Náttúrufræðingurinn - 2013, Page 103
103
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
október 1949 og helgaður var 60 ára
afmæli félagsins.
Brottför var með rútum frá
skrifstofu Ferðafélags Íslands Mörk-
inni 6 kl. 14 en einnig fóru margir á
einkabílum sínum. Veðurútlit var
ekki gott að morgni, grenjandi rign-
ing og hvasst, svellbunkar á götum
og víða snjóþungt á vegum í grennd
höfuðborgarinnar. Veður batnaði
þó með deginum þótt vind lægði
lítt. Fjöldi manns kom í gönguna. Í
rút un um flutti Sigrún Helgadóttir
ávarp og Halldór Ólafsson og
Magnús Hallgrímsson sögðu sögur
og stýrðu söng, við Grænavatn
flutti undirritaður tölu um jarðfræði
svæðisins. Gengið var með logandi
blys kring um vatnið og síðan
hald ið til baka á ný og hlýtt á fleiri
sögur og gamanmál þeirra Halldórs
og Magnúsar. Mál manna var að
þessi aðgerð hefði tekist mæta vel
en Reynir Ingibjartsson átti frum-
kvæði að henni.
Um málefni Náttúru-
minjasafns
Barátta HÍN fyrir hagsmunum
Náttúru minjasafns Íslands var
nokk uð fyrirferðarmikil í starfsemi
félagsins. Eins og greint var frá í
ársskýrslu síðasta árs heimsóttu
stjórnarmenn HÍN Katrínu Jakobs-
dóttur menntamálaráðherra 25.
október 2010. Í framhaldi af því var
Álfheiður Ingadóttir alþingismaður,
og fyrrum ritstjóri Náttúrufræð-
ings ins, sótt heim til skrafs og ráða-
gerða. Í ár var þessum heimsóknum
haldið áfram. Þann 2. mars var
fundur með Svandísi Svavarsdóttur
í Umhverfisráðuneytinu. Fulltrúar
HÍN voru Árni Hjartarson, Hilmar
J. Malmquist og Esther Ruth en
frá ráðuneytinu sat Sigurður
Þráinsson fundinn auk ráðherrans.
Staða máls ins var rædd og þótt
Náttúru minjasafn heyri ekki undir
umhverfis ráðuneytið kemur það að
málefnum þess í gegn um Náttúru-
fræðistofnun. Sama afstaða kom
fram hjá umhverfisráðherra og
menntamálaráðherra, báðir eru ráð-
herrarnir áhugasamir um að leysa
vanda safnsins og um að það rísi
á sinni afmörkuðu lóð í Vatns mýri.
Niðurstaðan var sú að umhverfis-
ráðherra myndi taka upp málið
við menntamálaráðherra og að þær
myndu samræma aðgerðir sínar í
því.
Nokkru síðar gengu HÍN-menn á
fund Jóns Gnarr borgarstjóra sömu
erinda og þótt borgin hafi ekki beint
með Náttúruminjasafn að gera þá er
því ætlað að rísa á miðlægum stað
innan borgarmarkanna og gagn-
kvæmir hagsmunir safns og borgar
eru augljósir. Borgarstjóri var ekki
kunnugur þessu málefni en var
fljótur að átta sig á því og skynja
mikilvægi þess. Hét hann því að
taka þetta mál upp við Svandísi
Svavarsdóttur sem um þetta leyti
gegndi bæði embætti umhverfis-
og menntamála í barneignarleyfi
Katrín ar Jakobsdóttur.
Síðsumars birtist grein í Morgun-
blaðinu eftir Ágúst H. Bjarnason frv.
formann HÍN. Greinin var áskorun
á núver andi stjórn félagsins um að
rifta vegna vanefnda hinum gamla
samning HÍN og ríkisins frá 1947
þegar ríkið fékk allan safnkost
Náttúrugripasafnsins að gjöf ásamt
byggingarsjóði gegn því að það
byggði hús yfir safnið og sæi um
rekstur þess.
Ríkisendurskoðun sendi frá sér
skýrslu um Náttúruminjasafnið í
janúar 2012 og fjallar þar um stöðu
þess og framtíðarhorfur. Skemmst
er frá því að segja að í skýrslunni er
mikill áfellisdómur um framkvæmd
laganna um Náttúruminjasafnið og
allar aðstæður þess. Skýrslan setti
málefni safnsins í brennidepil og
hratt af stað töluverðri umræðu m.a.
á Alþingi.
Nokkru eftir útkomu skýrslu
Ríkisendurskoðunar birtist í Frétta-
blaðinu grein eftir Hjörleif Stefáns-
son og Þórunni Sigríði Þorgríms-
dóttur þar sem varpað var fram
þeirri hugmynd að ríkið kaupi Perl-
una á Öskjuhlíð og ráðstafi henni
undir Náttúruminjasafn. Fyrir
þessu færðu þau gild rök og það
sem gerir málið sérlega nærtækt er
að Orkuveitan hyggst losa sig við
bygginguna og söluferli er í gangi.
Hugmyndin hlaut afar jákvæðar
undir tektir og var sem þverpólitísk
samstaða gæti myndast um hana.
Hjörleifur Guttormsson mælti með
henni í grein í Morgunblaðið og
skömmu síðar tók leiðarahöfundur
blaðsins, líklega sjálfur Davíð
Oddsson, undir hana í forystugrein.
Stjórn HÍN sendi um sama leyti
frá sér grein um málið til Frétta-
blaðs ins sem svo birtist 21. febrúar.
Þar var farið yfir sögu málsins,
nauðsyn safnsins og tekið vel í
Perluhugmynd ina þótt nýtt hús á
lóðinni í Vatns mýri sé enn sterklega
inni í mynd inni.
3. mynd. Stjórnarmenn í HÍN í heimsókn hjá umhverfisráðherra 2. mars 2011.