Náttúrufræðingurinn - 2015, Side 11
11
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
danskir fiskifræðingar sig finna
lirfur græna marhnúts víða úti
fyrir Suður- og Vesturlandi82 en
við nánari skoðun kom í ljós að um
var að ræða lirfur litla marhnúts
(Micrenophrys lilljeborgii).83,84 Talið
er líklegt að græni marhnútur hafi
borist nýlega hingað til lands með
kjölfestuvatni (Jónbjörn Pálsson
munnl. uppl.). Græni marhnútur
er fremur sjaldgæfur og hefur
einungis fundist við Suðvesturland.
Hann telst ekki ágengur.
Umræða og ályktanir
Á síðustu áratugum hefur fjöldi
framandi sjávarlífvera við Íslands-
strendur aukist til muna. Vart hefur
orðið fimmtán tegunda sem tilheyra
svifþörungum, botnþörungum,
krabbadýrum, samlokum, möttul-
15. mynd. Græni marhnútur (Taurulus bubalis). Ljósm./Photo: Jónbjörn Pálsson.
dýrum og fiskum, og hafa sjö þeirra
fundist á síðustu tveimur áratugum
(1. tafla).
Enn sem komið er hafa ekki verið
gerðar miklar rannsóknir á áhrifum
framandi tegunda í sjó á innlendar
tegundir eða búsvæðið þar sem
þær taka sér bólfestu. Rannsóknir
hafa þó sýnt að sagþang og svif-
þörungurinn Heterosigma akashiwo
eru eða hafa verið ágengar hér við
land. Sagþang hefur orðið ríkjandi í
sínu búsvæði og þangtegundir sem
fyrir eru víkja,30,31 en H. akashiwo
olli miklum fiskidauða.13 Um aðrar
tegundir höfum við aðeins óbeinar
vísbendingar eða engar. Þrjár þeirra,
grjótkrabbi, sandrækja og flundra,
eru hugsanlega þegar orðnar
ágengar miðað við lifnaðarhætti
þessara tegunda, útbreiðslu þeirra
og hversu algengar þær eru orðnar.
Hafkyrja, sandskel, glærmöttull og
svifþörungategundin Mediopyxis
helysia gætu orðið ágengar í fram-
tíðinni þótt þær teljist það
ekki nú. Þessar tegundir
hafa orðið ágengar og
jafnvel valdið skaða þar
sem þær hafa numið land
annars staðar í heiminum.
Um aðrar tegundir vitum
við lítið.
Flutningsleið flestra
þessara tegunda hefur að
öllum líkindum verið kjöl-
festuvatn. Um fjórar þeirra,
þörungana sagþang, rauð-
skúf og hafkyrju og mött-
uldýrið glærmöttul, er þó
líklegra að þær hafi borist
sem ásætur á skipum, eða
hugsanlega á kjölfestu-
grjóti í tilfelli sagþangs.
Lítið er vitað með vissu
um hvaðan tegundirnar
bárust til landsins, en
þó má ráða af útbreiðslu
nokkurra þeirra hvaðan
þær koma. Sandrækja, og
hjartaskel lifa eingöngu
við strendur Evrópu og
hafa því borist þaðan.
Hins vegar hafði grjót-
krabbi einungis fundist
við austurströnd Norður-
Ameríku þar til hann
Tegund
Species
Fyrsti fundur
First recorded
Líkleg flutningsleið
Probable pathway
Ágeng
Invasive
Heimildir
References
Plöntusvif (phytoplankton)
Heterosigma akashiwo 1987, SV-land Skip – Shipping Já – Yes 17
Stephanopyxis turris 1997, SV-land Skip – Shipping Nei – No 20
Mediopyxis helysia 2007, V-land Skip – Shipping Nei – No*** 20
Botnþörungar (macroalgae)
Fucus serratus 1900,* SV-land Skip – Shipping Já – Yes 25
Bonnemaisonia hamifera 1964–75,** V-land Skip – Shipping Nei – No 32
Codium fragile 1974, SV-land Skip – Shipping Nei – No*** 35
Krabbadýr (crustacea)
Cancer irroratus 2006, SV-land Skip – Shipping Mögulega – Potentially 41
Crangon crangon 2003, SV-land Skip – Shipping Mögulega – Potentially 48
Orchestia gammarellus 1968, SV-land Skip – Shipping Nei – No 57
Praunus flexuosus 1970, SV-land Skip – Shipping Nei – No 61
Lindýr (mollusca)
Mya arenaria 1958, SV-land Skip – Shipping Nei – No*** 65
Cerastoderma edule 1948, SV-land Skip – Shipping Nei – No 65
Möttuldýr (tunicata)
Ciona intestinalis 2007, SV-land Skip – Shipping Nei – No*** 70
Fiskar (fish)
Platichthys flesus 1999, SV-land Skip – Shipping Mögulega – Potentially 77
Taurulus bubalis 2005, SV-land Skip – Shipping Nei – No 81
* Talið er að tegundin hafi verið flutt til landsins alllöngu fyrir 1900.26
** Ekki er getið um það í heimildinni hvenær á þessu tímabili tegundinni var safnað.32
*** Hefur orðið ágeng á öðrum hafsvæðum sem tegundin hefur verið flutt inn á.
1. tafla. Framandi sjávarlífverur við Ísland. – Alien marine organisms in Icelandic waters.