Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.11.2015, Page 44
Körfubolti
44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.11. 2015
T
uttugu mánuðir eru síðan sextán
ára drengur frá Svartárkoti í
Bárðardal, Tryggvi Snær Hlina-
son, mætti í fyrsta sinn á körfu-
boltaæfingu. Framfarirnar síðan
eru stórfenglegar. Tryggvi er nú nýorðinn
átján og gerði á mánudaginn Íslandsmeist-
urum KR eftirminnilega skráveifu í bikarleik;
frábær frammistaða Tryggva dugði reyndar
ekki til sigurs, en Þórsarar frá Akureyri, sem
leika í neðri deild Íslandsmótsins, voru ótrú-
lega nálægt því að slá Vesturbæjarstórveldið
út úr bikarkeppninni. KR-ingar unnu með
þriggja stiga mun í íþróttahöllinni á Akureyri
þar sem Bárðdælingurinn ungi var stigahæst-
ur allra Íslendinga á vellinum; gerði 20 stig,
tók 14 fráköst og varði nokkur skot KR-inga,
m.a. frá Michael Craion, besta leikmanni
landsins.
Tryggvi tróð, sem kallað er, boltanum
nokkrum sinnum með miklum tilþrifum í
körfuna gegn KR; hoppaði upp með boltann í
höndunum og grýtti honum eins fast og hann
gat ofan í hringinn. Vakti það mikla hrifningu
viðstaddra, svo ekki sé meira sagt.
Eins og lesendur sjá á meðfylgjandi mynd-
um er Tryggvi engin smásmíði. Hann er 2,16
metrar á hæð í körfuboltaskóm en 2,14 m
skólaus. Opinbera körfuboltahæðin er venju-
lega sú, segir hann, þegar skósólinn er mæld-
ur með!
Og talandi um skó: Tryggvi notar númer
53. Slík farartæki liggja ekki á lager íslenskra
verslana þannig að Tryggvi þarf að panta
skóna sína frá Bandaríkjunum en fær stund-
um verslanir til að sjá um það fyrir sig.
Hef lært ótrúlega mikið
Svartárkot er innsti bær austan megin í
Bárðardal, „nálægt miðju Íslands“, segir
Tryggvi Snær og hlær í upphafi samtalsins
við Sunnudagsblað Morgunblaðsins.
„Ég hef alltaf verið í íþróttum, var í frjáls-
íþróttum og sundi, pínulítið í fótbolta og við
strákarnir í Stórutjarnaskóla lékum okkur
tvisvar í viku í körfubolta. Mér hefur alltaf
þótt það skemmtileg íþrótt.“
Tryggvi hóf nám í VMA haustið 2013.
Hann lýkur fljótlega námi í rafvirkjun, ætlar
síðan að útskrifast sem stúdent og stefnir að
því loknu á háskólanám í útlandinu og að
leika þar körfubolta samhliða.
„Mig langaði að byrja að æfa körfubolta
strax og ég fór í skólann, haustið 2013, en
fyrsta önnin fór í að rífa mig upp úr einkirn-
ingssótt svo ég gat ekki byrjað strax.“
Frændi Tryggva kannaðist við gamlan
körfuboltamann úr Þór og ræddi við hann um
drenginn. Sá hringdi þegar í stað í Bjarka
Ármann Oddsson, þjálfara hjá félaginu, sem
ekki var lengi að hafa samband við Tryggva.
Þar með hófst ævintýrið.
„Ég mætti á fyrstu æfinguna í janúar 2014
og æfði fyrst með strákum sem eru ári yngri
en ég, fæddir 1998, og áfram um sumarið.
Veturinn eftir var ég mest með þeim en að-
eins með meistaraflokki, spilaði lítið fyrst þar
en það jókst smám saman. Ég leit svo á að ég
væri bara að læra og það hefur gerst í nokkr-
um stökkum. Strax fyrsta veturinn lærði ég
helling, það sama má segja um tímann sem
ég æfði fyrst með U 18-landsliðinu, að ég tali
ekki um síðasta sumar, þegar ég var í úrtaks-
hópi A-landsliðsins fyrir Smáþjóðaleikana. Ég
get varla lýst því hve mikið ég lærði á nokkr-
um æfingum þar.
