Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1994, Síða 74

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1994, Síða 74
og alvöru. „Farsi gengur út á harmleikinn í lífi annarra," sagði hann. „Um leið og maður hlær að óförum náungans, verður maður að geta fundið til með honum." Eitt sinn sagði hann við vin sinn, rithöfundinn A. Kúprín: „I lífinu eru engar skýrar afleiðingar af neinu né ástæður fyrir neinu. Allt rennur saman: hið litla og hið stóra, hið merkilega og ómerkilega, hið sorglega og hið broslega." (Sjá S. Laffitte: Chekhov 1860-1904, London 1974, bls. 16.) Tsjekhov sameinar því hér bæði harmleik og gamanleik og segja má að þessi „tragíkomedía hvers- dagslífsins" gangi síðan eins og rauður þráður í gegnum leikrit hans. Aðalmunurinn er helst sá að í försunum er spaugilegu atviki gefinn sorglegur undirtónn, en í seinni leikritum hans og þá fyrst og fremst Mávinum og Kirsuberjagarðinum, sem hann kallaði reyndar gaman- leiki, er harmleikurinn aftur á móti litaður af því skoplega. Næsta leikrit Tsjekhovs í fullri lengd var Skógarpúkinn sem hann samdi árið 1889. Um það leyti var hann undir miklum áhrifum frá Tol- stoj og kenningum hans um siðferðislegar skyldur manna. Því er óvenjumikill siðaboðskapur í leikritinu. Það var frumsýnt í desember sama ár en sú sýning þótti gjörsamlega misheppnuð. Viðtökur leikrits- ins höfðu mikil áhrif á Tsjekhov og að eigin sögn kom hann ekki nálægt leikritaskrifum í sjö ár. Seinna tók hann reyndar til við að breyta Skógarpúkanum og úr varð leikritið Vanja frændi, sem er laust við allan predikunartón. V. Eftir ósigur Skógarpúkans gerði Tsjekhov hlé á leikritun í mörg ár. Eins og fyrr segir flutti hann frá Moskvu í sveitina og sneri sér um tíma al- farið að því að semja smásögur. í Melíkhovo hafði hann allt sem hann þarfnaðist og þar vaknaði um síðir aftur hjá honum löngun til að fást við leikritagerð. Sú löngun hafði líklega blundað með honum öll þessi ár og í friðsælu umhverfi sveitarinnar tók hann til við að semja nýtt leikrit, Mávinn. Bréfaskriftir hans frá þessum mánuðum lýsa því hve erfiðlega honum gekk að ljúka við leikritið. Ný og ný gerð sá dagsins Ijós en að lokum sendi hann það frá sér sumarið 1896. Fyrst þurfti hann að fá samþykki hins opinbera ritskoðanda. Leikritinu var hleypt í gegn en athugasemd var gerð við samtal Soríns og Konstantíns um samband Arkadínu, móður Konstantíns, og rithöfundarins Trígoríns, sem þótti B I A R T U R O G F R U E M I L I A 72
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.