Náttúrufræðingurinn - 2015, Síða 12
Náttúrufræðingurinn
12
fannst hér við land og hlýtur því
að hafa borist hingað frá Ame-
ríku. Sagþang og fitjafló lifa bæði
við Evrópu og við vesturströnd
Norður-Ameríku en erfðarann-
sóknir benda til að stofnarnir við
Ísland séu upprunnir í Evrópu.26,60
Hvaðan aðrar tegundir hafa borist
er erfitt að meta. Flestra framandi
tegundanna varð fyrst vart við suð-
vesturhluta landsins þar sem skipa-
umferð er hvað mest. Hækkandi
sjávarhiti við Ísland á síðustu tutt-
ugu árum hefur haft í för með
sér breytingar á útbreiðslusvæðum
innlendra tegunda.14 og getur það
einnig hafa auðveldað framandi
tegundum að nema hér land, vaxa
og dreifa sér. Ekki er ólíklegt að við
strendur Íslands leynist fleiri fram-
andi tegundir en hér er fjallað um
og væri vel þegið að fá um það upp-
lýsingar ef fólk verður vart slíkra
tegunda. Á undanförnum árum
hefur þekkingu á framandi og eða
ágengum tegundum í Evrópu verið
safnað í opna gagnagrunna á ver-
aldarvefnum (sjá t.d. Nobanis, www.
nobanis.org, DAISIE, www.europe-ali-
ens.org, og AquaNIS, www.corpi.ku.lt/
databases/index.php/aquanis). Gagn-
legt getur verið að fylgjast þar
með nýjum framandi tegundum og
breytingum á útbreiðslu þeirra til að
fá hugmynd um hvaða tegundir má
búast við að nemi hér land.
Nokkur dæmi eru um að fram-
andi sjávarlífverur hafi verið fluttar
inn til eldis hér við land. Á seinni
árum hefur yfirvöldum orðið ljósari
sú hætta sem skapast getur af inn-
flutningi framandi tegunda fyrir
íslenskt lífríki. Innflutningsleyfi fyrir
eldislífverur hefur því yfirleitt verið
takmarkað við tegundir sem talið
er að lítil hætta sé á að geti lifað í
sjónum við Ísland. Hins vegar er
alltaf hætta á að með framandi eld-
istegundum berist óæskilegar fylgi-
tegundir sem ná fótfestu, og eru
mörg dæmi um það annars staðar frá.
Nánast ómögulegt er að losna
við ágengar sjávarlífverur eftir að
þær hafa náð að setjast að. Það er
einungis hægt ef gripið er í taumana
strax eftir að tegundin berst, meðan
útbreiðsla hennar er mjög lítil. Slíkar
eyðingaraðgerðir hafa yfirleitt gíf-
urlegan kostnað í för með sér.85,86,87,88
Þar sem helstu flutningsleiðir fram-
andi lífvera eru kunnar, og ljóst er
að áhrif af landnámi sumra þeirra
geta verið verulega neikvæð, liggur
beinast við að grípa til fyrirbyggj-
andi aðgerða til að draga úr líkum
á að þær berist hingað. Má segja
að fyrsta skrefið sem stigið hafi
verið í þá átt sé nýleg reglugerð um
bann við losun kjölfestuvatns (rg.
nr. 515/2010) til að varna innflutn-
ingi framandi tegunda með skipum.
Væntanleg gildistaka nýrra nátt-
úruverndarlaga mun einnig stuðla
að aukinni varkárni við innflutn-
ing sjávarlífvera til landsins, ef hún
verður að veruleika.
Líklega verður aldrei hægt að
koma að öllu leyti í veg fyrir inn-
flutning framandi sjávarlífvera til
landsins. Skilningur á lífsferlum og
lífsskilyrðum þessara tegunda þarf
á hinn bóginn að vera til staðar til að
hægt sé að meta möguleika þeirra á
að lifa í íslenskri náttúru og hugsan-
leg áhrif þeirra á íslenskt lífríki.
Summary
Alien marine species in Icelandic
waters
During recent decades fifteen intro-
duced marine species have been re-
corded in Icelandic waters. Amongst
them are six algal species, the phyto-
plankton species Heterosigma akashiwo,
Stephanopyxis turris, and Mediopyxis hely-
sia, the macroalgae Bonnemaisonia hamif-
era, Codium fragile and serrated wrack
Fucus serratus; four crustaceans, the
Atlantic rock crab Cancer irroratus, the
European brown shrimp Crangon cran-
gon, the amphipod Orchestia gamarellus
and the mysid Praunus flexuosus; two
molluscs , the Common cockle
Cerastoderma edule and the Sand gaper
Mya arenaria; the Sea vase tunicate Ciona
intestinalis; and two species of fish, the
European flounder Platichthys flesus and
the Long-spined sea scorpion Taurulus
bubalis. The majority of the species are
likely to have been transported to
Iceland with ships either as biofouling
on the outside hull or in ballast water.
Ballast stones or sand are proposed as a
possible means of transport for some
species.
Most of the introduced marine spe-
cies in Iceland are likely originated in
Europe, as has been confirmed for three
of the species by genetic comparisons
with populations elsewhere in the North
Atlantic. The Atlantic rock crab is the
only species that can be said with cer-
tainty to have been introduced from the
Northwest Atlantic. All the introduced
species have been found in littoral or
shallow water habitats.
Most of the introduced species were
first detected in south-western Iceland
where the sea temperature is highest and
the busiest harbours are located. In gen-
eral only a small part of introduced spe-
cies becomes invasive. Of the introduced
marine species in Iceland H. akashiwo,
the serrated wrack, Atlantic rock crab,
European brown shrimp, the Sea vase
tunicate, and the European flounder are
considered invasive or potentially inva-
sive.