nú var það, að þá er Jónas sendi ekkjuframfœrsluskýrslu
sína og ljet þar í Ijósi að liann ætlaöi sjer að kaupa lífsábyrgð, hafði hánn ekki sannað,
að hann væri farinn að eiga nokkuð við stofnunina í þá átt, að fullnœgja tjeðum skil-
yrðum, og það var því alveg óvíst þá, hvort af því mundi verða, cn hitt var víst, að
langt yrði að bíða þess, að hin fyrirhugaða lífsábyrgð yrði keypt, ef þess yrði þá auðið
með öllu. Fyrir þessa sök var fjárhagsráðgjafanum eigi heimilt þá að leysa Jónas hjer-
aðslækni undan því, að sjá konu sinni fyrir lífsfje eptir sinn dag, og hlaut liann því, ept-
ir rcglum þeim, sem um það eru settar, að lilutast til um, að slík lífsfjárvon yrði keypt
sem fyrst. Samt muni ekkert því til fyrirstöðu, að lífsfjárvonarkaupin verði látin sem ó-
gjörö, þá er Jónas hjeraðslæknir er búinn að kaupa ábyrgö á lífi sínu, og sjo ábyrgðarfjeð
15—25 fallt á við lífsfjárstyrkinn, 380 kr., og veröi hann að eiga um það beinlínis við
lífsábyrgðar- og framfœrslustofnunina frá 1871, og muni nú fjárhagsstjórnin undir eins
og hún fái vitneskju uin, að búið sje að kaupa slíka ábyrgð, liætta að greiða ái'gjaidið
1) Lög þessi fyrir Danraörk eru prentúöíhinu danska lagasafni Algrecns Ússings XV bls. 107 o.íí.
2) Sj'á, Tíö. um stjórnarm. I bls. 77.
Hinn 20. apríl 1877.
46
14. febr.
47
14. febr.