Náttúrufræðingurinn - 2013, Síða 49
49
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Gróður í Viðey í Þjórsá
Áhrif beitarfriðunar
Inngangur
Viðey (1. mynd), einnig nefnd
Minna núpshólmi, er stök, ein-
angr uð ey í miðri Þjórsá suðaustan
við Minna-Núp í Gnúpverjahreppi.
Þar er áin djúp og straumþung og
hefur eyin því að mestu verið varin
fyrir ágangi manna og búfjár.
Í Viðey er gróskulegur birki-
skógur en að öðru leyti var lítið vit-
að um gróður hennar. Skógurinn
í eynni er mjög áberandi og sker
sig frá skóglausu landi á bökkum
ár innar. Fullvíst er að fyrr á öldum
var land á bökkum Þjórsár einnig
vaxið birkiskógi. Talið er að við
land nám Íslands hafi birkiskógur
og kjarr þakið að minnsta kosti
fjórð ung landsins. Nú á tímum er
birki skóg einungis að finna á um
hundraðasta hluta landsins. Ástæð-
ur þessarar miklu hnignunar má
rekja til breytinga sem urðu í kjölfar
landnáms, svo sem skógar höggs og
búfjárbeitar.1,2 Gróður Viðeyjar er
því dæmi um skóg og gróðurfar
sem fyrrum var mun útbreiddara.
Nokkuð er um að gróður hafi
verið kannaður í eyjum, hólmum og
á öðrum náttúrulega beitarfriðuðum
svæðum hér á landi.3,4,5,6,7 Ber
niðurstöðum einatt saman um að
verulegur munur sé á milli beittra
og óbeittra svæða. Gróður beitar-
friðaðra svæða er yfirleitt grósku-
meiri og samsetning tegunda frá-
brugðin því sem er á nærliggjandi
beitilandi.
Áhrif búfjárbeitar eru margþætt
sem m.a. má rekja til beitarinnar
sjálfrar, traðks og teðslu en beit
hefur oft í för með sér verulegar
breytingar á vistkerfum.6,8–13 Þekkt
er að búfé velur markvisst ákveðnar
Viðey í Þjórsá er stök ey suðaustan við bæinn Minna-Núp í Gnúpverjahreppi.
Áin er þar djúp og straumþung og hefur eyin því notið nokkurrar verndar
fyrir ágangi manna og búfjár. Í Viðey er gróskulegur birkiskógur sem ekki
er að finna á bökkum árinnar. Lítið var vitað um annan gróður í eynni.
Meginmarkmið þessarar rannsóknar var að kanna gróður í Viðey í Þjórsá og
bera hann saman við gróður á svipuðu landi beggja vegna árinnar. Áhersla
var lögð á að svara eftirfarandi spurningum: Hvaða gerðir gróðurs er að
finna í eynni? Hver er þekja og tegundasamsetning plantna í mismunandi
gróður- og landgerðum í eynni og á svipuðu landi beggja vegna árinnar?
Finnast sjalfgæfar plöntutegundir í eynni? Í rannsókninni voru lagðir út 13
reitir sumarið 2009; fjórir í Viðey, þrír á norðurbakka og sex á suðurbakka
Þjórsár. Í Viðey finnast fjórar megingerðir gróðurs; birkiskógur, graslendi,
strandgróður og mólendi. Í eynni fundust 74 tegundir háplantna, þ.á m.
tvær sem teljast sjaldgæfar á landsvísu, grænlilja og kjarrhveiti. Þekja og
tegundasamsetning plantna í Viðey er mjög ólík þeirri á bökkum árinnar en
í samræmi við það sem komið hefur fram í öðrum rannsóknum á beittum
og beitarfriðuðum svæðum. Viðey var friðlýst árið 2011 til verndunar
lítt snortins og gróskumikils birkiskógar og því lífríki sem honum fylgir.
Auk verndunar erfðaeiginleika og erfðafjölbreytileika birkisins og annars
gróðurs, þá er sérstaklega treyst vísinda- og fræðslugildi eyjarinnar.
Anna Sigríður Valdimarsdóttir og Sigurður H. Magnússon
1. mynd. Viðey í Þjórsá séð ofan af Núpsfjalli ofan Minna-Núps. Fremst er ræktað land
á norðurbakka Þjórsár, þá Viðey, þar næst suðurbakki og Skarðsfjall í Landsveit. – Videy
Island in River Thjorsa seen from Nupsfjall Mountain above the farm Minni-Nupur. In
the foreground is cultivated land on the northbank of the river, then the island and in
the background is the southbank and Skardsfjall Mountain in the upper right corner.
Ljósm./Photo: Anna Sigríður Valdimarsdóttir
Náttúrufræðingurinn 83 (1–2), bls. 49–60, 2013
Ritrýnd grein