Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1994, Qupperneq 81

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1994, Qupperneq 81
ekki saman, eða þá að ást einstakra persóna er ekki endurgoldin. I Mávinum er Konstantín ástfanginn af Nínu, sem er ástfangin af Trígor- ín. Medvedenko er ástfanginn af Möshu, sem er ástfangin af Konstantín og þar fram eftir götunum. Yfir leikritunum er svipaður andblær og oft er fjallað um þau í sam- einingu, en þó er hvert þeirra sérstakt á sinn hátt. I Mávinum er til að > mynda fjallað um listir; í Vanja frænda um fræðimennsku og vísindi; í Þremur systrum og Kirsuberjagarðinum um garnla samfélagið sem er að líða undir lok og það nýja sem er í mótun. Leikrit Tsjekhovs gerast í Rússlandi undir lok nítjándu aldarinnar en þau hafa til að bera það sem nauðsynlegt er til að mögulegt sé að njóta þeirra alls staðar og á öllum tímum. I leikritum sínum fjallar hann um gleðina og sorgina og hæfileika mannsins til að gera lífið einhvers virði. Hjá Tsjekhov eru engar eiginlegar hetjur. Þegar maður les bestu smásögur Tsjekhovs eða horfir á velheppnaða sýningu á leikriti eftir hann, er eins og maður hafi komist að sannleikanum um eitthvað, eins og að Tsjekhov hafi tekist að lýsa því sem máli skiptir á hlutlægan en mannlegan hátt. Þegar öllu er á botninn hvolft er einfaldlega eitthvað gott og satt í verkum hans. VIII. Á Vesturlöndum hefur ríkt ákveðin hefð í uppfærslum á leikritum Tsjekhovs. Þær hafa oftast einkennst af svartsýni og angurværð og hef- ur grunntónninn verið alvarlegur. I Sovétríkjunum var aftur á móti meiri áhersla lögð á bjartsýni, jákvætt gildi vinnunnar og glæsta fram- tíðarsýn. Undanfarið hefur áherslan aftur breyst. Nú um stundir eru uppfærslur á leikritum Tsjekhovs gjarnan dálítið farsakenndar, bæði í austri og vestri, og leikritin eru túlkuð meira í ætt við gamanleiki. Raunin er sú að þau bjóða upp á margvíslega túlkun. I þeim er að finna bæði alvöru og kírnni og það er leikstjórans að leita eftir réttum strengj- um til að leika á hverju sinni. Tímarit um bókmenntir og leiklist 79
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.