Náttúrufræðingurinn - 2013, Qupperneq 94
Náttúruminjasafn Íslands og Hönnunarmiðstöð
Íslands standa fyrir samkeppni um hönnun á nýju
einkennismerki fyrir Náttúruminjasafn Íslands.
Náttúruminjasafn Íslands (nmsi.is) er höfuðsafn á sviði náttúrufræða og sinnir
rannsóknum, fræðslu og upplýsingamiðlun um náttúru landsins, náttúrusögu og
nýtingu náttúrauðlinda. Viðfangsefnin eru fjölbreytt – jarðfræði og jarðsaga,
myndun og mótun lands, efna- og eðlisþættir, fjölbreytileiki lífríkis allt frá smæstu
örverum til stærstu dýra jarðar, og vistfræðilegt samspil. Einkennismerkið skal
endurspegla hlutverk Náttúruminjasafnsins og vísa til náttúru landsins í víðri
merkingu, einkenna hennar og eða sérkenna.
Yfir einkennismerkinu skal vera reisn og af því skal stafa virðing sem hæfir
höfuðsafni. Merkið skal nýtast á margvíslegan hátt í kynningarefni, á skilti,
prentað og rafrænt. Merkið þarf að vera áhugavert, einkennandi og auðvelt í
notkun í öllum miðlum.
Veitt verða ein verðlaun að upphæð 1.000.000 kr. fyrir bestu tillöguna. Samið
verður sérstaklega við vinningsahafa um frekari útfærslu. Keppnin er öllum opin.
Tillögum skal skila í lokuðu umslagi merktu dulnefni í Hönnunarmiðstöð Íslands,
Vonarstræti 4b, 101 Reykjavík, fyrir kl. 12.00, miðvikudaginn 15. janúar 2014.
Í umslaginu skal vera annað lokað umslag merkt dulnefni en inni í því þarf rétt nafn
hönnuðar, heimilisfang og sími að koma fram. Tillögum skal skila útprentuðum á
A3 blaði í lit (hámark tvær síður). Tillögur skulu einnig fylgja með á diski með
pdf-skjölum. Úrslit samkeppninnar verða tilkynnt miðvikudaginn 30. janúar 2014.
Ekki er hægt að tryggja að keppendur fái tillögur sínar afhentar að keppni lokinni.
Dómnefnd skipa eftirtaldir: Hilmar J. Malmquist forstöðumaður Náttúruminja-
safns Íslands, Árni Hjartarson formaður Hins íslenska náttúrufræðifélags, Birna
Geirfinnsdóttir grafískur hönnuður og fagstjóri LHÍ, Rósa Hrund Kristjánsdóttir
grafískur hönnuður, Hvítahúsinu, og Einar Gylfason grafískur hönnuður,
Leynivopninu.
Ritari keppninnar er Haukur Már Hauksson. Fyrirspurnir þurfa að berast fyrir
1. desember 2013 á veffangið samkeppni@honnunarmidstod.is. Öllum spurningum
verður svarað og svörin birt á vef Hönnunarmiðstöðvar 5. desember 2013.
Nánari upplýsingar er að finna á vefslóðinni honnunarmidstod.is.
SAMKEPPNI
UM EINKENNISMERKI
NÁTTÚRUMINJASAFNS
ÍSLANDS
Samkeppni um nýtt
einkennismerki
Náttúruminjasafns Íslands
1.000.000 kr. í verðlaun
Skilafrestur 15. janúar 2014
Nánar á honnunarmidstod.is