Náttúrufræðingurinn - 2013, Side 69
69
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
tönnunum til að fá sílin til að flýja
upp úr botninum og þau lendi þá
í neti plógsins. Veiðni mismunandi
gerða plóga var borin saman á 38
stöðvum og var ekki marktækur
munur á veiðni þeirra (Parað t-próf:
t = -0,9, frítölur = 37, P = 0,3).
Á plógstöðvum voru kannaðir á
bilinu 310 til 360 m2 af botni í hvert
skipti. Fjöldi stöðva á hverju svæði
ræðst af stærð þess og hlutfall plóga
og toga hefur ráðist af aðstæðum
hverju sinni. Þó hefur stöðvum
fjölg að á milli ára (2. tafla). Á hverri
stöð voru 100 sandsíli lengdarmæld
og að auki voru 50 tekin frá til
kvörnunar og vigtunar í landi og
afgangurinn talinn. Ef fjöldi sandsíla
hefur verið minni en þetta hafa öll
verið athuguð.
Aldur sandsíla var ákvarðaður
í landi með lestri kvarna en þá eru
árhringir í kvörnunum taldir. Fjöldi
aldursgreindra sandsíla hefur verið
á bilinu frá um 600 árið 2007 upp í
um 1.700 árið 2008. Gögn eru sam-
einuð frá þremur öðrum rannsókna-
svæðum til að bera saman við upp-
lýs ingar frá svæðinu við Vestmanna-
eyjar að Vík (2. tafla). Einnig hefur
vísitala á þéttleika sandsíla verið
metin út frá veiðni í plóginn og sett
fram sem fjöldi á flatareiningu úr
þeim plógum þar sem síli fékkst.
Þá hafa verið teknar saman upp-
lýsingar frá Hafrannsókna stofn un
um fjölda sandsíla í mögum ýsu,
undanfarin fjórtán ár. Þeim gögnum
hefur verið safnað árlega að haust-
lagi af rann sókna skipum. Hér er
niðurstöðum frá öllum fjór um
rannsóknasvæðum á sandsíli slegið
saman og kannað hlutfall ýsumaga
sem innihalda sandsíli.
Niðurstöður
Aldursgreiningar fugla úr lunda-
veiði frá árunum 1996 og 1999
voru í grófum dráttum svipaðar. Þó
veiddust bæði hlutfallslega fleiri
þriggja ára og færri fjögurra ára og
eldri árin 1996 og 1999 samanborið
við meðaltal áranna 1961–1982 og
var munurinn meiri 1999 (5. mynd).
Árið 2007 veiddist lítið af tveggja
ára lundum en meira bar á þriggja
ára gömlum fugli en í meðalári.
Aldurshlutföll í veiðinni breyttust
áfram árið 2008 því mjög lítið
veiddist bæði af tveggja og þriggja
ára fuglum. Frá árinu 2009 til 2011
hefur þessi þróun haldið áfram og
fáir tveggja og þriggja ára fuglar
hafa veiðst en uppistaðan í veiðinni
verið lundar fjögurra ára og eldri
(5. mynd).
Fjöldi lundahola í notkun (ábúð-
ar hlutfall) gefur til kynna það hlut-
5. mynd. Aldur lunda í háfaveiði í Vestmannaeyjum. Hvítu súlurnar sýna meðaltöl
merktra fugla af þekktum aldri. Gráu súlurnar sýna niðurstöður frá 199625 og 1999 (gögn
frá Gísla Óskarssyni). Lituðu súlurnar sýna niðurstöður úr þessari rannsókn. Sýnd eru
95% öryggismörk hlutfalla. – Age of puffins caught with pole nets in Vestmannaeyjar
islands. White columns demonstrate age of ringed birds of known age. Grey columns show
results from 199625 and 1999 (data from Gísli Óskarsson). Other colours represent data
from this study. Proportions are shown with 95% confidence limits.
3. tafla. Yfirlit þátta sem athugaðir voru til að lýsa varpárangri lunda í Vestmannaeyjum
2007–2012. – An overview of variables analysed to estimate the breeding success of
Atlantic puffins in Vestmannaeyjar islands 2007–2012.
Ábúðarhlutfall er hlutfallslegur fjöldi varphola sem orpið er í. Varpárangur er hlutfall eggja þar sem
pysjur komast á legg. Viðkoma er hlutfall hola með upp komn ar pysjur (margfeldi ábúðarhlutfalls og
varpárangurs). Heildarfjöldi pysja er margfeldi viðkomu og heildarfjölda varphola (1.120 þúsund26).
– Burrow occupation as the ratio between no. of burrows with eggs versus no. of available burrows.
Breeding success as proportion of eggs hatched. Breeding production as no. of puffin fledglings per
no. of breeding burrows. Total no. of puffin fledglings calculated by multiplying breeding production
and no. of available breeding burrows (estimated as 1.120.00026).
* Áður útgefið ábúðarhlutfall fyrir 2011 (38,8%, n = 5026) var byggt á minna úrtaki, en hér er bætt við
niðurstöðum úr 75 holum. – * An earlier estimate (38.8%, n = 5026) was based on a smaller sample.
2007 2008 2009 2010 2011 2012
Ábúðarhlutfall %
– Burrow occupation % 60,4 66,2 52,3 74,4 23,2
* 51,0
Afrækt egg %
– Eggs deserted % 60 26 42 82 100 58
Dánarhlutfall pysja %
– Fledglings death rate % 10 70 57 100 – 11
Varpárangur %
– Breeding success % 36 22 25 0 0 37
Viðkoma %
– Fledglings production % 22 14 13 0 0 16
Heildarfjöldi pysja
– Total no. of chicks 246.000 161.000 147.000 0 0 177.000