Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1877, Síða 138
1877
132
135 nokkurn þátt í slíkum glæp, sæta hcgningarvinnu, jafnvel æíilangt, cf mjög miklar
15. nóv. sakir cru.
11. grein.
Sje læknislijálp að fá, má hún ekki fást við neinar lækningatilraunir, hvorki við
konuna nje barnið, um fram það, sem til er tekið í yfirsetufrœðinni.
12. grein.
Sjo tilcfni til þess, ber henni að vara þungaðar konur giptar sem ógiptar við
öllum fóstureyðandi meðölum, og sje eigi látið að orðum liennar í því efni, ber henni að
tilkynna það yfirvaldinu.
13. grein.
Hafi hún fengið vitneskju um, að nokkur hafi borið út barn eða alið barn í duls-
máli, bcr henni þegar að skýra hlutaðeigandi lögreglustjóra frá því.
14. grein.
Skýrslu um andvanafœdd börn bor henni að gefa samkvæmt eyðublaði því, er
henni mun verða sent frá hlutaðeigandi hjeraðslækni.
15. grein.
J>egar nýfœtt barn er mjög veikt, skal hún minna foreldrana á, að láta skíra
það sem fyrst.
Verði ekki náð í prest og skorist faðir barnsins eða aðrir ráðsettir dánumenn, er
við eru staddir, undan að skíra barnið skemmri skírn, skal hún gjöra það sjálf, og gefa
presti skýrslu um það innan 4 daga.
1G. grcin.
Minnsta þóknun fyrir að sitja yfir konu skal vcra 3 kr., auk ókeypis fararboina.
I>urfi yfirsetukona að vera hjá sængurkonu lengur en 1 dag eða sem því svarar, ber lienni
1 kr. fyrir hvern dag sem fram yfir er, auk fœðis. Fyrir að setja stólpípu, taka blóð, o.
s. frv., bera henni 25 aurar í livort skipti. þiggi sængurkonan af svcit eða sje svo fá-
tœk, að hún geti ekki borgað yfirsetukonunni, or sveitin skjdd að greiða henni auk far-
arbeina 3 kr. þóknun.
17. grein.
I>að or skylda yfirsetukvenna að láta hver annari í tjo þá liðsemd og leiðbein-
ingu, er þær mega við koma, og varast allan ríg eða óvild, og allt er slíku má valda.
18. grein.
Eigi má yfirsetukona vinna mein vansköpuðum burði, er hún tekur við, hvcrsu
fjarri sem er rjettu sköpulagi, heldur skal hún kosta kapps ura að halda lífi í slíku af-
kvæmi, unz til læknis næst. Rita skal hún nákvæma skýrslu um vanskapnaðinn og
senda lækni.
19. grein.
Fái yíirsetukona grun um, að barni, sem fœðist andvana eða deyr skömmu eptir
fœðinguna, hafi verið fyrirfarið annaðhvort eptir fœðinguna eða með því, að móðirin lief-
ur tekið inn fóstureyðandi meðöl, áður en hún ól barnið, bor henni að senda sem fyrst
lögreglustjóra skýrslu um það, og skulu þar 1. tilgreind nöfn foreldranna og heimili,
2. skýrt frá, hvernig fœðingunni hafi verið háttað, og 3. hvað muni hafa valdið dauða
afkvæmisins, að því er yfirsetukonan kemst næst.
20. grein.
Áhöid þau, sem fylgja sýslu hennar, cr hún skyld að varðveita á sem beztan