Náttúrufræðingurinn - 2015, Qupperneq 56
Náttúrufræðingurinn
56
og 29 bleikjur vorið 2006. Merk-
ingarnar fóru fram 3. maí 2005
og 24.–25. apríl 2006. Bleikjurnar
voru 26,5–49,0 cm langar (3. mynd).
Fiskar til merkingar voru fangaðir
með lagnetum sem lögð voru út frá
suðurströnd Nýpslóns (2. mynd).
Netin voru vöktuð og fiskur tekinn
úr þeim jafnóðum og hann ánetj-
aðist til að koma í veg fyrir að hann
skaðaðist.
Hlustunarduflum var komið fyrir
á merkingardegi bæði árin. Haustið
2005 voru þau tekin upp 7. október
og 3. október haustið 2006. Síritandi
hita- og seltumælar voru við hlust-
unardufl 4 til 7 allan rannsóknartím-
ann árið 2006 og frá 8. júní árið 2005.
Einnig var síriti neðst í Vesturdalsá
(við dufl númer 3) árið 2006. Síritarnir
voru af gerðinni DST CT. Þeir skráðu
vatnshita og seltu tvisvar á klukku-
stund sumarið 2005 og þrisvar á
klukkustund árið 2006. Síriti við ós
Vesturdalsár (við dufl númer 4) bilaði
árið 2005. Árið 2006 slitnuðu festingar
þess dufls um miðjan júlí og rak það
upp í fjöru. Við upptöku 2006 kom
auk þess í ljós að dufl í ósi Nýpslóns
(númer 8) hafði grafist í sand og er
hugsanlegt að einhverjar skráningar
hafi tapast vegna þess.
Niðurstöður
Selta í Skógalóni var mjög breyti-
leg, bæði eftir stöðum og tíma. Hún
var minni í maí þegar vorleysingar
stóðu yfir en að jafnaði á öðrum
tímum árs. Um miðjan maí fór
seltan að aukast og var orðin 25–
30‰ á öllum mælistöðum um mitt
sumar (4. mynd).
Hlutfallslegur fjöldi skráninga í
hlustunarduflum var mismunandi
milli svæða eftir tímabilum, en í
rannsókninni voru alls vistaðar um
332.500 merkjasendingar í hlustun-
arduflin. Fyrst eftir merkingu kom
allnokkurt hlutfall skráninga fram
uppi í Vesturdalsá (23 og 46% skrán-
inga eftir árum) en minnkaði þegar
á leið (5. mynd). Í kjölfarið jókst
vægi dufla sem lágu miðsvæðis og
utarlega í Skógalóni, og skráningar
fóru að koma fram á duflum í sjó.
Á síðari hluta rannsóknartímans
hækkaði hlutfall skráninga í ánni á
ný. Þetta sést betur í gögnunum frá
2006, enda eru fleiri fiskar að baki
þeim gögnum en árið 2005. Athygl-
isvert er að fjöldi skráninga í dufli 5
var rúmlega tvöfalt meiri en í dufli
6, en duflin voru bæði miðsvæðis í
lóninu, annað sunnanmegin (dufl 5)
en hitt norðanmegin (dufl 6). Fyrst
eftir merkingu heyrðust sendingar
frá öllum merktum bleikjum, en
þeim fór síðan fækkandi bæði árin
eftir því sem lengra leið frá merk-
ingu. Eftir miðjan júlí og til hausts
náðust sendingar frá alls 9 bleikjum.
Þannig var mjög mismunandi
hversu lengi sendingar náðust frá
einstökum fiskum, en í nokkrum til-
fellum náðust ferlar yfir lengri tíma
og lauk ekki fyrr en fiskurinn var
kominn upp í á (6. mynd).
Engar skráningar komu fram í sjó
eftir 26. júlí 2005 og 18. júlí 2006. Síð-
ustu merkjasendingar í Skógalóni
4. mynd. Vatnshiti og selta við hljóðdufl 5 og 6 í Nýpslóni frá 22. apríl til 6. október 2006. – Water temperature and salinity of Lagoon Skógalón
at receivers 5 and 6 from 22 April until 6 October 2006.
5. mynd. Hlutfallsleg skipting skráninga milli hlustunardufla í Vesturdalsá, í Skógalóni (4–7) og í sjó, skipt eftir tímabilum. n sýnir fjölda
einstaklinga sem sendingar náðust frá á viðkomandi tímabili og talan í sviga er heildarfjöldi skráninga. – The proportion of signals received by
the receivers located in River Vesturdalsá, Lagoon Skógalón and in the sea, divided by periods. n is the number of individuals signals received
from and the total number of signals received is in parenthesis.