Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2013, Page 102

Náttúrufræðingurinn - 2013, Page 102
Náttúrufræðingurinn 102 leg eða 343 fundargestir á árinu. Eftirfarandi erindi voru hald in: Dr. Bergrún Arna Óladóttir. „Senn bryddir á Barða“ Stutt samantekt um Kötlu. Dr. Haraldur Ólafsson. Staðbundið veður. Magnús Jóhanns- son. Fiskstofnar Þjórsár og göngur þeirra. Guðmund ur Halldórsson. Ertu yglan og hugsanleg áhrif henn ar á lúpínu Íslandi. Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir. Með kúlustrý nebbu undir eldhúsvaskinum – funga íslenskra húsa. Árni Hjartar son. Hallmundarkviða og Hall mundar- hraun. Eldforn lýsing á elds- umbrotum. Ása L. Aradóttir. Vist- heimt á Íslandi í eina öld – hvað höfum við lært? Náttúrufræðingurinn Undanfarin ár hafa yfirleitt komið út tvöföld hefti af ritinu og meira að segja eitt fjórfalt. Á síðasta aðalfundi var greint frá því að ákveðið hefði verið að gera tilraun með að gefa út fjögur hefti af Náttúrufræðingnum á árinu. Varnagli var þó sleginn því tekið var fram að ekki væri víst að þetta myndi takast, eða að við hefð um efni á því, en tilraunin væri hafin. Alltaf mætti stíga skrefið til baka ef útgáfan reyndist of torveld. Og það var það sem kom á daginn. Þegar leið á árið var ljóst að menn yrðu að sætta sig við tvö einföld hefti en eitt tvöfalt. Síðasta heftið kom úr prentsmiðju rétt fyrir ára- mótin og til félagsmanna rétt eftir þau. Segja má því að árgangurinn hafi skilað sér nokkurn veginn á rétt um tíma og enginn hali er á út gáf unni. Ráðningartímabil rit- stjórans, Hrefnu B. Ingólfsdóttur, rann út um áramótin en var endur- nýjaður lítt breyttur til 2014. Rit- stjóri gaf þó í skyn að óvíst væri með áframhaldandi störf hans eftir þetta ár, árið 2012 og 82. árgang. Umhverfisþing 14. október á Hótel Selfossi Fulltrúar HÍN sóttu Umhverfisþing á Hótel Selfossi þann 14. október. Á þinginu var fjallað um náttúru- verndar mál, þar á meðal nýút- komna hvítbók um endurskoðun náttúruverndarlaga, friðlýsingar, ferðaþjónustu, útivist náttúruvísindi og viðmið fyrir náttúruvernd. Heiðurs gestur var Ella Maria Bisschop-Larsen, formaður Dönsku náttúruverndarsamtakanna sem fagna 100 ára afmæli í ár. HÍN var með sérstakt kynningarefni um félagið í sýningarbás á staðnum. Nefndir Dýraverndarráð: Margrét Björk Sigurðardóttir er fulltrúi HÍN, og hefur verið síðastliðin 4 ár. Störf hennar eru tíunduð í sérstakri skýrslu sem hún tók saman fyrir aðalfundinn. Gert er ráð fyrir að hún sitji áfram í ráðinu fyrir hönd HÍN þar til væntanlegar breytingar á dýraverndarlögum taka gildi. Samstarfshópur frjálsra félaga- samtaka á sviði umhverfismála á vegum Umhverfisráðuneytis: Hóp ur inn á full trúa í ýmsum nefndum á vegum ráðuneytisins, svo sem í Ramma- áætl un, stjórn og svæðisráðum Vatna jökulsþjóðgarðs o.fl. Kristín Svavarsdóttir, frv. formaður HÍN, var talsmaður hópsins og hélt utan um erindi sem honum bárust. Síðast liðið vor lét hún þó af þessu starfi og hvarf úr samráðshópnum eftir gott starf þar, sem var HÍN til sóma. Árni Hjartarson tók við sem fulltrúi HÍN en Hólmfríður Sig- urðar dóttir hjá Fuglavernd var til- nefnd sem talsmaður hópsins í stað Kristínar. Grænavatnsganga. Aldarminning Sigurðar Þórarinssonar Þann 8. janúar 2012 voru liðin 100 ár frá fæðingardegi Sigurðar Þórarins- sonar jarðfræðings, eins kunnasta vísindamanns þjóðarinnar á síðustu öld, en hann var um skeið ritstjóri Náttúrufræðingsins og formaður HÍN. Á þessum degi efndu HÍN og fleiri félög og samtök sem tengjast náttúruvísindum, náttúruvernd og útiveru til blysfarar kringum Græna vatn í Krýsuvík. Ástæðan fyrir því að Grænavatn var áfanga- staðurinn er sú að þar hafði Sigurð ur gert merkar jarðfræði- athuganir og upphaf baráttu hans fyrir náttúruvernd má að vissu leyti rekja til Grænavatns. Um þetta hvort tveggja má lesa í Náttúru- fræðingnum 1950 þar sem birt er tímamótaerindi um náttúruvernd sem Sigurður hélt á fundi í Hinu íslenska náttúrufræðifélagi þann 31. 2. mynd. Grænavatnsganga var farin á aldarafmæli Sigurðar Þórarinssonar 10. jan. 2012. Á myndinni eru Magnús Hallgrímsson, Halldór Ólafsson og Páll Ásgeir Ásgeirsson sem allir létu að sér kveða í göngunni
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.