Morgunblaðið - 07.01.2016, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 07.01.2016, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2016 Reykjavíkurvegi 64, Hfj, s. 555 1515, enjo.is • Tímasparnaður • Engin kemísk efni • Ódýrara • Umhverfisvænt • 6 x hreinna - betri þrif • Vinnuvistvænt • Minni vatnsnotkun Nýja ENJO vörulínan er komin á markað Ferskari, líflegri og enn meiri gæði Komið í verslun okkar og sjáið úrvalið Opið kl. 11-18 alla virka daga Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Á fiskmörkuðum voru á nýliðnu ári seld rúmlega 104 þúsund tonn og þar af fóru rúmlega 42 þúsund tonn af þorski í gegnum markaðina. Sölu- verðmæti þessa afla nam alls 27,4 milljörðum króna og er árið meðal þeirra stærstu hvort sem litið er á magn eða verðmæti. Heildarveltan í gegnum Reikni- stofu fiskmarkaða, RSF, var yfir 30 milljarðar í fyrra en þar eru 3 ½ stöðugildi. Alls eru fiskmarkaðirnir með 26 starfsstöðvar víða um land, sem seldu afla frá 57 höfnum í fyrra. Fiskmarkaður Suðurnesja og Fisk- markaður Íslands eru stærstu fyr- irtækin, en markaðirnir tengjast í gegnum RSF í eitt uppboðsnet. Eyjólfur Þór Guðlaugsson, fram- kvæmdastjóri Reiknistofunnar, seg- ir að magnið hafi aukist um 1,20% á milli ára, verðmætið hækkað um 1,65% í fyrra og meðalverðið um 0,44%. Á nýliðnu ári hafi meðalverð fyrir kíló af óslægðum þorski verið 297,95 krónur, 332,13 krónur fyrir slægðan og 305,87 kr. hafi að með- altali fengist fyrir kíló af óslægðri ýsu. Sveiflur eru í framboði á fiski á mörkuðum þar sem ótíð til sjávarins hefur mikil áhrif og sömuleiðis fjöldi hátíðisdaga. Þetta hefur eðlilega áhrif á verðið sem fæst fyrir aflann og þannig fór meðalverðið fyrir kíló af óslægðum þorski hæst í fyrra í um um 440 kr. einn daginn, en lægst varð dagsverðið um 200 krónur að meðaltali fyrir kíló af óslægðum þorski. „Þó svo að árið hafi verið með þeim stærri hjá okkur, erum við ekki alls kostar sáttir,“ segir Eyjólfur. „Kvóti hefur verið aukinn og hlut- fallslega höfum við misst þorsk, ýsu og ufsa út af mörkuðunum, þar sem viðskiptin eru gagnsæ. Á síðasta fiskveiðiári seldum við 16-17% af lönduðum þorski, en kvótaárið 2013/ 14 vorum við með 17% og 2012/13 með 18% af lönduðum þorski. Sam- drátturinn er svipaður í ýsu og ufsa.“ Stjórnvaldsaðgerðir og bein viðskipti Spurður um ástæður þessa segir Eyjólfur að margir sæki í bein við- skipti og svo hafi stjórnvaldsaðgerð- ir haft sín áhrif. Hann nefnir t.d. að ekki megi selja byggðakvóta á mörk- uðum og útgerð sem veiði byggða- kvóta verði að setja jafn mikið á móti af eigin kvóta í sömu fiskvinnslu. Þessi afli verði að fara til vinnslu á svæðinu, en hefði hugsanlega annars farið á markað. Sala á fiskmörkuðum Heimild: Reiknistofa fiskmarkaða hf. 19 92 19 93 19 94 19 95 19 96 19 97 19 98 19 99 20 00 20 01 20 02 20 03 20 04 20 05 20 06 20 07 20 08 20 09 20 10 20 11 20 12 20 13 TonnMilljónir 20 14 20 15 Verðmæti í milljónum kr. Magn (í tonnum) 120.000 100.000 80.000 60.000 40.000 20.000 0 30.000 25.000 20.000 15.000 10.000 5.000 0 Selt fyrir 27,4 milljarða á fiskmörkuðum í fyrra  Síðasta ár meðal þeirra stærstu  Hafa misst hlutdeild í þorski, ýsu og ufsa  Litlar verðbreytingar á milli ára Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Algengt hefur verið að undanförnu að bílasalar kaupi notuð ökutæki frá útlöndum, tveggja til fimm ára gamla bíla, til þess að mæta þörf markaðar- ins. Lítið framboð er á bílum af ár- gerðunum 2009 til 2012, enda var bílainnflutningur í lágmarki fyrstu þrjú til fjögur árin eftir hrunið, segir Marinó Björnsson, bílasali hjá MB- bílum við Klettsháls í Reykjavík. Fyrstu misserin eftir að bankarnir féllu haustið 2008 voru það helst bíla- leigurnar sem keyptu nýja bíla. Þær áttu þá stundum í sex mánuði í sam- ræmi við tollareglur sem þá giltu. Innflutningur var þá langt undir því sem venjan væri í meðalári. „Þegar fólk leitar eftir góðum, notuðum fárra ára gömlum bílum eru þeir ekki alltaf auðfengnir. Því hafa menn reynt að bregðast við með innflutn- ingi, til dæmis frá Póllandi, Belgíu og Þýskalandi,“ segir Marinó og bætir við að bílasala hjá sér á nýju ári fari vel af stað. Ágæt kaup í bíleigubílum „Í þessari fyrstu