Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.11.2015, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.11. 2015
Ferðalög og flakk
Í þessum skrifuðum orðum er verið að breyta íbúð
sem Jimi Hendrix bjó í seint á sjöunda áratugnum í
Lundúnum í safn, gítargoðinu til dýrðar. Til stendur að
opna safnið almenningi 10. febrúar næstkomandi.
Íbúðin var raunar opin um skamma hríð fyrir fimm ár-
um í fjáröflunarskyni vegna verkefnisins. Segja má því
að safnið hafi að hluta borgað fyrir sig sjálft.
Íbúðin er á þriðju hæð í fjölbýlishúsi á 23 Brook
Street sem er í hjarta hins litríka West End-hverfis og
leigði Hendrix hana á árunum 1968 til 1969. Vel mun
hafa farið um kappann í íbúðinni og hermt að hann
hafi kallað hana sitt fyrsta alvöru heimili.
Safnið hefur nú verið innréttað í stíl sjöunda áratug-
arins og verður að finna ýmsa muni úr eigu Hendrix,
eins og hinn goðsagnakennda Epiphone-kassagítar.
Svo skemmtilega vill til að Hendrix-safnið er við
hliðina á öðru safni sem helgað er manni sem setti
ekki síður sterkan svip á tónlistarsöguna, barokktón-
skáldinu Georg Friedrich Händel, sem bjó og lést á 25
Brook Street á átjándu öld. Það safn hefur verið opið
frá árinu 2001.
Ef að líkum lætur eiga söfnin eftir að styðja vel við
hvort annað. Einhver til í að útsetja Messías fyrir raf-
magnsgítar? Nú eða Voodoo Chile fyrir sinfóníu-
hljómsveit?
SÖFN TILEINKUÐ MERKU FÓLKI
Í húsum
stór-
menna
FLESTIR HAFA YNDI AF ÞVÍ AÐ HEIM-
SÆKJA SÖFN SEM HELGUÐ ERU MINN-
INGU MERKILEGS FÓLKS, EKKI SÍST EF
SAFNIÐ ER TIL HÚSA ÞAR SEM VIÐKOM-
ANDI BJÓ Á EINHVERJU STIGI LÍFS SÍNS.
FÆDDIST ÞAR JAFNVEL EÐA DÓ. MIKIÐ
ER UM SÖFN AF ÞESSU TAGI UM HEIM
ALLAN SEM TILVALIÐ ER AÐ HEIMSÆKJA.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Flestir þekkja sögu gyðingastúlkunnar Önnu Frank
sem faldi sig ásamt fjölskyldu sinni og fjórum öðr-
um á heimili sínu í Amsterdam á tímum seinni
heimsstyrjaldarinnar. Anna lifði stríðið ekki af en
dagbækur hennar fundust og hlutu verðskuldaða
athygli.
Fjölskyldan faldi sig í leyniherbergjum á heimili
sínu í gömlu húsi við Prinsengracht 263 í hjarta
Amsterdam og allar götur frá árinu 1960 hefur
verið starfrækt þar safn, þar sem gestir geta kynnt
sér aðbúnaðinn. Safnið færði síðar út kvíarnar og
festi kaup á íbúðinni við hliðina. Auk þess að
minnast Önnu Frank og fjölskyldu hennar er safnið
helgað öllum þeim sem þurft hafa að líða mis-
munun og ofsóknir gegnum tíðina. Meðal muna í
safninu eru Óskarsverðlaunin sem Shelley Winters
fékk fyrir leik sinn í kvikmyndinni Dagbók Önnu
Frank árið 1959.
Önnu Frank-safnið nýtur mikillar hylli meðal
ferðamanna og á liðnu ári heimsóttu meira en 1,2
milljónir manna það. Aðeins tvö söfn í Hollandi,
Ríkissafnið og Van Gogh-safnið, laða að sér fleiri
gesti á hverju ári.
ÖNNU FRANK-
SAFNIÐ Í
AMSTERDAM
Ernest Hemingway Home & Museum kallast safn í Key
West á Flórída sem helgað er minningu Nóbelsskáldsins
vinsæla. Safnið er við 907 Whitehead Street, beint á móti
Key West-vitanum, í húsi sem Hemingway bjó í sjálfur á
árunum 1931 til 1939. Fékk það í brúðkaupsgjöf frá
frænda annarrar brúðar sinnar, Pauline.
Eftir andlát Hemingways 1961 seldi ekkja hans, Mary,
húsið og það var einmitt kaupandinn, Bernice Dickson,
sem setti safnið á laggirnar. Hemingway skrifaði margt í
húsinu, þar á meðal smásagnasafnið The Snows of Kilim-
anjaro.
Í húsinu er að finna ýmsa muni sem Hemingway átti
sjálfur, svo sem skrifborð hans og stóla en rithöfundurinn
hafði miklar mætur á spænskum húsgögnum frá sautjándu
og átjándu öld og safnaði þeim. Einnig er í safninu fjöldi
bóka sem Hemingway átti. Þá býr á lóðinni fjöldi katta
sem sumir eru sagðir beinir afkomendur kattarins Mjall-
hvítar sem Hemingway hélt sjálfur á sinni tíð en hann var
með afbrigðum kattelskur maður. Fyrir
fáeinum árum kærði gestur safnið fyrir
vanrækslu á köttunum og var því í kjöl-
farið gert að hugsa betur um þá.
Garðurinn við húsið er óvenju blóm-
legur. Fyrstu árin var hnefaleikahringur í
garðinum en Hemingway hafði mikið
yndi af íþróttinni og barðist sjálfur við
áhugaboxara. Síðar ákváðu hjónin að
byggja sér sundlaug sem þótt mikill munaður í Key West á
fjórða áratugnum. Pauline sá að mestu um framkvæmdina
meðan bóndi hennar reyndi borgarastríðið á Spáni á eigin
skinni. Þegar hann sneri heim segir sagan að honum hafi
blöskrað íburðurinn og sagt með þjósti við spúsu sína:
„Pauline, þú ert búin að eyða öllu nema mínu síðasta
penníi. Eins gott að þú fáir það líka.“ Hvort sem sagan er
sönn eður ei þá er penní grafið í steypu við norðurenda
laugarinnar.
HEMINGWAY-SAFNIÐ Á FLÓRÍDA
Ernest Hemingway
Rex Features/ Everett Collection
JIMI HENDRIX-SAFN-
IÐ Í LUNDÚNUM
Jimi Hendrix