Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2015, Side 46

Náttúrufræðingurinn - 2015, Side 46
Náttúrufræðingurinn 46 Élja- og seltuveðrið 10. janúar 2012 Í hvössum álandsvindi berast saltagnir úr hafinu í andrúmsloftið og þaðan inn yfir landið. Sum mannvirki, svo sem einangrarar háspennulína, eru við- kvæm fyrir seltu. Ef seltan er samfara élja- eða skúraveðri er seltuáraunin jafnan ekki mikil þar sem seltan nær ekki að safnast upp. Í þeim tilvikum sem seltuáraunin verður talsverð getur hún aftur á móti valdið rafmagns- truflunum, jafnvel á stóru svæði. Hinn 10. janúar 2012 gerði mikið éljaveður yfir Vesturlandi í útsynningi. Þegar leið á daginn dró úr éljunum. Þá tók salt að safnast á einangrara háspennulína í spennuvirki Landsnets á Brennimel í Hvalfirði með þeim afleiðingum að skammhlaup varð og olli miklum raf- magnstruflunum. Rafmagnsnotendur um allt land urðu varir við spennuflökt og truflanir. Guðrún Nína Petersen og Einar Sveinbjörnsson Náttúrufræðingurinn 85 (1–2), bls. 46–53, 2015 Ritrýnd grein Inngangur Miklar truflanir geta orðið á flutn- ingi raforku um landið af völdum seltu í lofti sem berst með vindum af hafi. Yfir landi nálægt strönd er ávallt töluvert magn saltagna í and- rúmsloftinu, einkum þegar blæs af sjónum, og þá bætast gjarnan við saltagnir vegna brims við ströndina þegar þurrt er í veðri. Seltuáraun getur orðið töluverð þegar seltan berst á land og ekki fylgir úrkoma. Dæmi eru um að selta hafi hlað- ist tiltölulega skjótt á einangrara háspennulína og valdið skamm- 1. mynd. Innrauð veðurtunglamynd 10. jan- úar 2012 kl. 05.14. Hvítur litur táknar mjög köld ský, þ.e. hátt uppi í andrúmsloftinu. Slík ský sjást myndast við suðausturströnd Græn- lands, og eru merki um mikla lóðrétta bylgju á svæðinu. Yfir suðurhluta jöklulsins má greina skýjaslæðu samhliða vindinum. Á Grænlandshafi vestanverðu, næst ströndinni, er léttskýjað en á leið loftsins yfir hafið í aust- urátt myndast éljaklakkar. Norðaustur af Ís- landi er lægð á norðurleið. – An infrared satellite image from 10 January 2012 05:14 UTC. The white colour represents very cold cloud tops, i.e. at higher levels. Such clouds can be detected forming by the southeast coast of Greenland. They indicate a large vertical wave in the region. Over the southern part of the ice sheet, clouds are parallel to the wind direction. Over the western part of the Irminger Sea, close to the coast, the skies are fair but cumulonimbus clouds are forming over ocean. Northeast of Iceland is a cyclone moving northward.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.