Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2015, Page 29

Náttúrufræðingurinn - 2015, Page 29
29 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags vitneskju hefur lítið verið fengist við að kanna hvernig atferli þessara fiska tengist búsvæðanotkun þeirra eða útbreiðslu hérlendis. Seiði laxfiska sýna mikinn einstaklings-, stofna- og tegunda- breytileika í atferli við fæðunám og varnir óðala.3,9,10 Í lygnu vatni þar sem lítið er um fæðu á reki í vatns- bolnum reyna fiskarnir að ná fæð- unni með því að ferðast um í leit að botnlægri eða hnappdreifðri fæðu.10 Í miklum straumi geta fiskar hins vegar sparað sér orku með því að halda kyrru fyrir og skima eftir bráð sem berst með straumnum.10 Í ám helga seiði laxfiska sér oft óðul (e. territory) til að tryggja aðgang að fæðunni, og verja þau með því að ráðast á aðra laxfiska, oft í útjaðri svæðisins. Hjá laxfiskum er iðu- lega sterkt samband á milli stærðar þess svæðis sem varið er og þess athafnasvæðis (e. home range) sem notað er til fæðunáms á hverjum degi.11,12 Þar sem það krefst veru- legrar orku að verja stór óðul er talið að þegar fæðuframboð er mikið láti seiði sér nægja smærri óðul sem auðveldara er að verja.13 Samkvæmt þessum hugmyndum og því sem vitað er um búsvæðanotkun lax- fiska má búast við að af íslensku tegundunum þremur hreyfi bleikja sig mest við fæðuleit og verji stærri óðul en bæði urriði og sérstaklega lax, sem ætti að sýna minnstan hreyfanleika (2. mynd). Þá er líka talið að stærri fiskar þurfi stærri óðul til að tryggja sér næga fæðu,11 og að fiskar verji minni óðul þar sem samkeppni er meiri vegna aukinnar vinnu við varnir þeirra.13 Markmið rannsóknanna sem hér eru kynntar var að lýsa fæðu- og óðalsatferli ungra bleikju-, urriða- og laxaseiða í ám, og athuga hvernig það tengist búsvæðanotkun tegundanna og mótar útbreiðslu þeirra. Búsvæðanotkun tegundanna þriggja er athuguð. Við búumst við að bleikju sé að finna í lygnasta vatninu, laxinn í mesta straumnum og urriðann þar á milli. Þá er kann- aður breytileiki í fæðuatferli á milli einstaklinga, stofna og tegunda, og tengsl þess við straumhraða. Hér 2. mynd. Fræðileg tengsl óðals- og fæðuatferlis við búsvæðanotkun hjá bleikju-, urriða- og laxa- seiðum í ám. Samkvæmt tilgátunni eiga laxfiskar að hreyfa sig minna við fæðuleit og verja minni óðul með auknum straumhraða og meiri fæðu. – Hypothetical relationships among ter- ritorial behaviour, foraging mode and habitat use for juvenile Arctic charr, brown trout and Atlantic salmon. As water current velocity and food availability increase, salmonids should be less mobile during search for prey and defend smaller territories. 3. mynd. Rannsóknasvæði í ellefu ám þar sem kortlagt var fæðuatferli (1–10) og óðalsatferli (2, 3, 5, 6, 7, 11) hjá vorgömlum (0+) bleikjum (1–4, 11), urriða (5–7) og laxi (8–10). Árnar eru: 1. Brúnastaðaá, 2. Deildará, 3. Myllulækur, 4. Norðurá, 5. Húseyjarkvísl, 6. Þverá, 7. Fremri- Laxá, 8. Laxá á Ásum, 9. Mýrarkvísl, 10. Tunguá, 11. Laxá í Skefilsstaðahreppi. – Study locations in eleven streams used to measure foraging mode (1–10) and territorial behaviour (2, 3, 5, 6, 7, 11) in young-of-the-year Arctic charr (1–4, 11), brown trout (5–7) and Atlantic salmon (8–10). The streams used are: 1. Brúnastaðaá, 2. Deildará, 3. Myllulækur, 4. Norðurá, 5. Húseyjarkvísl, 6. Þverá, 7. Fremri-Laxá, 8. Laxá á Ásum, 9. Mýrarkvísl, 10. Tunguá, 11. Laxá í Skefilsstaðahreppi. This figure is redrawn and modifed from an earlier publication.14

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.