Náttúrufræðingurinn - 2015, Page 21
21
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
er í góðu samræmi við erlendar
rannsóknir en tegundin er talin
sú algengasta í Evrópu.34 Hún var
ein útbreiddasta tegundin í norsku
rannsókninni sem áður er getið, og
fannst allt frá syðsta hluta Noregs
til þess nyrsta.33 Dreifingarhæfni
tegundarinnar er mikil þar sem hún
er tiltölulega ósérhæfð á búsvæði og
myndar auk þess flotblasta sem geta
borist víða og myndað ný sambýli.
Hún þrífst þó fremur illa í miklum
straumi ólíkt F. sultana sem oft var
ráðandi tegund á slíkum svæðum í
rannsókninni.3, 33
P. fungosa virðist talsvert algeng
í íslenskum vötnum. Hún fannst
í miklum mæli í Mývatni, Laxá í
Aðaldal, Mýrarkvísl og Hlíðarvatni
í Selvogi, þrátt fyrir takmarkaða
leit á þessum svæðum. Hún fannst
hins vegar hvorki í Hafravatni né
Vífilsstaðavatni þrátt fyrir ítarlega
rannsókn í þeim vötnum. Þetta er í
nokkru ósamræmi við rannsóknir
frá öðrum norðlægum slóðum.
Tegundin fannst ekki í vötnum
í Norður-Noregi og var sjaldséð
í vötnum í suðurhluta landsins.33
Hún hefur einungis fundist á
fáeinum stöðum í Svíþjóð og Finn-
landi, sem gæti skýrst af takmörk-
uðum rannsóknum, en er hins vegar
algeng í Danmörku og á öllum Bret-
landseyjum.31,35
Erfitt er að fullyrða út frá þessari
rannsókn hvort C. mucedo er algeng
eða sjaldgæf á Íslandi. Tegundin
fannst á einum stað í Elliðavatni.
Segja má að það hafi verið ákveðinni
hendingu háð því leit að dýrum þar
var takmörkuð. Tegundin er tals-
vert útbreidd í Evrópu og er sem
dæmi algeng um allan Noreg.33,34,36
Áður hefur verið greint frá tilvist
C. mucedo í Mývatni en í því til-
felli fannst einungis dvalarform
tegundarinnar en ekki dýrið sjálft.12
Þetta er því í fyrsta sinn sem sambýli
þessarar tegundar finnast á Íslandi.
Ein heimild greinir frá tilvist H.
punctata á Íslandi, líklega í Bakka-
tjörn á Seltjarnarnesi.11 Tegundin er
talin útbreidd um allan heim31,35 en
var þó afar fáséð í Noregi þar sem
hún fannst einungis á einum stað af
601 (0,17%), í suðurhluta Noregs.33
8. mynd. Mosadýrið Plumatella fungosa. (a) Dæmigert sambýlisform Plumatella fungosa.
Tegundin líkist nokkuð P. repens en vex þéttar og sýnir ekki „skriðvöxt“ í jafn ríkum mæli (b)
P. fungosa flotblasti (floatoblast). Kvarði = 150 µm. – The bryozoan species Plumatella
repens. (a) Typical colonial growth of P. fungosa. It resembles P. repens in many ways,
however its growth is denser and not as “crawling”. (b) Floatoblast of P. fungosa. Scale bar =
150 µm. Ljósm./Photos: Ragnhildur Þ. Magnúsdóttir
7. mynd. Mosadýrið Fredericella sultana. (a) Dæmigert runnalaga sambýlisform mosa-
dýrsins. (b) Stækkuð mynd af F. sultana með setblöstum. Kvarði = 200 µm. – The bryozoan
species Fredericella sultana. (a) Typical “bush-like” colonial growth of the species. (b) F. sult-
ana with statoblasts inside. Scale bar = 200 µm. Ljósm./Photos: Árni Kristmundsson.
6. mynd. Mosadýrið Plumatella repens. (a) Steinn þakinn dreifingarformi mosadýrsins
(blastar – floatoblasts); sumir eru byrjaðir að spíra en aðrir ekki. (b) Spíraðir blastar í meiri
stækkun. (c) Dæmigerð sambýlisform P. repens. Mosadýrið vex ekki ósvipað og skriðplanta. (d)
P. repens setblasti (sessoblast). Kvarði = 150 µm. – The bryozoan species Plumatella repens.
(a) A stone covered with bryozoan statoblasts. (b) Higher magnification of germinated
statoblasts. (c) Typical “crawling” growth of P. repens. (d) Sessoblast of P. repens. Scale bar =
150 µm. Ljósm./Photos: Árni Kristmundsson.