Náttúrufræðingurinn - 2013, Blaðsíða 43
43
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
á endum út frá rannsókna bátnum
Sæmundi fróða. Kafarar syntu síðan
eftir sniðunum og töldu krabba á
meters bili sitt hvoru megin við
spottann og tíndu í neta poka alla þá
krabba sem þeir náðu. Krabbarnir
voru síðan kyngreindir og lengdar-
mældir um borð í Sæmundi fróða.
Hvalfjörður í júlí 2011
Tveir kafarar mátu þéttleika krabba
á fyrirfram ákveðnum sniðum á
svæði M2 norðan Hvammsvíkur
(4. mynd A). Byrjað var á að telja
krabba á tveimur 50 m löngum
snið um. Þegar í ljós kom hversu
hratt talningin gekk, og einnig
sökum þess að ekki fundust krabbar
á fyrstu sniðunum, voru síðustu
þrjú sniðin lengd í 100 m. Samhliða
sniðtalningum kafaranna voru
gildru veiðar stundaðar til saman-
burðar. Fjórir gildrustrengir voru
lagðir á sömu snið og kafað var eftir,
ferhyrndar Carapax og litlar kón-
ískar gildrur voru lagðar til skiptis
á strengina. Beitt var með þorski
og ufsa. Gildranna var svo vitjað
eftir tvo sólarhringa og aflinn kyn-
greind ur og lengdarmældur.
Sundin við Reykjavík í október 2011
Fjórir kafarar mátu þéttleika á
svæð inu þar sem merkingar höfðu
farið fram. Alls voru tekin fjögur
snið, 200 m hvert. Ekki voru lagðar
gildrur samfara sniðtaln ing um í
október.
Þéttleikamat
Við þéttleikamat í merkinga-
til raun um var gert ráð fyrir að
stofnarnir væru „lokaðir“ (e. closed
populations). Það þýðir að yfir merk-
ingartímabilið (10–14 dagar) er
áætlað að dauði eða brottflutn-
ingur/innflutningur á svæðið sé
óverulegur.37 Til að meta stofn stærð-
ina voru notuð líkön sem má rekja
til vinnu Otis o.fl.38 um að skild ar
endurteknar merkingar. Líkönin
geta innihaldið allt að þrjár breytur
sem útskýra líkur á að veiðast
innan rannsóknarinnar; tímaháð
áhrif (t), misleitni milli hópa (h) og
hegðunarleg áhrif (b).39 Í heildina
er því um 8 mismunandi líkön
að ræða; M0 (enginn breyti leiki),
Mt, Mh, Mth, Mb, Mtb, Mbh og
Mtbh. Vinnan var unnin í forrit inu
R og notaður var tölfræðipakkinn
Rcapture.39
Niðurstöður
Merkingar og endurveiði
Hvalfjörður
Í heildina veiddust 174 krabbar í
fjórum veiðiferðum í maí og júní, þ.e.
139 grjótkrabbar, 15 bogkrabbar
og 20 trjónukrabbar (1. tafla). Alls
veiddust 64 krabbar á svæði M1 (30
grjótkrabbar, 15 bogkrabbar og 19
trjónukrabbar). Á svæði M2 veidd-
ust alls 120 krabbar (112 grjótkrabbar
og 8 trjónukrabbar). Allir grjót-
krabb ar sem veiddust voru merktir
og þeim sleppt aftur. Af þeim
veidd ust 3 einstaklingar aftur (2,2%
endurheimtur) á veiðitímabilinu og
komu þeir allir af svæði M2. Of fáir
grjótkrabbar endurveiddust til að
hægt væri að meta þéttleika með
töl fræðilíkönum.
Að meðaltali voru grjótkrabbarnir
10,6 cm að skjaldarbreidd, og var
stærðardreifing þeirra frá 7,7–15,0
cm. Meðalþyngd grjótkrabba var
179 g, og var þyngdardreif ingin frá
57–487 g. Fram til þessa hafði ekki
fengist stærri grjót krabbi en 14,2
cm við Ísland. Þrír toppar virð ast
vera í stærðardreifingu karlkyns
grjótkrabba, þ.e. einn rétt undir 9
cm, einn rétt undir 12 cm og einn í
tæpum 13 cm (6. mynd ), en þetta
gæti verið vísbending um árganga.
Kvendýr voru í minnihluta í afla,
eða um 23,7%. Rúmur helmingur
veiddra kvendýra, 17 af 33, var með
egg eða eggjaleifar (1. tafla).
Bogkrabbar voru að meðaltali
6,4 cm að skjaldarbreidd, og var
stærð ar dreifing þeirra frá 5,1–8,0 cm.
Trjónukrabbar voru að meðaltali 8
cm á skjaldarlengd, og var stærðar-
dreifingin 5,9–10,2 cm. Eins og hjá
grjótkrabbanum voru kvendýr í
minnihluta í afla bæði hjá bog-
krabba og trjónukrabba (1. tafla).
Sundin við Reykjavík
Alls veiddust 2.237 krabbar í fimm
veiðiferðum. Af þeim voru 1.570
grjótkrabbar, 475 bogkrabbar og
192 trjónukrabbar (2. tafla). Af þeim
1.570 grjótkröbbum sem veiddust
voru 1.167 merktir og sleppt að
lokinni merkingu. Alls veiddust 38
einstaklingar aftur á veiðitímabilinu
(3,3% endurheimtur) og veiddist
einn einstaklingur tvisvar sinnum.
Fjöldi grjótkrabba á athugunar-
svæð inu var metinn 25.682 (95
% öryggismörk: 19.282 og 35.510)
skv. besta líkani sem tekur tillit til
1. tafla. Heildarafli gildruveiða og fjöldi dreginna gildra í Hvalfirði í maí og júní 2011.
− Total catch and number of traps in Hvalfjörður in May and June 2011.
Heildarfjöldi
− Total catch
KK
− Male
KVK (með egg)
− Female (with eggs)
Fjöldi gildra
− Number of traps
Grjótkrabbi
Cancer irroratus
139 106 33 (17) 160
Bogkrabbi
Carcinus maenas
15 14 1 160
Trjónukrabbi
Hyas araneus
20 16 4 (3) 160
Heildarfjöldi
− Total catch
KK
− Male
KVK (með egg)
− Female (with eggs)
Fjöldi gildra
− Number of traps
Grjótkrabbi
Cancer irroratus
1.570 1.229 341 (1) 100
Bogkrabbi
Carcinus maenas
475 415 60 100
Trjónukrabbi
Hyas araneus
192 177 15 (5) 100
2. tafla. Heildarafli gildruveiða og fjöldi dreginna gildra á Sundunum í september 2011.
− Total catch and number of traps at Sundin in September 2011.