Náttúrufræðingurinn - 2013, Blaðsíða 25
25
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Jón Viðar Sigurðsson
Náttúrufræðingurinn 83 (1–2), bls. 25–38, 2013
Berghlaup við Morsárjökul
Veturinn 2006−2007 féll mikið berghlaup á innanverðan Morsár jök ul sem er
skriðjökull inn af Morsár dal, norðaustan Skaftafells. Hlaupið er það stærsta frá
berg hlaupi sem varð við Steinsholtsjökul í janúar árið 1967.1 Upptök hlaups-
ins eru í brattri fjallshlíð inn af Birki dal, í 660 til 1.010 m hæð yfir sjó. Megin-
orsök hlaupsins er sprungur sem skera hlíðina, skil milli berg gerða ásamt
greftri Morsárjökuls sem skilið hefur eftir bratta hlíð. Um 2,1 milljón m3 af
bergi féll í hlaup inu sem samsvarar um 5,5 milljónum tonna. Bergbrotin féllu
á brattan jökulinn neðan eystri ísfoss ins efst á Morsárjökli. Þar tekur hlaup ið
form bergflóðs þegar efnið flæðir líkt og vökvi yfir innanverðan skriðjökulinn.
Flóðið veldur ekki rofi á jökulísnum og myndar að lokum vel afmarkaðan
skriðuflekk. Jaðar hans var í um 2,1 km fjarlægð frá upptökunum þar sem
skriðan náði lengst. Fyrstu vikurnar eftir hlaupið náði íshrun frá Vatnajökli að
hylja efsta hluta urðarinnar allt niður und ir 500 m hæð yfir sjó. Eftir það var
berghlaupsurðin allt að 1.370 m löng og 610 m breið. Flatarmál henn ar var um
719.500 m2. Urðin einangrar jökulísinn undir og dreg ur verulega úr bráðnun
hans samanborið við ísinn utan urðar inn ar. Við upphaf sumarbráðnunar í
byrjun júní 2007 tók að myndast ísstallur undir urðinni og fór hann sífellt
hækkandi fyrstu fjögur árin. Í september 2011 var ísstallurinn orð inn um
35 m hár fremst og 6−20 m hár undir innsta hluta urðarinnar. Skriðuurðin
hefur gefið gott tæki færi til að fylgjast með skriðhraða Morsárjökuls.
Inngangur
Eitt af einkennum Öræfa er skrið-
jöklarnir sem ganga frá Vatna jökli
og Öræfajökli allt niður á láglendið
og eru sporðar sumra þeirra í næsta
nágrenni við bæi og mannvirki.
Breyt ingar á stöðu jöklanna sam-
hliða veðurfarsbreytingum eru
tölu verðar og hafa um leið áhrif á
ásýnd sveitarinnar.
Einn af skriðjöklunum er Morsár-
jökull (1. mynd). Hann þykir ein-
stak lega fagur og sérstakur, ekki síst
vegna ísfossanna og þeirrar fögru
umgjarðar sem hann býr í. Jökullinn
hefur því lokkað til sín fjölmarga
náttúruskoðendur og vísindamenn.
Jafnvel snemma á 20. öld lögðu
ferða langar leið sína að Morsárjökli
líkt og sjá má á 2. mynd sem tekin
var af óþekktri enskri frú.
Veturinn 2006–2007 urðu umbrot
við Morsárjökul þegar mikið berg-
hlaup féll á jökulinn. Þetta gerðist
þegar stór bergfylla losnaði og féll
niður bratta hlíð og skilaði mikilli
urð niður á skriðjökulinn þar sem
hún rann síðan töluverða leið á yfir-
borði hans. Þessum atburði verður
lýst hér, orsökum hans og ferðalagi
skriðu- eða berghlaupsurðarinnar
með jöklinum.
Hugtakið berghlaup á við um
nokkr ar gerðir af stórum skriðu-
föll um. Ein þeirra er bergflóð (e.
rock avalanche) og á sú gerð við um
skriðuna við Morsárjökul. Hér verður
þó notast við samheitið berg hlaup.
Ekki er óalgengt að skriður
og berg hlaup falli út á skriðjökla,
hvorki hér á landi né erlendis. Fjöl-
mörg dæmi um stór berghlaup má
t.d. finna í Himalajafjöllum, Ölp un-
um, Kanada og Alaska. Í Alaska féllu
til að mynda þrjú umfangsmikil
berghlaup á Black Rapids-skrið-
jökulinn í kjölfar jarðskjálfta árið
2002.2 Á Íslandi eru nokkur dæmi
um skriðuföll út á skriðjökla á
1. mynd. Flugsýn yfir Morsárjökul og berghlaupið, 9. ágúst 2011. – Oblique aerial image
of Morsárjökull and the rock avalanche debris on August 9 2011. Ljósm./Photo: J.V.S.
Ritrýnd grein