Náttúrufræðingurinn - 2015, Blaðsíða 30
Náttúrufræðingurinn
30
spáum við því að bleikja hreyfi sig
mest við fæðuleit, laxinn hreyfi
sig minnst og urriði sé þar á milli.
Að lokum er stærð óðala og vörn
þeirra lýst hjá bleikju og urriða og
kannað hvernig óðalsstærð tengist
vistfræðilegum breytum á borð við
fæðuframboð, stærð einstaklinga og
samkeppni.
Aðferðir og aðstaða
Almennar upplýsingar og rann-
sóknasvæði
Þær niðurstöður sem hér eru
kynntar koma úr tveimur að-
skildum rannsóknum.14,15 Gögnum
var safnað um fæðuatferli 2005 og
2006 en um óðalsatferli 2007 og
2008. Öll gagnasöfnun fór fram að
sumarlagi í misjafnlega frjósömum
og vatnsmiklum dragám á Norð-
urlandi (3. mynd).16 Fylgst var með
fæðuatferli 153 seiða á fyrsta sumri
(0+ aldur) (61 bleikja, 42 urriðar og
50 laxar) í tíu ám en með óðalsatferli
hjá 61 seiði (31 bleikja og 30 urriðar)
í sex ám. Gögnum var safnað fyrir
eina tegund í hverri á og á svæðum
þar sem hún var ríkjandi. Fylgst
var með fiskum við eins breytilegar
aðstæður fyrir hverja tegund og
mögulegt var, svo sem hvað varðar
straumhraða, dýpi og fæðuframboð.
Atferlismælingar
Fylgst var með atferli fiska með yf-
irborðsköfun í ánni eða frá árbakk-
anum (4. mynd). Atferlið var ým-
ist skráð beint á blað, lýst í smáat-
riðum á hljóðupptökutæki eða tekið
upp á myndband. Fiskar fengu að
venjast nærveru skrásetjara í 5–15
mínútur áður en mælingar hófust.
Fæðuatferli var skráð fyrir hvern
fisk í 10–20 mínútur en óðalsatferli
í 37–43 mínútur. Í rannsóknunum
var bæði unnið með merkta og
ómerkta fiska. Fiskar voru veiddir
með háfum, svæfðir og í suma
þeirra sett sjálflýsandi litarmerki
undir húð á tveimur af sex mögu-
legum svæðum í stirtlu og við rætur
bak- og eyrugga (4. mynd).17 Fisk-
unum var síðan sleppt þar sem þeir
voru veiddir. Atferli merktra fiska
var skráð í fyrsta lagi 24 stundum
eftir að þeim var sleppt. Lengd
allra fiska var metin úr fjarlægð,
og lengd veiddra fiska var mæld á
meðan á svæfingu stóð. Sterk fylgni
(R2 = 0,892; P < 0,001) var á milli
metinnar og mældrar lengdar, fyrir
þá fiska þar sem báðum aðferðum
var beitt.14
Fæðuatferli var metið með því
að fylgjast með hverjum einstak-
lingi yfir 5 sekúndna tímabil í senn
og skrá atferlið á næsta 5 sekúndna
tímabili.18 Fyrir hvert 5 sekúndna
tímabil var skráð (1) hversu oft
fiskurinn réðst á bráð, (2) hversu
langt fiskurinn synti (metið í fjölda
líkamslengda), (3) hvort fiskurinn
réðst á bráð á botni, í vatnsbol eða á
yfirborði, og (4) hvort hann réðst á
annan fisk til varnar eða ráðist var á
hann. Hvert 5 sekúndna tímabil var
flokkað í fæðutímabil þegar fiskur
réðst á bráð, árásartímabil þegar um
árásaratferli var að ræða og leitar-
tímabil þegar fiskur réðst hvorki á
bráð né á aðra fiska. Leitartímabil
voru flokkuð sem „hreyfanleg“ ef
fiskur synti lengra en eina líkams-
lengd.18 Fyrir hvern fisk var hreyf-
anleiki við fæðuleit því reiknaður
sem hlutfall „hreyfanlegra“ leit-
artímabila af heildarfjölda leitar-
tímabila. Á svipaðan hátt var fjöldi
árása á bráð á botni, í vatnsbol og á
yfirborði reiknaður sem hlutfall af
heildarfjölda fæðuárása.
Til að mæla óðalsstærð var sett
hnitakerfi á árbotninn a.m.k. degi
áður en atferli var mælt (4. mynd).
Hnitakerfið samanstóð af 1 m
löngum og 8 mm breiðum málm-
stöngum sem voru merktar með
gráu límbandi með 10 cm milli-
bili og lagðar samhliða eða horn-
rétt hver á aðra eftir þörfum (4.
mynd).15 Þar sem fiskur hélt til á
ákveðnum stöðum (fæðustöðvum),
einum eða fleiri, og réðst þaðan
á bráð eða varði óðal sitt, var x-y
hnit hvers atviks metið út frá stað-
setningu hverrar stöðvar, og lengd
(í líkamslengdum) og stefnu (sbr.
1–12 á klukku) hverrar árásar.12
Þegar fiskur synti um við fæðuleit
og var ekki bundinn við fastar
4. mynd. a. Í dýpra, straumharðara vatni var fylgst með atferli fiska með yfirborðsköfun. b. Oft-
ast var fylgst með atferli frá árbakkanum. c. Urriðaseiði með tvö sjálflýsandi merki, grænt og
appelsínugult, í bakugga. d. Óðalsstærð var metin með hjálp hnitakerfis. – a. In deeper, faster-
running water fish behaviour was observed via snorkeling. b. Most often behaviour was mon-
itored from the riverbank. c. Young-of-the-year brown trout with two fluorescent tags, green
and orange, in the dorsal fin. d. Territory size was estimated with the aid of a coordinate grid.
Ljósm./Photo: Stefán Óli Steingrímsson.