Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.11.2015, Page 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.11.2015, Page 34
Appelsínuguli heilklæðnaðurinn í uppáhaldi SAMFÉLAGIÐ ER DUGLEGT AÐ SETJA OKKUR Í HÓLF Anna Gyða vel- ur föt oftast eftir líðan. ANNA GYÐA SIGURGÍSLADÓTTIR, FRAMKVÆMDASTÝRA HÆPSINS Á RÚV, LÖFRÆÐINEMI OG HEIMILDARMYNDAGERÐARKONA, ER MEÐ LITRÍKAN OG FJÖLBREYTTAN FATASTÍL. ANNA GYÐA SEGIR FATASTÍL SINN MISMUN- ANDI FRÁ DEGI TIL DAGS OG VELUR HÚN FÖT OFTAST EFTIR LÍÐAN. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is H vað hefurðu helst í huga þegar þú velur föt? Þægindi. Ég reyni að finna föt sem mér myndi hugsanlega líða vel að dansa í. Hreyfanleiki og þægileg efni skipta máli. Víðir Stevie Nicks- kjólar og hlýjar rúllukragapeysur úr góðum efnum. Jú og litir. Reyni að velja mér skemmtilega lituð föt sem gam- an er að setja saman á alls konar vegu. Hvernig myndir þú lýsa þínum fatastíl? Voðalega breytilegur. Fatavalið er mismunandi frá degi til dags þar sem ég vel föt oftast eftir líðan. Ef það er skortur á einhvers konar líðan þá ná föt stundum að hífa mig upp í þá líðan sem ég vil ná. Eins og ef ég vil meiri léttleika og „playfulness“ þá á ég einn barnalegan tjullpils-trúðakjól sem ég fer í – líð- ur strax eins og ég megi meira eða sé fær um meira í lífinu þegar ég er í honum. Það eru engar hömlur neins staðar í kringum mig. Ef ég er leið þá klæðist ég öllu appelsínugulu þar sem ég tengi appelsínugulan lit við eitthvað bjart, gott og fallegt. Hvaða þekkta andlit finnst þér með flottan stíl? Benazir Bhutto sem var fyrsti kvenforsætisráðherra í múslimsku landi. Hún virtist alltaf vera í mjög litríkum klæðum úr þægi- legum efnum. Dettur ekki í hug fleiri einstaklingar einmitt núna en mér finnst sjálfsöryggi í klæðaburði mest sexy. Ætlar þú að fá þér eitthvað fallegt fyrir veturinn? Ef ég hefði efni á því, myndi ég reyna að finna mér hinn fullkomna silki-kimonoslopp. Ég er mikið innidýr og þá sérstaklega á vet- urna. Þrennt sem ég þrái mest um þessar mundir: silki- lak, silkirúmföt og silkislopp. Ég sé fyrir mér að hann sé annaðhvort lillableikur eða drapplitaður. Síður en ekki of síður. Hlýr en ekki of hlýr. Ef þú fengir að eiga fataskáp þekkts einstaklings, hver myndi það vera og af hverju? Ætli það hefði ekki verið fataskápur Benazir Bhutto. Annars get ég ímyndað mér að Florence Welch eigi skemmtilegt fatasafn. Áttu þér einhvern uppáhaldsfatahönnuð? Nei, ég fylg- ist ekki mikið með tískustraumum. Áttu þér uppáhaldsflík eða fylgihlut? Appelsínuguli heilklæðnaðurinn minn sem ég safnaði mér saman á síð- Benazir Bhutto klæddist mjög litríkum klæðum úr þægilegum efnum. Morgunblaðið/Eva Björk Silkislá er á óskalista Önnu fyrir veturinn. asta ári. 2014 var „hellað“ ár í alla staði. Ég vaknaði einn daginn upp úr draumi þar sem ég sá allt appelsínugult og síðan mig klædda öllu appelsínugulu. Ég fann að þessi lit- ur myndi gera tilveruna betri og tók um leið meðvitaða ákvörðun um að breyta um ákveðna hugarstefnu. Ég hóf því ,,leitina að appelsínugula heilklæðnaðinum“. Fann mér skó, rúllukragapeysu, bol, gallabuxur og sokka. Til- veran varð betri. Hvaðan sækir þú innblástur? Örugglega bara úr lífinu öllu. Mér finnst lífið samsafn af minni tímabilum. Maður er alltaf að lesa eitthvað, horfa á eitthvað, lenda í hinni og þessari lífsreynslu sem mótar þessi minni tímabil sem hafa síð- an áhrif á hvernig ég haga mér og klæði mig. Ég nýt þess soldið að horfa á lífið í þessum minni tímabilum því þá er ég ekki föst á einum stað, en hins vegar að prófa alls konar milli himins og jarðar. Núna er ég t.d. í fyrsta sinn að upplifa ein- hvers konar skvísutímabil. Langar í akrýlneglur og contour- sett. Eftir ár verð ég örugglega á einhverju allt öðru tímabili. Svo var það líka fáránlega frelsandi þegar ég uppgötvaði að fataval mitt og útlit breytir því ekki hver ég er að innan. Sam- félagið er nefnilega soldið duglegt að setja okkur í hólf eftir fata- og almennu útlitsvali. Hvaða tískutímaritum/bloggum fylgistu með? Ég fylgist ekki með „official“ tískutímaritum eða bloggum en ég horfi á myndbönd á flestum VICE-síðum. Eins og t.d. Broadly sem er með alls konar femínísk stuttheimildarmyndbönd um hitt og þetta, viðtöl við skemmtilegar listakonur og brautryðjendur – mjög gaman að fylgjast með því. Það mætti mögulega færa rök fyrir því að þessi myndbönd falli eitthvað í kramið hjá mér, þar sem þetta er einn liður í þessu sýnilega umhverfi mínu sem hefur á endanum áhrif á fataval mitt og stíl. Hvert er þitt eftirlætistískutímabil og hvers vegna? Ég held ekki neitt. Brot og brot úr öllum tímabilum örugglega bara. Fallegu þægilegu náttúrulegu kjólarnir frá hippa- tímabilinu, leður og svart töffarastöff frá pönkinu, LITA- GLEÐI frá diskótímabilinu, hattar frá einhverju tímabili. Er eitthvert tímabil í gangi núna? Mér líður frekar vel ein- mitt núna hvað föt varðar svo kannski er eftirlætistísku- tímabilið mitt núna. Vice-síðan Broadly inniheldur femínísk stuttheimildarmyndbönd sem Anna sækir oft innblástur í. Florence Welch á senni- lega skemmti- legt fatasafn. Anna Gyða nýt- ur þess að klæð- ast hlýjum rúllu- kragapeysum úr góðum efnum. Tíska *Laugardaginn 7. nóvember verður fjörugur markaður íhúsnæði Tulipop á Fiskislóð 31 á milli klukkan 12 og 16.Verslanirnar Tulipop, As We Grow og barnaskóbúðinFló verða með fallegan varning á tilboði ásamt lagersöluá eldri vörum. Búast má við skemmtilegri stemningu enmeðal þess sem í boði verður eru piparkökur og léttarveitingar, andlitsmálning, Tulipop-litabækur, kennsla í fingraprjóni í boði As We Grow milli kl. 14:00 og 16:00 og veglegur vinningur fyrir einn heppinn gest. Pop-up markaður og lagersala með barnafötum

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.