Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2013, Blaðsíða 67

Náttúrufræðingurinn - 2013, Blaðsíða 67
67 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags að meta hlutfalls lega stærð 2005 og 2006 árganganna árin 2007 til 2009 áður en beinar mælingar á varpárangri hófust 2007 með holumyndavélum. Lundinn verpir í holur og eru holurnar flokkaðar eftir því hvort þær eru í ábúð eða ekki. Ábúðar- hlutfall rannsóknahola (hlutfall hola í ábúð) var kannað frá og með 2007 með holumyndavélum (Sea Snake frá Ridgid og Peep-a- roo frá Sandpipertech Inc.) þar sem linsan ásamt innrauðu ljósi er á enda barka sem þræddur er inn í holurnar. Árið 2007 var ábúðarhlutfall athugað á þremur stöðum í Stórhöfða, á Heima ey og í Elliðaey. Síðan var bætt við rannsóknaholum í Álsey, tveimur rannsóknasvæðum á Heima ey og holum fjölgað í Elliðaey (3. mynd). Þó var hvorki farið út í Álsey og Elliðaey sumarið 2011 né Álsey 2012. Heildarholufjöldi í öll um Vestmannaeyjum er talinn vera um 1.120 þúsund.26 Stærð varp- stofns lunda hverju sinni er metin sem margfeldi ábúðarhlutfalls og heildarholufjölda og varpárangur byggir á afdrifum eggja og unga í varpholum. Þess skal getið að áður útgefnar tölur um varpárangur 2007–2009 (17–19% unga/egg)28 eru hér endurskoðaðar. Breyttar aðferðir leiða til þess að nýtt mat á varp árangri er hærra en áður var talið. Viðkoma er skilgreind sem hlutfall á milli fjölda pysja sem komst á legg og heildarfjölda varp- hola í eyjunum. Frá árinu 1971 og fram til dagsins í dag eru til upplýsingar um fjölda pysja sem fundist hafa í Vestmanna- eyjabæ, sem gefur vísbendingar um ungaframleiðslu í Vestmannaeyjum. Upplýsingarnar koma úr þremur áttum. Í fyrstu hélt Sigurgeir Sig- urðs son bókhald um pysjur sem hann merkti á árunum 1971–1993 og árið 1991 hófu feðgarnir Óskar J. Sigurðsson og Pálmi F. Óskarsson merkingar á pysjum. Í þriðja lagi byrjaði Þekkingarsetur Vestmanna- eyja í samvinnu við Fiska- og nátt- úru gripasafn Vestmannaeyja vökt un árið 2003 sem heitir Pysju eftirlitið, en þar er safnað gögnum um fjölda pysja sem finnast á Heima ey (www. lundi.is). Fjöldi pysja sem komist hefur á legg á hverju ári undanfarin ár var áætlaður og voru kvörðuð saman þau þrjú gagnasöfn sem hand bær eru þegar þau skarast í tíma. Notað var tímabilið 1991– 1993 fyrir gögn Sigurgeirs annars vegar og Óskars og Pálma hins vegar. Til að bakreikna veiði Óskars og Pálma þarf að margfalda gögn Sigurgeirs með stuðlinum 1,471 en til að framreikna veiði Sigurgeirs frá 1994 var margfaldað með 0,679. Að lok um voru gögn úr Pysjueftirlitinu (PE) bakreiknuð með því að nota að hvarfsjöfnu sem lýsir tengslum milli þeirra og pysjufjölda Óskars og Pálma 2003–2007 (PE = 235 + 1,726X, R2 = 0,50, P < 0,01). 3. mynd. Fjögur svæði þar sem sandsíli er rannsakað (stöðvar sjást sem dökkir punktar í skyggðu flötunum); 1. Breiðafjörður, 2. Faxaflói, 3. Vestmannaeyjar austur að Vík í Mýrdal og 4. Ingólfshöfði. Stækkaða myndin sýnir Heimaey, sem er stærst Vestmannaeyja, og aðrar eyjar þar sem fylgst var með varpi lunda. – A map of west and south Iceland showing the four main areas monitored for sandeel (individual stations are shown as dots within the shaded areas), 1. Breiðafjörður, 2. Faxaflói, 3. Vestmannaeyjar islands east to Vík in Mýr- dalur and 4. Ingólfshöfði. The insert shows Heimaey, the largest island in the Vestmannaeyjar archipelago, and a couple of other islands used for monitoring puffins. 1. tafla. Umfang gagnaöflunar vegna lundarannsókna 2007– 2012. Fjöldi varphola, fjöldi unga og eggja auk fjölda veiddra og aldursgreindara fugla. – An overview of data collected on Atlantic puffins 2007–2012. Number of breeding burrows, number of eggs and chicks, and number of birds harvested and aged. 1 Rannsóknaholum í Álsey og Elliðaey sleppt. 2 Vantar hluta veiði í Heimaey. 3 Veiðitími styttur úr 45 í 30 daga. 4 Veiðitími styttur í fimm daga. 5 Lundaveiði bönnuð (veitt og sleppt). – 1 Breeding burrows on the islands Álsey and Elliðaey omitted. 2 A proportion of the catch on the island of Heimaey missing. 3 Hunting season for puffins reduced from 45 to 30 days. 4 Hunting season further reduced to five days. 5 Hunting for puffins banned (catch and release only). 2007 2008 2009 2010 2011 2012 Varpholur þar sem ábúð var könnuð – Breeding burrows checked 139 334 258 258 125 1 196 Vaktað egg og/eða ungi – Eggs and/or chicks monitored 77 202 136 192 29 100 Veiddir fuglar – Birds harvested 31.521 2 15.438 3 5.286 3 122 4 90 5 0 5 Aldursgreiningar – Birds aged 3.493 6.510 2.615 59 90 0
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.