Náttúrufræðingurinn - 2013, Blaðsíða 10
Náttúrufræðingurinn
10
á hæð. En Víti, sem Noll lýsir líka, er
einmitt austan megin við Leirhnjúks-
sléttuna en Hvannstóðið vestan meg-
in. Hugmyndin um Kröfluöskj una
var ekki sett fram fyrr en 1972, en
hafði blundað með Kristjáni og Karli
Grönvold.3
Dimmuborgir urðu til þegar
Laxár hraun yngra rann út í mun
stærra Mývatn í eldgosi fyrir meira
en 2.000 árum. Þetta eru töluvert
ólík ar hraunborgir. Dimmuborgir
eru völundarhús þar sem hægt er
að villast og týnast. Fjærlægð er
milli miklúðlegra og hárra drang-
anna, stein tröllanna, sem hafa haft
tíma til að veðrast og landið á milli
þeirra að gróa. Þeir eru miklu hærri
en borgirnar í Hvannstóðinu allt
að 20 m að hæð. Yfirborðið er allt,
sér stak lega ofan til, miklu hrjúfara.
Sá Guðmundur Finnbogason andlit
trölla og forynja í hverjum kletti, er
hann var þar á ferð sumarið 1942.
Stóðst hann ekki mátið en stökk
upp á klett og hóf ræðu með þessum
orðum: „Háttvirtu sam land ar álfar
tröll og aðrir bergbúar.“ Hann kynnti
svo næsta sumar Þorstein Jósepsson
ljósmyndara og blaðamann fyrir
þessum sam lönd um okkar og
myndaði hann vanga svip þeirra.8
Í Hvannstóði liggja hraunborg-
irnar þétt saman. Þar er engin hætta
á að villast eða lenda í tröllahöndum.
Hraun, sem rann þangað inn, komst
ekki í burt aðeins niður í skálarnar
sem það fyllti þó ekki.
Helgi Hallgrímsson flokkaði
Hvann stóð með merkustu minjum
í Mývatnssveit þ.e. í flokki 1.11
Á Nátt úruverndarkorti Mývatns-
sveit ar er Hvannstóð talið í flokki
merk ustu náttúruminja.12 Hvann-
stóð nýtur sérstakrar verndar eins
og önn ur eldhraun samkvæmt lög-
um nr. 44/1999. Lög nr. 36/1974
um friðland sem samsvaraði Skútu-
staða hreppi voru leyst af hólmi með
nýjum lögum um friðun Laxár og
Mývatns nr. 97/2004. Þau lög ná
aðeins til næsta nágrennis vatnsins
og árinnar.
Kristján Sæmundsson segir:
„Dimmuborgir eru n.k. hraunbóla
í Laxárhrauni yngra, hlaðin upp úr
þunnum hraunskánum. Hraun ból an
er næstum hringlaga um 2 km í
þvermál.“ … „Miðsvæðis í bólunni
hefur verið hrauntjörn og runnið
þunnar hraunskvettur út til hlið-
anna. Þannig hefur bólan smám
sam an byggst upp. Aðfærslan að
henni hefur verið niðri í hrauninu
ofan frá Þrengslaborgum. Þar hefur
komið að hrauntjörnin brast fram
(um Borgarás). Hemað hefur yfir
hana og sjást hraunskarir innanvert
í tjarnarstæðinu og á gas- eða gufu-
strompum þar sem pústað hefur
upp úr hrauntjörninni. Neðan við
hraunskarirnar sjást klóruför þar
sem hraunstorkan hefur strokist
14. mynd. Gildar súlur halda uppi hraunþaki í syðri skálinni.
Borgirnar í nyðri skálinni sjást fyrir miðri mynd. Árið 1981 rann
hraun þar á milli. Ljósm./Photo: Sigmunda Hannesdóttir, 1978.
16. mynd. Jón Jónsson jarðfræðingur (3.10.1910–29.10.2005) í Skælingum. Ljósm./
Photo: Bergþóra Sigurðardóttir, 1996.
15. mynd. Mjúkar línur í hörðu efni. Hraðkælt hraun í nyðri skálinni.
Ljósm./Photo: Sigmunda Hannesdóttir, 1978.