viku ársins höfum við þegar selt fimm bíla og það lofar góðu. Í fyrra fóru hér í gegn um 470 bílar og það var um 35% aukning borið saman við 2014 sem var fyrsta starfsárið hér,“ segir Marinó. „Árið 2014 flutti ég inn um það bil 30 not- aða Hyundai-bíla frá Danmörku og tek sennilega annan skammt í ár. Síðustu misserin hefur innflutningur á nýjum bílum raunar verið það sem taldist getur eðlilegt ástand. Smátt og smátt myndast jafnvægi,“ segir Marinó. Bætir við að alltaf sé eftir- spurn eftir tveggja til þriggja ára gömlum bílum sem þá eru tiltölulega lítið eknir og kosta kannski þrjár til fjórar milljónir króna. Og það eru einmitt slíkir bílar sem hafa í nokkr- um mæli verið fluttir inn og ekki hef- ur veitt af. Kaupgeta almennings er meiri „Fyrstu misserin eftir hrunið hafði fólk almennt lítið svigrúm til bíla- kaupa. Af því leiddi að umboð og inn- flytjendur fóru sér hægt og innflutn- ingurinn var mjög lítill. Bílaleigurnar voru í raun einu aðil- arnir sem keyptu nýja bíla á þeim tíma. Ef bílarnir voru seldir aftur innan sex mánaða gátu leigurnar af- skrifað vörugjöld. Regla þessi, sem gilti í nokkur misseri, hélt bílamark- aðnum eiginlega gangandi. Nú hefur þessi frestur verið lengdur í fimmtán mánuði og oft má gera ágæt kaup í bílaleigubílum sem notaðir hafa verið tvö sumur. Við finnum líka að kaup- geta almennings er orðin verulega meiri en var til skamms tíma,“ segir Marinó sem starfað hefur við bíla- sölu í áratugi Innflutningur notaðra bíla hefur færst stórlega í vöxt  Bílasalar bregðast við ládeyðu á markaði sem var fyrst eftir efnahagshrunið Nýskráningar fólks- bifreiða frá 2011-2015* * Heimild: Samgöngustofa Notaðir Nýjir 2011 357 5.045 2012 443 7.886 2013 777 7.243 2014 943 9.471 2015 1.175 14.004 Morgunblaðið/Eggert Notaðir Alltaf er eftirspurn eftir nýlegum bílum sem eru tiltölulega lítið eknir og kosta ekki mikið í samanburði við þá sem eru nýir úr kassanum. Um leið og sala á einka- bílum, nýjum sem not- uðum, eykst eru sömu- leiðis aukin umsvif í sölu á atvinnubíl- um, til dæm- is sendi- ferðabílum og skutlum af ýmsum stærðum og gerðum. Sá markaður fór al- gjörlega í baklás á sínum tíma og var lengi. Nú rofar heldur betur til. „Þessi markaður tók alveg kipp þegar karlinn með ham- arinn fór aftur á stjá, en svo kalla ég iðnaðarmennina sem þurfa trausta bíla í útgerð sína. Þegar ekkert var að gera hjá til dæmis smiðum, pípurum, rafvirkjum og öðrum slíkum var sala á þessum bílum í algjöru frosti en nú er hún lífleg, sem helst í hendur við að nú er mikið að gera í bygging- ariðnaði við allskonar fram- kvæmdir. Áður freistuðust fyr- irtækjaeigendur til að keyra sendibílana sína út og urðu raun- ar að fresta endurnýjun þar til betur áraði og nú er sá tími runn- inn upp eins og allir sjá,“ segir Marinó að síðustu. Iðnaðarmenn aftur á stjá SALA ATVINNUBÍLA EYKST Marinó Björnsson Gengið verður úr skugga um það á næstunni hversu mikið af síld er í Kolgrafafirði. Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri nytjasviðs Hafrannsókna- stofnunar, segir að það komi ekki á óvart að vart hafi orðið síldar í firð- inum undanfarið. Þar geti verið nokk- ur þúsund tonn, en hann segist telja óhugsandi að mikið magn sé á ferð- inni. Fregnir hafa borist af miklu og fjölbreyttu fuglalífi innan við brú í firðinum undanfarið, en Þorsteinn hefur eftir heimildamönnum sínum vestra að á því sé verulegur daga- munur. Veturinn 2012-13 er talið að um 50 þúsund tonn af síld hafi drepist í Kolgrafafirði í tveimur umhverfis- slysum, en stór hluti stofns íslensku sumargotssíldarinnar hafði þar vet- ursetu. Síldar- dauðinn er rakinn til súrefnisskorts, sem varð í sjónum í logni og köldu veðri. Undanfarið hafa sambæri- legar aðstæður ekki skapast því blásið hefur flesta daga. Smásíld mældist í litlum mæli í síldarleiðangri í Breiðafirði í október, en stærri síldar í veiðanlegu magni hefur hins vegar ekki orðið vart þar í vetur. Stóru uppsjávarskipin hafa einkum verið að veiðum í Jökuldýpi og Kollugrunni í haust og vetur. Í vikubyrjun fékkst ágætur afli djúpt vestur af Faxaflóa. aij@mbl.is Ekki líklegt að mikið sé af síld í Kolgrafafirði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.