Náttúrufræðingurinn - 2013, Blaðsíða 14
Náttúrufræðingurinn
14
Engar spurnir eru af vatni á
Okinu fyrir fund þess sumarið
2007, hvorki í rituðum heimildum
né af munnmælum. Fyrsti greinar-
höfundur gekk nokkrum sinnum
á Okið á árunum 1995–2005 en
varð aldrei var við fljótandi vatn
í gígnum. Vatnsfundurinn var
borinn undir ýmsa staðkunnuga í
nærsveitum Oksins, þar á meðal
Snorra H. Jóhannesson bónda og
veiðieftirlitsmann á Augastöðum í
Reykholtsdal, en enginn kannaðist
við vatn á þessum stað.
Haraldur Sigurðsson (1908–1995),
bókavörður, rithöfundur og ferða-
frömuður, fæddur á Krossi í Lundar-
reykjadal og gjörkunnugur náttúru
og menningu í uppsveitum og fjall-
lendi Borgarfjarðar, getur ekki um
vatn á Okinu í árbók Ferðafélags
Íslands frá 1954, þrátt fyrir upp-
göngu á fjallið a.m.k. einu sinni.3
Haraldur nefnir þó að „stóreflis
gígur“ sé í hvirfli fjallsins og að
glöggt sjái fyrir brúnum hans, „en
sjálf er gígskálin hálffull af hjarni.“
Jafnframt segir Haraldur að norðan
í Okinu sé „töluverður jökull, sem
minnkar ár frá ári.“ Freysteinn
Sigurðsson (1941–2008), jarð- og
vatnafræðingur með meiru, fæddur
á Reykjum í Lundarreykjadal og
einnig vel kunnugur náttúru og
menningu Borgarfjarðar, getur
hvergi um vatn á Okinu í árbók
Ferðafélags Íslands sem hann ritaði
og kom út árið 2004.1 Þá má geta
þess að á tiltækum loftmyndum
í fórum Landmælinga Íslands
sem teknar voru af Okinu í júlí–
september á árunum 1945–1997, alls
níu myndir, er hvergi vatn að sjá í
gíg Oksins, aðeins snjó og ís.4
Leiða má að því líkur að ekkert
stöðuvatn hafi verið á Okinu um
alllangt skeið, a.m.k. í um eitt
þúsund ár, eða frá því um miðja
þjóðveldisöld um 1100 þegar
síðast ríktu hlýindi hér á landi
með svipuðu móti og verið hefur
á síðastliðinni öld.2 Undir lok
12. aldar fór loftslag kólnandi og
við tók Litla ísöld með loftkulda,
rysjóttu veðurfari og framrás jökla
sem varði allt til loka 19. aldar.
Í nýlegri jöklaskrá Odds
Sigurðssonar og Richards Williams
þar sem veitt er ítarlegt yfirlit yfir
nöfn íslenskra jökla, er m.a. fjallað
um Okjökul.5 Þar kemur fram að
staðarheitið Ok sé líklega fyrst að
finna í ritaðri heimild í Harðar sögu
1. mynd. Blávatn í gíg Oksins (a) 7. ágúst 2007 og (b) 20. ágúst 2010. Horft í suður af norðanverðum gígbarminum efst á Okinu í
1.141 m h.y.s. – View to the south over lake Blávatn from top of mountain Ok at 1,141 m a.s.l. on (a) August 7th 2007 and (b) August
20th 2010. Ljósm./Photo: Hilmar J. Malmquist.
2. mynd. Okið í ágúst (a) 1999 og (b) 2008. Blávatn hefur myndast á allra síðustu árum vegna hlýnandi loftslags. – Mountain Ok with
top crater and the remains of glacier Ok in August (a) 1999 and (b) 2008. Lake Blávatn is forming due to climate warming and melting
of glacier Ok. Loftm./Photos: Loftmyndir ehf.
a) b)
a) b)