Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2016, Page 51
28.2. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51
Það koma þrjár bækur upp sem
mig langar til að lesa. Fyrsta er
Spámennirnir í Botnleysufirði eftir
Kim Leine. Ég kynntist Kim þegar
hann kom á Bókmenntahátíð í
Reykjavík 2013 og mér
fannst mjög áhugavert
að spjalla við hann um
það hve sjálfs-
ævisöguleg bókin er
þar sem hann fléttar
saman dvöl sinni þar og lífinu á
Grænlandi. Svo tengist hún líka
áhuga mínum á að komast til Græn-
lands, það er eina landið á Norð-
urlöndum sem ég á eftir að koma
til.
Svo kynntist ég hér
úti í Berlín ljóðskáldinu
Ann Cotten, sem er
austurrísk og býr nú í
Berlín. Ég fór og
heyrði hana lesa eða
flytja hálfgerðan fyrirlestur í safni
hér í Berlín og varð fyrir mikilli
hugljómun. Hún gaf
mér bókina I, Coleop-
tile sem er ljóðasafn
hennar í enskum þýð-
ingum og ég hlakka til
að lesa það.
Á náttborðinu er ég
svo með nýútkomna
bók, Uns yfir lýkur eftir Alina Mar-
golis-Edelman, sögu stúlku sem var
í gettóinu í Varsjá, og komst af. Ég
tók hana með mér út, fékk hana
lánaða hjá félaga mínum, enda er
stemmningin í Þýskalandi dálítið
sérstök núna þó maður finni ekki
beint agressjón í loftinu
Haraldur
Jónsson
Pierre Lemaître byggir
upp traust lesandans og
misnotar það svo og
leikur sér svo að því að
gera það aftur.
Ljósmynd/Thierry Rajic / Figure
BÓKSALA 17.-23. FEBRÚAR
Listinn er tekinn saman af Eymundsson.
1 Meira blóðJo Nesbø
2 Enginn venjulegur lesandiAlan Bennett
3 UndirgefniMichel Houellebecq
4 Mamma klikkGunnar Helgason
5 Tvöfalt glerHalldóra Thoroddsen
6 Þrjár sekúndurRoslund og Hellström
7 Þegar siðmenningin fórfjandans til
Gunnar Þór Bjarnason
8 ÖrlagaþættirSverrir Kristjánsson
9 Sagas Of The IcelandersÝmsir höfundar
10 Iceland Small World - lítilSigurgeir Sigurjónsson
1 Meira blóðJo Nesbø
2 Enginn venjulegur lesandiAlan Bennett
3 UndirgefniMichel Houellebecq
4 Tvöfalt glerHalldóra Thoroddsen
5 Þrjár sekúndurRoslund og Hellström
6 ÖrlagaþættirSverrir Kristjánsson
7 Fimmta árstíðinMons Kallentoft
8 Konan í blokkinniJónína Leósdóttir
9 SogiðYrsa Sigurðardóttir
10 SnjóblindaRagnar Jónasson
Allar bækur
Íslenskar kiljur
MIG LANGAR AÐ LESA
Hér til hliðar segir frá Umberto
Eco sem lést 19. september sl. en
sama dag lést vestur í Bandaríkj-
unum, í smábæ í Alabama, banda-
ríski rithöfundurinn Harper Lee,
89 ára að aldri.
Ólíkt Umberto Eco, sem var
áberandi þátttakandi í menningar-
umræðu í heimalandi sínu og
heimshornaflakkari, þá dró Lee sig
út úr sviðsljósinu skömmu eftir að
bók hennar To Kill a Mockingbird
kom út og lauk ekki við annað verk
eftir það.
To Kill a Mockingbird er iðulega
nefnd sem ein helsta skáldsaga
bandarískrar bókmenntasögu og
hefur selst í ríflega fjörutíu millj-
ónum eintaka um heim allan, auk-
inheldur sem vinsæl kvikmynd var
gerð eftir bókinni með Gregory
Peck í aðalhlutverki.
Á síðasta ári kom úr skáldsagan
Go Set a Watchman sem kynnt var
sem „framhald“ af To Kill a Mock-
ingbird, en var í raun fyrsta upp-
kast þeirrar bókar sem Lee endur-
skrifaði.
Harper Lee hlaut „frelsisorðu“ Bandaríkjanna á sínum tíma.
AFP
Harper Lee látin
MERKISKONA
Fæst í apótekum | Celsus ehf. | www.celsus.is
Sorbact - Græn sáralækning
Klíniskar rannsóknir sýna
bata á sveppasýkingu*
hjá yfir 85% þátttakenda
*candida albicans
Fyrir tilstilli vatnsfælni bindast allir helstu sárasýklar og
sveppir við umbúðirnar. Sýklarnir verða óvirkir og hætta
að fjölga sér, án sýkla- eða sveppadrepandi efna. Virkar
á VRE og MOSA sárasýkla. Skaðar ekki nýjar frumur.
Ótakmörkuð notkun. Engar aukaverkanir. Ekkert ofnæmi.
Sveppasýkingar
- í húðfellingum -
Einföld og áhrifarík, húðvæn meðferð
Þægilegur grisjuborði, passar í nára, undir brjóst
og magafellingar. Engin krem eða duft.