Náttúrufræðingurinn - 2015, Síða 22
Náttúrufræðingurinn
22
Í Noregi reyndust tegundir mosa-
dýra mjög mis-algengar, og fundust
sjaldnast á 0,17% rannssóknarsvæða
en oftast á 46% þeirra. Nokkrar
þær algengustu þar í landi, svo
sem Paludicella articulata, Pluma-
tella fruticosa og Fredericella indica,33
hafa ekki fundist hérlendis enn sem
komið er þótt flest bendi til þess
að skilyrði séu fyrir tilvist þeirra á
Íslandi.33 Aðrar tegundir, svo sem P.
repens, P. fungosa og F. sultana, virð-
ast hins vegar algengari á Íslandi en
í Noregi.33 Í ljósi alls þessa má telja
líklegt að með frekari rannsóknum
finnist fleiri tegundir mosadýra á
Íslandi.
Fram til loka níunda áratugar síð-
ustu aldar voru rannsóknir á mosa-
dýrum í ferskvatni hérlendis afar
takmarkaðar. Þetta sést berlega á því
að í almennum rannsóknum á smá-
dýralífi vatna eru mosadýr yfirleitt
ekki tekin með. Þetta er nokkuð sér-
stakt, ekki síst í ljósi þess hve algeng
þau eru og hvað lífmassi þeirra
getur orðið mikill með tilheyrandi
framlagi til hringrásar lífs í við-
komandi vistkerfum. Skýringarnar
eru vafalaust margar. Telja má lík-
legt að þetta stafi meðfram af útliti
dýranna og búsvæðavali þeirra.
Mörg mosadýr líkjast helst plöntum
eða mosum, svo sem tegundir af
ættkvíslum Fredericella og Pluma-
tella, en aðrar líkjast þörungum
eða svömpum eins og Cristatella-
tegundir. Auk þessa eru búsvæði
dýranna oft nokkuð vel falin og
dýrin því lítt sýnileg.
Skömmu fyrir aldamótin
2000 kom í ljós að mosadýr eru
nauðsynleg í lífsferli Tetracapsuloides
bryosalmonae, sníkjudýri sem veldur
PKD-nýrnasýki, alvarlegum sjúk-
dómi sem herjar á laxfiska, bæði
villta og í eldi.16 Þessi uppgötvun
varð til þess að mosadýr urðu vin-
sælt viðfangsefni til rannsókna og
hafa síðan birst fjölmargar greinar
um rannsóknir á mosadýrum, bæði
með tilliti til tegunda og útbreiðslu
en ekki síður í tengslum við sjúk-
dóminn.
Þessi hvati til rannsókna á
mosadýrum var ekki til staðar á
Íslandi fyrr en árið 2008 þegar
PKD-nýrnasýki greindist hér í
fyrsta sinn, og bleikja úr Elliða-
vatni sýndi einkenni sjúkdóms-
ins.24 Í kjölfar þessarar uppgötvunar
hafa umtalsverðar rannsóknir farið
fram á útbreiðslu sjúkdómsvalds-
ins og mögulegum áhrifum hans á
íslenska laxfiska. Sýna þær að sýk-
illinn er algengur í íslenskum lax-
fiskum.25 Til að skilja betur lífsferil
sníkjudýrsins og smitferli í íslensku
vistkerfi, og forsendur sýkinnar í
íslenskum vötnum, skortir tilfinn-
anlega á upplýsingar um mosadýr,
tegundir þeirra og útbreiðslu.
Rannsókn þessi er takmörkuð að
umfangi en bætir þó miklu við þá
þekkingu sem fyrir var á þessum
dýrahópi í íslensku ferskvatni.
Rannsóknin sýnir að mosadýr eru
útbreidd í íslensku ferskvatni, og var
tilvist þeirra staðfest í öllum vötnum
og ám sem rannsakaðar voru. Frek-
ari rannsóknir eru æskilegar en mik-
ilvægi þeirra mætti einkum skoða
í því ljósi að mosadýrategundir af
ættkvíslum Plumatella og Fredericella
eru almennt taldar mikilvægustu
millihýslar fyrir orsakavald PKD-
nýrnasýki.16,22,23 Tegundir af þessum
ættkvíslum voru algengastar í
þessari rannsókn. Í því sambandi
væri gagnlegt að vita hver smittíðni
T. bryosalmonae er í tegundum mosa-
dýra í mismunandi vatnakerfum,
og einnig hvenær árs og við hvaða
umhverfisskilyrði slíkt smit berst
frá mosadýrum yfir í laxfiska. Slíkar
upplýsingar gæfu vísbendingar um
það á hvaða tíma sumars búast
má við að PKD-sýki komi upp í
laxfiskum mismunandi vatnakerfa.
Auk rannsókna í tengslum við PKD-
nýrnasýki væri gagnlegt að afla
frekari upplýsinga um tegundafjöl-
breytni þessa dýrahóps á Íslandi.
Af þessu má ljóst vera að margt er
enn óljóst á þessu sviði og því full
ástæða til frekari rannsókna.
Abstract
Bryozoans in Icelandic freshwater
– a basis for Proliferative Kidney
Disease in salmonids
Bryozoans are a group of small benthic
aquatic invertebrates, which have re-
ceived little attention in Iceland. They
grow on submerged objects as colonies
of identical individuals, which in many
ways resemble plants or algae more
than animals. In the late 1990s it became
clear that these animals served as inter-
mediate host for a serious myxozoan
pathogen of salmonids, Tetracapsuloides
bryosalmonae, the causative agent of
Proliferative Kidney Disease (PKD).
This disease, which has been known in
Europe and N-America for decades, was
first reported in Icelandic salmonids in
2008. The aim of the present work was to
survey the species diversity and distri-
bution of bryozoans in Icelandic fresh-
water and simultaneously gain knowl-
edge for the basis of PKD in salmonids
in Iceland. In order to achieve that, two
lakes, Lake Vífilsstaðavatn and Lake
Hafravatn in SW-Iceland, were system-
atically searched for the bryozoan colo-
nies. In addition, their presence was also,
to a minor extent, studied in 12 further
lakes and eight rivers (Fig. 2).
Plumatella repens and Fredericella sul-
tana were common in both Lake
Vífilsstaðavatn and Lake Hafravatn
(Figs. 3, 4 and 5); the distribution of P.
repens was broader, especially in Lake
Vífilsstaðavatn. F. sultana was most com-
mon in the outflow of the lakes where
the chance of turbidity was at minimum
while P. repens seemed more nonspecific
with regards to habitat. In the other
lakes and rivers, two further species, P.
fungosa and Cristatella mucedo were ob-
served; the former in three lakes and
two rivers and the latter merely in one
lake. P. repens was present in all the lakes
and rivers and F. sultana as well, with
the exception of one lake. All species
found have been reported from Iceland
before and are common in other
European countries.
Species of the genera Plumatella and
Fredericella are apparently common in-
habitants of Icelandic freshwater and
they are generally considered the most
important hosts for T. bryosalmonae, the
causative agent of PKD. Consequently,
there generally seems to be a good basis
for the presence of T. bryosalmonae in
salmonids in Icelandic lakes. Further
studies would probably reveal the pres-
ence of additional bryozoan species in
Icelandic freshwater.