Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2016, Blaðsíða 2
Allir með!
...eða ekki
Nú á dögum er vinsælt að tala um val. Við höfum víst alltaf val um hittog þetta. Val um viðhorf til lífsins, val um það hvort glasið er hálftómteða hálffullt og annað í þeim dúr.
En svo kemur stundum að því að við stöndum frammi fyrir einhverju sem við
höfum ekkert val um. Við höfum til dæmis ekki val um það hvort við skiptum
við banka eða ekki. Við getum reyndar valið okkur banka, og höfum þar úr heil-
um þremur að velja, en launin okkar skulu leggjast inn á banka og um það höf-
um við ekkert val.
Við höfum heldur ekki val um það
hvort bankinn okkar greiðir topp-
unum tugi milljóna í bónusgreiðslur.
En við getum látið í okkur heyra og
sagt, eins og ég ætla að segja hér:
þetta er bara ekki í lagi.
Þarf eitthvað að segja meira? Það
er bara ekki í lagi að fjármála-
forkólfar dragi fé út úr bönkunum til
að nota í bónusgreiðslur toppanna
ofan á himinhá laun. Það er engin
ástæða til að flækja það eða orða á
einhvern mildari hátt. En við skulum
þó ekki efast um að á næstu vikum og
mánuðum munum við sjá blaðagreinar og viðtöl þar sem talað er um að svona
sé þetta nú „erlendis“, eins og það eigi að útskýra málið. Og svo eru notuð löng
og flókin fjármálaorð til að við missum áhugann á lestrinum og förum að hugsa
um eitthvað annað.
Þá verðum við að muna að við megum nota okkar eigin orð, líka um fjármála-
kerfið. Orðfærið þarf ekki að vera flúrað og þarf ekki að koma innan úr kerfinu.
Það má bara alveg segja það og skrifa að það er ekkert eðlilegt við það að
margmilljóna króna mánaðarlaun í fjármálakerfinu séu bara einhvers konar
„lágmarkslaun“ sem topparnir fái fyrir að vinna bara vinnuna sína og klúðra
ekkert mjög miklu. Síðan fái þeir tugmilljónir ofan á ef þeir nái að vinna vinn-
una sína aðeins betur. Þetta er ekki í lagi og við höfum val um að finnast þetta
ekki vera í lagi.
„Skelli mér í bankann, enga bakþanka. Nú verð ég með og ég ætla
að taka allan pakkann,“ söng Steindi Jr. í Skaupinu í laginu Allir
með.
En það þurfa ekki allir að vera með. Við höfum val um það hvort
við erum með í að byggja hér upp fjármálakerfi með sama hugsanahætti
og fyrir hrun eða hvort við hlustum á viðvörunarbjöllurnar sem óma í höfðum
okkar margra núna við fréttir af bankabónusum og tugmilljarðahagnaði og
hljóma einfaldlega svona: bíddu, vorum við ekki búin að ræða þetta?
’Við höfum ekki valum það hvort bankinnokkar greiðir toppunumtugi milljóna í
bónusgreiðslur.
Pistill
Eyrún
Magnúsdóttir
eyrun@mbl.is
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Hvernig ganga sýningar á Pílu pínu?
Ljómandi vel, þakka þér fyrir!
Geturðu lýst sýningunni í tveimur
setningum?
Falleg hjartnæm saga sem á erindi til okkar og vekur
spurningar. Og mikil skemmtun.
Hverju geta áhorfendur búist við?
Það sem er skemmtilegt er þessi ævintýrasaga Pílu
pínu. Hún lendir í alls konar ævintýrum og hittir fyrir
bæði menn og mýs og lendir í háska. Leikmyndin er að
hluta til teiknimynd þannig þú dettur inn í æv-
intýraheim. Þú finnur til og hlærð og grætur og allt
þar á milli.
Hvað getur litla hagamúsin Píla pína
kennt okkur?
Hún getur kennt okkur að gefast ekki upp. Að leita að
draumum okkar og láta þá verða að veruleika. Hún
getur kennt okkur að það geta allir „flogið“, líka
pínulitlar mýs með stórt hjarta.
Hvað er skemmtilegast við að leika/
syngja í þessum fjölskyldusöngleik?
Ég er svo heppin að fá að syngja það lag sem flestir
þekkja, Harmljóð Gínu mömmu. Það er svo fallega
samið af Heiðdísi Norðfjörð og Ragnhildi Gísladótt-
ur. Hljómagangurinn í laginu snertir einhverja
strengi í mér. Það er voða gaman að syngja það. Mað-
ur finnur alltaf hvað salurinn er þakklátur. Annars er
bara allt skemmtilegt við Pílu pínu, þetta er sýning
sem er skemmtileg að sýna.
Áttu eitthvað sameiginlegt með þessari
músamömmu?
Já já og nei nei. Við erum mjög líkar að einhverju leyti og
ólíkar að öðru. Við elskum börnin okkar rosalega mikið
báðar tvær.
Endar sagan vel?
Má svara því?
„Þú hlærð
og grætur
og allt þar
á milli“
ÞÓRUNN LÁRUSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.2. 2016
Ritstjórn
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Kristín Hlöðversdóttir
Mér finnst það svolítið skrítið en
ég er ekki alveg nógu mikið inni í
þessu.
SPURNING
DAGSINS
Hvað
finnst þér
um að
bankarnir
séu að taka
upp bónus-
greiðslur
að nýju?
Daníel Kristinn Hilmarsson
Ég er ekki búinn að kynna mér
þetta nógu vel en mér finnst það
hljóma mjög illa.
Einar Gunnarsson
Mér finnst ekkert óeðlilegt að einka-
reknir bankar verðlauni starfsmenn
með bónusum.
Henný Bjarnadóttir
Eins út í hött eins og margt annað í
þessu blessaða landi.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Yaniv Cohen í Osló.
Þórunn Lárusdóttir leikur og syngur um þessar mundir í fjöl-
skyldusöngleiknum Pílu pínu sem sýndur er í Hofi á Akureyri.
Þórunn er í hlutverki Gínu, móður Pílu pínu. Sýningin er fyrir
alla aldurshópa. Hægt er að nálgast miða á www.tix.is.