Frón - 01.06.1944, Síða 31

Frón - 01.06.1944, Síða 31
Að yrkja á íslenzku 93 íslenzkum skáldum en annars staðar að þau telji sér heimilt að taka óþyrmilega á málinu og beita það gjörræði. íslenzkar orðabækur neyðast til að taka upp ýms orðatiltæki sem myndazt hafa í eitt skipti hjá einhverju skáldi í parraki ríms og stuðla, en aldrei verið til hvorki fyrr né síðar. Maður eins og Stephan G. Stephansson hefur haft að heiman mjög gott og upphaflegt málfar, svo sem vænta mátti af átthögum hans og kynslóð, en í kvæðum hans kveður allt of mikið að ýmiss konar tilbúningi og teygingum. Og þegar höfuðskáld eins og Einar Benediktsson segir þátts, hátts og mátts fyrir þáttar, háttar, máttar (í kvæðinu Kórmakur), af því að kveðandi heimtar einkvæðar myndir, ellegar bjóu fyrir bjuggu (Langspilið), af því að ríms er þörf við dóu, þá sé ég ekki að höfð verði vægari orð en að hér sé farið langt út fyrir takmörk hins leyfilega. Að sjálfsögðu hljóta ljóðasmiðir að veita orðum og hljómum meiri athygli en aðrir menn, og skal nú vikið lítið eitt að því efni, þó að erfitt sé viðfangs af því að smekkur manna hlítir engum algildum reglum. Jafnframt því sem íslenzk skáld hafa allt síðan í fornöld verið vandfýsin á nákvæma samhljóman í rími þar sem sliks var krafizt, hefur löngum þótt vel fara að breyta til þar sem þvi varð viðkomið. Snorri Sturluson lætur þess getið að fegra þyki að nota mismunandi sérhljóð í stuðlum. Eftir þeirri fornu reglu væru linurnar: Standið fjarri: allt er orðið hljótt, eilíft, heilagt, fast og kyrrt og rótt betur kveðnar en: yltburð sé eg anda mínum nær, aldir þó að liðnar séu tvær. Yfirleitt sómir oft vel að leita sem mestrar fjölbreytni í vali sérhljóða. Hljómurinn er meiri í þessum vísufjórðungi: Gnó'tra tekur Gjallarbrúin, gildir undir riða straumar, þar sem hver áherzlusamstafa hefur sitt hljóð, en í öðrum úr sama kvæði: Við ef mætti viðarrótum visnum hjálpa dögg af blóði, þar sem i er þrítekið. En þess er þó að gæta að oft getur skáldi þótt henta að klifa á einhverjum sérstökum hljómi. Hér má og geta þess að mál eins og íslenzka eða sænska eða ítalska, sem

x

Frón

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frón
https://timarit.is/publication/1208

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.