Náttúrufræðingurinn - 2015, Side 10
Náttúrufræðingurinn
10
landsins með kjölfestuvatni frá nátt-
úrulegum heimkynnum sínum í
Vestur-Evrópu. Erfitt er að meta
áhrif tegundarinnar á lífríkið þar
sem skelin finnst alltaf í tiltölu-
lega litlum þéttleika og er því
varla ágeng. Hún gæti þó verið í
samkeppni við aðrar samlokur um
fæðu og pláss, svo sem sandskel,
kúfskel og krókskel.
Möttuldýr
Glærmöttull, Ciona intestinalis
(Linnaeus, 1767)
Glærmöttull (Ciona intestinalis) (13.
mynd) er eina framandi möttul-
tegundin sem fundist hefur við Ís-
land. Hans varð fyrst vart í Straums-
vík árið 2007.70 Árið 2010 fannst
tegundin síðan undir flotbryggjum
í nokkrum höfnum á Suðvestur-
landi. 71
Glærmöttull er algeng ásæta á
skipsskrokkum, bryggjum, baujum
og eldiskvíum og er talinn hafa
breiðst út með skipum fyrst og
fremst. Glærmöttull finnst nú
um allan heim, að Suðurskauts-
landinu undanskildu, og er talinn
upprunninn í Norður-Atlantshafi
en hefur flust til annarra heims-
hafa af mannavöldum.72 Þar sem
glærmöttull hefur numið land sem
framandi tegund telst hann víð-
ast hvar ágengur.73,74 Glærmöttull
hefur valdið skaða í skeljarækt, er í
samkeppni við skelina um pláss og
fæðu, hann er ásæta, bæði á skel og
ræktunarútbúnaði, og hefur valdið
miklu fjárhagslegu tjóni.
Lirfustig glærmöttuls varir mjög
stutt og sest lirfan í nágrenni við
foreldrana.75 Hann hefur því að
öllum líkindum borist til landsins
sem ásæta á skipsskrokkum. Hann
er sjaldgæfur hér við land, a.m.k.
enn sem komið er, og getur því ekki
talist ágengur en líklegt er að hann
geti orðið það.
Fiskar
Flundra, Platichthys flesus
(Linnaeus, 1758)
Flundra (Platichthys flesus) (14.
mynd) hefur náttúrulegt útbreiðslu-
svæði í Norðaustur-Atlantshafi.
Hún er algeng á grunnsævi við
meginland Vestur-Evrópu og eins
í Færeyjum.76 Fyrsti skráði fundur
flundru við Ísland var haustið 1999
í mynni Ölfusár77 en síðan hefur
hennar orðið vart víða. Nú finnst
hún í sjó, ísöltu vatni og ferskvatni
réttsælis frá sunnanverðum Aust-
fjörðum til Skagafjarðar og hefur
náð hér fótfestu.78 Flundra hefur
sennilega flust til Íslands af manna-
völdum, með kjölfestuvatni. Sú
flutningsleið er þekkt frá Banda-
ríkjunum þar sem flundran hefur
einnig fundist.79 Um áhrif flundru á
íslenskt lífríki er lítið vitað en þó er
ljóst að hún stundar afrán á laxfiska-
seiðum og er í samkeppni um fæðu
við laxfiska, ál og hornsíli.80 Gæti
tegundin því orðið ágeng við Ísland.
Græni marhnútur, Taurulus
bubalis (Euphrasen, 1786)
Græni marhnútur (Taurulus bubalis)
(15. mynd) fannst fyrst hér við land
árið 2005, við Vatnsleysuströnd.
Árið eftir veiddust nokkrir fiskar í
fjörupolli á Seltjarnarnesi,81 meðal
annars kynþroska hængur. Græni
marhnútur er grunnsævisfiskur
sem lifir fyrst og fremst í fjörum.
Hann er um 10 cm að lengd, og
eru náttúruleg heimkynni hans við
Atlantshafsstrendur Vestur-Evrópu,
í Eystrasalti og í Miðjarðarhafi vest-
anverðu. Í byrjun 20. aldar töldu
13. mynd. Glærmöttull (Ciona intestinalis). Ljósm./Photo: Pálmi Dungal.
14. mynd. Flundra (Platichthys flesus). Ljósm./Photo: Jónbjörn Pálsson.