Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2013, Side 62

Náttúrufræðingurinn - 2013, Side 62
Náttúrufræðingurinn 62 teg und anna. Etienne Kornobis var ráð inn í verkefnið sem doktorsnemi og lauk hann doktorsverkefni sínu í október 2011. Í þessari grein ætla ég að draga saman helstu niðurstöður þessarar rannsóknar. Framkvæmd Til að meta hvort að grunnvatns- marflærnar hefðu lifað hér af á ísöld athuguðum við breytileika í erfða- efni C. islandicus og landfræði lega uppskiptingu hans. C. thingvallensis, sem er mun stærri en C. islandicus og myndar sérstaka ætt marflóa, er sjaldgæf og ekki reyndist unnt að greina breytileika hennar (2. mynd). Breytileiki í tveimur hvatberagenum (COI og 16S-RNA) og innröðum RNA kjarna gena var athugaður til að greina aðgreiningu stofna innan Íslands, hvort sú aðgreining fylgdi fjarlægð milli sýnatökusvæða og þá hvað sú aðgreining væri gömul. Vegna stökk breytinga í DNA eykst aðgrein ing í DNA-röðum með tíma, fyrir COI er það um 2,5% á milljón árum. Auk þess var athugað hvort og hvern ig breytileikinn tengdist ákveðn um búsvæðum. Ef tegundir hefðu numið land hér nýlega eða eftir síðasta kuldaskeið þá ættum við ekki að sjá skýr tengsl milli erfða fræðilegrar aðgreiningar eða breytileika og sýnatökustaða. Til að prófa flokkunarfræðilega greiningu tegundanna, byggða á út litseiginleikum og uppruna íslensku tegundanna, voru DNA- raðir í ríbósómal-genum (18S og 28S RNA) ásamt innröðum þeirra (ITS) bornar saman við sömu raðir í skyldum tegundum, bæði við DNA- raðir sem finna má í gagnabönkum en einnig með athugunum á skyld um tegundum frá Banda ríkj- unum, Evrópu og Asíu og ættartré þeirra metin. Þessi tré voru síðan borin saman við ættartré byggð á útlitseiginleikum tegundanna. Breyti leiki í þessum genum hefur verið mikið notaður til að greina skyldleika tegunda og hafa bæði hvatberagenið COI og ITS raðir verið notuð í stórum alþjóðlegum verkefnum við tegundagreiningar (barcode of life http://www. barcodeoflife.org/). Niðurstöður Í stuttu máli kom í ljós að land- fræðileg mynstur í mtDNA sýna að C. islandicus hefur aðgreinst innan Íslands í milljónir ára og hún hefur því lifað af undir jökli á kulda- skeiðum ísaldar2 (3. og 4. mynd). Einstaklingar sem eru með svipaðar hvatbera DNA-raðir finnast á svipuðum slóðum. Þannig mynda gerðir merktar A og A' tvær greinar sem koma saman í Þingvallavatni. Gerðir á grein B finnast aðeins aust ar, í Miðhúsaskógi og við Heklu. Gerð C, sem fannst á Kili, er hluti af þeirri grein. Aðgreining milli þess- ara hópa (A, A' og B) er um 660 þús und ár. Fjarskyldari eru marflær í Skaftafellssýslu (hópur D) sem að greindist frá hinum á Suðurlandi fyrir um milljón árum. Á Norður- landi finnast tveir aðskildir hópar, grunnvatnsmarflær í S-Þingeyjar- sýslu, frá Herðubreið að Sandi í Aðaldal, greindust fyrir um 1.340 þús und árum frá Suðurlandi og að síðustu er stofn á Melrakkasléttu sem er mjög frábrugðinn öllum öðrum og hefur einangrast fyrir tæpum 5 milljónum ára. Aðgrein- ing in er það skýr milli svæða (sér- stak lega greinir Melrakka sléttu- stofn inn sig frá hinum) að jafnvel mætti flokka ólíka hópa innan Íslands sem aðskildar tegundir. Til samanburðar má nefna að ýmsar fuglategundir, t.d. meðal máfa eru taldar hafa myndast fyrir um 100– 500 þúsund árum. Annað skýrt mynst ur sem kom fram var að mesti breytileikinn fannst við miðju gosbeltisins. Sýni sem safnað var lengra frá höfðu minni breytileika. Meiri breytileiki bendir til að þar megi finna svæði þar sem stofninn hefur lifað lengur og jafnvel hæli (e. refugia) á kuldaskeiði og þaðan hafi landnemar borist sem hafi numið búsvæði í nýjum hraunum. Þannig voru sýni í Skaftárhrauni nálægt Kirkjubæjarklaustri með minni 2. mynd. Landfræðileg útbreiðsla hvatberaarfgerða Crangonyx islandicus. Sýnatökusvæði eru merkt með punktum og landsvæði þar sem ólíkar hvatberaarfgerðir finnast með ferhyrningum og stórum stöfum (A, A’, B, C, D, E, F). Sjá skyldleika gerðanna í 3. mynd. Gosbelti landsins er skyggt. – Geographic distribution of the mitochondrial genotypes in Crangonyx islandicus. Sampling sites are denoted by points and geographical regions with major mtDNA clades by squares and capital letters (A, A’, B, C, D, E, F). The phyloge- netic relationships of the mtDNA types are shown in figure 3. The volcanic zone is shaded.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.