Náttúrufræðingurinn - 2015, Page 6
Náttúrufræðingurinn
6
Botnþörungar
Sagþang, Fucus serratus Linnaeus
Sagþang (Fucus serratus) (4. mynd)
er upprunnið við Atlantshafs-
strendur Evrópu og barst að öllum
líkindum til Íslands með mönnum.
Fyrstu skráðu heimildir um sag-
þang á Íslandi eru frá því um
aldamótin 1900, í Vestmannaeyjum
og í Hafnarfirði.25 Útbreiðslusvæði
sagþangs nær nú frá Junkara-
gerði skammt sunnan við Hafnir á
utanverðu Reykjanesi norður um
Mediopyxis helysia Kühn,
Hargraves & Hallinger
Mediopyxis helysia (3. mynd) fannst
fyrst við Ísland árið 2007 í Breiða-
firði og hefur fundist þar í allmörg
skipti síðan.20 Tegundin fannst einnig
í sýnum úr Tálknafirði frá árinu 2008
(Hafsteinn Guðfinnsson, munnl. uppl.)
og í Hvalfirði fannst hún fyrst 2010.
Tegundin M. helysia er nýlega
uppgötvuð. Hún fannst fyrst við
austurströnd Norður-Ameríku
árið 1996 og barst til Helgolands
í Norðursjó árið 2002.21 Á báðum
þessum stöðum eru til samfelld
gögn um svifþörunga marga ára-
tugi aftur í tímann en tegundar-
innar hafði aldrei orðið vart.22,23 Það
er talið næsta víst að hún hafi borist
í Norður-Atlantshafið, hugsanlega
með kjölfestuvatni, um það leyti
sem hún fannst í fyrsta skipti. Það er
hins vegar enn ráðgáta hvaðan hún
barst þar sem hún hefur ekki fundist
annars staðar, enn sem komið er.
Í Vaðhafi í Norður-Þýskalandi
hefur M. helysia nú fest sig í sessi
og hefur undanfarin ár vaxið upp
í miklum þéttleika á sumrin. Hún
hefur haft yfirhöndina í samkeppni
við aðrar svifþörungategundir um
næringu og ljós og við það hefur
tegundafjölbreytni svifþörungasam-
félagsins minnkað. M. helysia er því
skilgreind þar sem ágeng tegund.24
og samfellt til Reykjavíkur. Sag-
þang vex einnig í Vestmannaeyjum.
Annað samfellt fjörusvæði með sag-
þangi fannst nýlega í innanverðum
Hvalfirði þar sem það hafði ekki
vaxið áður. Erfðafræðilegar athug-
anir benda til að sagþang hafi borist
til landsins frá Noregi, nánar til-
tekið úr Óslóarfirði, fyrir nokkur
hundruð árum, en fyrst orðið hér
vart um aldamótin 1900, og síðan
borist tiltölulega nýlega frá Íslandi
til Færeyja.26 Margt bendir til að
sagþang hafi borist með skipum
til landsins, einkum sú staðreynd
að það fannst fyrst í námunda við
hafnir. Sama er að segja um sag-
þang í Færeyjum. Þar finnst það
eingöngu í innanverðum Trongis-
vágsfirði við stærstu höfn Suður-
eyjar.27
Blendingar sagþangs og skúf-
þangs (Fucus distichus) eru sérstak-
lega algengir á svæðum þar sem
tegundirnar hafa lifað stutt í nábýli
hvor við aðra, þ.e. önnur tegundin
hefur flust inn á búsvæði hinnar.28
Á Íslandi eru blendingar algengir,
einkum í jaðri útbreiðslusvæðis sag-
þangs.26
Á upprunalegu útbreiðslusvæði
tegundarinnar í Vestur-Evrópu er
sagþang talið víkjandi í samkeppni
við þang- og þarategundir sem
það keppir við um vaxtarstaði.29
3. mynd. Svifþörungurinn Mediopyxis helysia. Ljósm./Photo: Karl Gunnarsson.
4. mynd. Sagþang (Fucus serratus). Ljósm./Photo: Karl Gunnarsson.