Náttúrufræðingurinn - 2013, Blaðsíða 74
Náttúrufræðingurinn
74
Við upphaf rannsóknanna sum-
ar ið 2006 var aldurssamsetning
sand síla við Vestmannaeyjar svipuð
og á þremur öðrum svæðum við
landið (3. og 13. mynd). Mest var
af tveggja ára gömlu sandsíli en
aftur á móti var minna af eldra síli
við eyja rnar en annars staðar (13.
mynd). Við Vestmannaeyjar og Vík
fundust þó einungis 20 síli og voru
tíu þeirra tveggja ára, fjögur voru
eins árs og þrjú voru seiði frá vorinu
2006. Sum ar ið 2007 voru þriggja og
fjögurra ára sandsíli mest áberandi
ásamt seiðum annars staðar en í
grennd við Vestmannaeyjar fundust
einungis 22 fiskar og voru flestir
þriggja og fjögurra ára. Sumarið
2008 var aldursdreifing sandsíla
frá brugðin hinum árunum þar sem
eins árs gömul sandsíli voru algeng-
ust á öllum svæðum. Árgangurinn
frá 2007 var ríkjandi við landið árin
2008 til 2011. Helstu frávikin frá
því voru árin 2009 og 2010 þegar
talsvert fannst af seiðum á öðrum
svæðum en við Vest mannaeyjar en
þessi seiði skil uðu sér reyndar ekki
sem ný lið un árin á eftir. Sumarið
2012 einkenndist af því að fimm ára
gömlum sand sílum af 2007 árgang-
inum fór fækk andi og hlutfallslega
mikið fékkst af seiðum (13. mynd).
Fjöldi sandsíla á flatarmálseiningu,
sem gefur vísbendingar um breyt-
ingar í þéttleika, var mismunandi
á milli ára, bæði á milli svæða og
innan þeirra. Við Ingólfshöfða hefur
þéttleiki minnkað stöðugt frá því að
rannsóknirnar hófust. Árin 2006 og
2007 var nánast algjör ördeyða við
Vestmannaeyjar en þéttleiki sandsíla
jókst síðan til 2009 en hefur síðan
minnkað aftur til fyrra horfs. Þétt-
leiki hefur verið lítill á Breiðafirði
öll árin en var þó mestur sumarið
2007. Í Faxaflóa var þéttleiki mestur
árin 2006 og 2008 en lítill árið 2007.
Sumar ið 2011 var þéttleiki sandsíla
lægstur á öllum svæðum frá því
athuganir hófust og árið 2012 var
svipað að undanskildum Faxaflóa
þar sem þéttleiki var talsvert mikill
(14. mynd).
Hlutfall ýsumaga sem innihalda
sandsíli að haustlagi hefur farið
lækkandi frá árinu 1999 og hefur
verið í lágmarki frá árinu 2004, að
undanskildu árinu 2007 (15. mynd).
Umræður
Gögn um aldur veiddra lunda í
Vestmannaeyjum sýna að á síðustu
öld hefur um helmingur af lunda-
veiðinni verið fuglar á aldrinum
tveggja til þriggja ára. Þessir fuglar
eru ekki byrjaðir að verpa, og eru
því geldfuglar. Aðrir veiddir fuglar
eru fjögurra ára og eldri en talið er
að flestir fjögurra ára lundar séu
geldfuglar en flestir fimm ára og
eldri séu varpfuglar.30 Aldurshlutfall
fugla í veiðinni sumarið 2007 leiddi
í ljós að fjöldi tveggja ára fugla var
14. mynd. Vísitala á þéttleika sandsíla sem fjöldi á flatareiningu samkvæmt veiði í
plóg skipt eftir árum og rannsóknasvæðum. – An index of sandeel density as no. per m2
according to catch statistics from dredges by years and areas.
15. mynd. Hlutfall ýsumaga sem innihéldu sandsíli í rannsóknaleiðöngrum Hafrann-
sókna stofnunar á árunum 1998–2012. Gögn frá þeim fjórum svæðum þar sem sandsíli
hefur verið rannsakað eru sameinuð og heildarfjöldi maga hvert ár gefinn. Sýnd eru 95%
öryggismörk hlutfalla. – The proportion (with 95% CI) of haddock Melanogrammus
aeglefinus stomachs containing sandeel during autumn surveys in 1998–2012 of the
Marine Research Institute. Data from four sandeel research areas are combined, with
sample size (total no. of stomachs) shown at respective data points.