Og svo hef ég ekki lært neitt smá af Benna
síðustu mánuði!“ segir miðherjinn ungi og vís-
ar til Benedikts Guðmundssonar, þjálfarans
sigursæla sem Þórsarar réðu fyrir þetta
keppnistímabil.
Bárðdælingurinn hefur sem sagt bætt sig
mjög sem leikmaður á stuttum tíma. „Ég hef
fengið mjög mikla hjálp frá mörgum; allir
vilja aðstoða mig við að vinna upp árin sem
ég var ekki í körfubolta.“
Tróð yfir Ragga á landsliðsæfingu!
Tryggvi Snær segist frekar rólegur að eðl-
isfari og sjaldan stressaður. Hann hafi þó ver-
ið það fyrir fyrstu æfinguna með A-landsliðs-
hópnum. „En það var svo ekkert mál og eitt
það fyrsta sem ég gerði á æfingunni var að
troða yfir Ragga!“ segir hann og hlær. Raggi
er Ragnar Ágúst Nathanaelsson frá Selfossi,
nú leikmaður Þórs í Þorlákshöfn. Hann er
einnig miðherji og ögn stærri en Tryggvi
Snær! „Raggi er mjög hress, jákvæður og
skemmtilegur náungi og mikill liðsmaður.
Hann tók þessu vel – og tók í höndina mér!
En ég fann að þetta vakti mikla athygli í
hópnum enda örugglega það minnisstæðasta á
æfingunni.“
Að æfa með bestu leikmönnum landsins var
gríðarlega erfitt, segir Tryggvi. „Ég hélt ekk-
ert í við þessa karla. Ef gefin var smápása
hljóp ég að vatninu og reyndi svo að ná and-
anum almennilega. Það er algjört rugl hvað
þeir eru góðir og hraðinn mikill.“
Hann talar um lærdóm og nefnir alla þætti
íþróttarinnar, allt frá grundvallaratriðum eins
og að grípa boltann og skjóta upp í fínni til-
brigði tækni og leikskilnings. „Benni hefur
lagt mikla áherslu á liðsspilið; hvernig ég á að
hreyfa mig þegar þessi er með boltann eða
hinn. Það skiptir miklu máli að staðsetja sig
rétt miðað við aðstæður. Þetta er það sem ég
er aðallega að læra hjá Benna núna og finnst
það frábært.“
Hann segir „dásamlegt“ að hafa Benedikt
sem þjálfara. Hann sé mjög góður kennari og
„leggur mikið upp úr því að við lærum; að við
ölumst upp sem körfuboltamenn, ég, Raggi
[Ragnar Helgi Friðriksson] sem kom frá
Njarðvík og hinir ungu strákarnir“.
Leikurinn gegn KR í vikunni líður Tryggva
Snæ ekki úr minni á næstunni, enda stærsta
stundin á ferlinum til þessa. „[Michael] Cra-
ion er ekkert smá góður. Hann skoraði slatta
fyrst eftir að hann kom inn á en svo lærði ég
Meira fyrir
áskoranir en
fyrirmyndir
Tryggvi Snær reyndist KR-ingum óþægur ljár í þúfu þegar Þór tapaði naumlega fyrir Íslandsmeist-
urunum. Snorri Hrafnkelsson er t.d. ekki í öfundsverðu hlutverki í þessu tilfelli …
TRYGGVI SNÆR HLINASON NÆR LANGLEIÐINA UPP Á STJÖRNUHIMININN
MEÐ ÞVÍ AÐ TEYGJA SIG. HANN STEFNIR HÁTT; VILL VERÐA BESTI MIÐ-
HERJI ÍSLANDS OG TELUR MEIRI LÍKUR Á ÞVÍ AÐ STUNDA KÖRFUBOLTA
EINHVERS STAÐAR Í ÚTLANDINU NÆSTU ÁR EN VINNA VIÐ RAFVIRKJUN,
SEM HANN NEMUR NÚ Í VERKMENNTASKÓLANUM Á AKUREYRI.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is