Náttúrufræðingurinn - 2015, Blaðsíða 49
49
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
olli. Þetta seltuveður var óvenjulegt
fyrir margra hluta sakir, ekki síst
vegna þess að mesta áraunin var
staðbundin, við Faxaflóa, og vegna
þess að svo virðist sem seltan hafi
hlaðist mjög skjótt á einangrara við
framrás lofts sem ættað var ofan af
Grænlandi. Síðdegis hinn 10. janúar
2012 urðu miklar rafmagnstrufl-
anir á Vesturlandi, og leiddu þær
m.a. til tímabundinnar stöðvunar
í Hellisheiðarvirkjun og straum-
leysis í álveri Norðuráls og hjá Járn-
blendifélagi Íslands.9 Ástæða trufl-
ananna var selta sem barst inn yfir
landið í hvassri vestanátt og settist á
einangrara háspennulína á sunnan-
og vestanverðu landinu. Undanfari
þessa atburðar var mikið éljaveður
yfir Vesturlandi sem hófst á mið-
nætti og stóð fram á eftirmiðdag.
Veðuraðstæður
10. janúar 2012
Élja- og skúraveður í útsynningi
eru algeng á vestanverðu landinu.
Skúra- og éljaklakkar myndast þá
yfir Grænlandshafi þegar kalt loft
streymir yfir hlýjan sjó og berast
stöðugt nýir klakkar að landi með
élja- eða skúrahryðjum.
Hinn 10. janúar 2012 lá í efri
loftlögum angi háloftavindrastar
frá Labrador yfir Grænland og til
Íslands þar sem anginn sameinað-
ist meginröstinni (3. mynd). Við
yfirborð var hins vegar hæðar-
hryggur yfir syðri hluta Grænlands
og kröpp lægð undan Norðaust-
urlandi á hraðri ferð til norðnorð-
austurs. Önnur en grynnri lægð var
á sama tíma á leið norður Græn-
landssund og sameinaðist þeirri
dýpri síðdegis (4. mynd). Þessi
veðrakerfi stjórnuðu vissulega
stöðu og styrk lágrastar (e. low-level
jet) vestur af Grænlandsjökli og yfir
Grænlandshafi en samt má segja
að stóru drættirnir hafi verið lagðir
í háloftunum. Lágröstin af Græn-
landi var ekki eiginlegur fallvindur,
í þeirri merkingu að loft streymi
niður hlíðarnar vegna eigin þunga,
heldur beindist kalt loft yfir jökul-
inn. Hinn rúmlega 3000 metra hái
Grænlandsjökull í vestri er allajafna
6. mynd. Ferill loftagnar í 200 m h.y.s. kl. 18 hinn 10. janúar reiknaður aftur á bak. Sjá má að
12 klst. fyrr, kl. 06, var ögnin við Austur-Grænland og hafði hafið lækkunina af jöklinum. Loft-
ið hlýnaði við niðurstreymið og reiknaðist rakastig þess vera undir 30% nærri sjávarmáli. Á ferð
sinni yfir hafið bætti loftið svo stöðugt við sig raka. Gögn frá NOAA, bandarísku lofts- og haf-
rannsóknastofnuninni (National Oceanic and Atmospheric Administration). – The back-trajec-
tories of an air parcel that was at 200 m a.s.l. 10 January 2012 18 UTC. 12 hours earlier, at 06
UTC, the air parcel was over the East-Greenland coast having started the decent from the ice
sheet towards sea level. The air parcel warmed up as it descended and the calculated relative
humidity was less than 30% near sea level. While travelling over the ocean the humidity gradu-
ally increased. Data from NOAA (National Oceanic and Atmospheric Administration).
regndropum. Í köldum skýjum gera
ískjarnar (e. ice condensation nuclei,
ICN) sama gagn en á þeim þéttist
vatn og myndar að lokum ískrist-
alla. Þó að saltagnir geti nýst sem
skýjakjarnar við myndun hlýrra
skýja er ekki ljóst hve mikilvægar
þær eru við myndun klakkaúr-
komu þegar skýin eru köld. Ekki
er víst að þær agnir sem virka vel
sem skýjakjarnar virki líka vel sem
ískjarnar, og agnir sem virka vel sem
ískjarnar við tiltekinn hita geta verið
óvirkar við annað hitastig. Leiragnir
og ýmsar lífrænar agnir eru dæmi
um virka ískjarna og ekki er ólík-
legt að leiragnir finnist t.d. í ein-
hverju magni í lofti sem streymir frá
Grænlandi. Í hvassri vestanátt frá
Grænlandi yfir Grænlandshaf gætu
þessar agnir því gegnt hlutverki í
élja- og skúraklakkaframleiðslu.
Hér er fjallað um élja- og seltu-
veður sem átti sér stað í janúar
2012. Veðuraðstæðum er lýst ásamt
þeim afleiðingum sem seltuáraunin