Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Náttúrufræðingurinn - 2015, Qupperneq 77

Náttúrufræðingurinn - 2015, Qupperneq 77
77 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags hátt, annars vegar með fjörusniði og hins vegar með leirusniði. Tekið var eitt fjörusnið (F1) 15. júní 2006 og önnur snið (F2 og F3) 21.–22. ágúst 2006. Á hverju fjörusniði voru tekin sýni á fimm stöðvum með um 40–50 cm hæðarbili. Efsta stöðin var ákveðin þar sem klettadoppur (Littorina saxa- tilis) voru. Mæld var hæð hverrar stöðvar og fjarlægðir á milli þeirra. Lagðir voru út þrír 1 m2 rammar á hverri stöð og öllu lýst innan þeirra. Inn í hvern ramma var settur 20×20 cm rammi og allt þang innan þeirra skorið meðfram brún rammans og sett í plastpoka. Undirlagið var síðan skafið upp með skeið og sett í ílát. Niðurstöður sýna meðaltal allra stöðva á hverju sniði. Valin voru tvö snið á leiru, á Lambadalseyri og inni í botni fjarðarins. Á hvoru sniði voru þrjár stöðvar og var neðsta stöðin höfð eins neðarlega í fjörunni og hægt var. Notaðir voru 20×20 cm rammar sem þrýst var niður um 5 cm ofan í leirinn. Öllu lausu efni innan hvers ramma var síðan mokað upp í ílát. Framsetning gagna Fyrir fjöru- og leirusniðin var reiknað meðaltal fyrir hverja tegund af öllum stöðvum á hverju sniði. Í sumum tilvikum er notuð hærri flokkun, svo sem ættir, flokkur eða fylking. Til einföldunar verður hugtakið hópur notað hér eftir um hærri flokkun. Fyrir botnsýnin voru skilgreind fjögur svæði og reiknað meðaltal hópa/tegunda á stöðvum innan svæðis. Þetta er gert fyrir bæði árið 1985 og 2007. Fyrir árið 1985 er skiptingin þannig: Á svæði 2 eru stöðvar 7, 8 og 9, á svæði 3 eru stöðvar 5 og 6, og á svæði 4 eru stöðvar 1, 2 og 3. Fyrir árið 2007 er skiptingin þannig: Á svæði 1 er stöð I, á svæði 2 eru stöðvar F, G og H, á svæði 3 eru stöðvar D og E, og á svæði 4 eru stöðvar A, B og C. Svæðin eru síðan borin saman. Varðveisla og úrvinnsla Hryggleysingjasýnin, bæði botn- og fjörusýni, voru fest í formalíni (5– 10%) og bóraxi bætt út í til að skeljar skeldýra leystust ekki upp. Forma- líni var síðan hellt af sýnunum eftir nokkra daga og alkóhól (70%) sett í staðinn. Þangsýni voru fryst. Í rannsóknarstofu var þangið þítt og dýr skoluð af. Þangið var greint til tegunda og vigtað (blautvigt). Sýnin voru sigtuð varlega í vatni, botnsýni með 0,5 mm sigti en fjörusýni með 1 mm sigti, eins og í fyrri rannsókn. Dýr voru flokkuð undir víðsjá (Leica MZ 6 og/eða MZ 12), greind til tegunda eða hópa með hjálp greiningarlykla og talin. Fjöldi dýra var reiknaður á fermetra til að auð- velda samanburð. Vísindanöfn eru í samræmi við World Register of Marine Species (WoRMS) (sjá á www. marinespecies.org). 1. tafla. Númer stöðva og staður. – The sampling stations numbers and positions. 4. mynd. Leirusnið 1 (L1). – Transect 1 on mudflats. Ljósm./Photo: Böðvar Þórisson. Búsvæði − Habitat Nr. stöðva 1985 No. stations 2006 − 2007 Svæði Area Örnefni Name Hnit Coordination Botn – Bottom I 1 Lambadalseyri N65 51.192 V23 18.663 Botn – Bottom 2 H 2 Kjaransstaðareyri N65 51.037 V23 17.353 Botn – Bottom 3 G 2 Kjaransstaðareyri N65 50.970 V23 17.285 Botn – Bottom 4 F 2 Kjaransstaðareyri N65 50.942 V23 16.977 Botn – Bottom 5 E 3 Valseyri N65 50.625 V23 15.353 Botn – Bottom 6 D 3 Valseyri-Drangar N65 50.503 V23 14.598 Botn – Bottom 7 A 4 Drangar N65 50.330 V23 13.012 Botn – Bottom 8 B 4 Drangar N65 50.332 V23 12.865 Botn – Bottom 9 C 4 Drangar N65 50.445 V23 12.608 Fjara - Shore 9 F1 Næfranes N65 52.078 V23 22.047 Fjara - Shore 10 F2 Innan Lambadalsár N65 51.353 V23 17.736 Fjara - Shore 1 F3 Innan Valseyrar N65 50.824 V23 14.568 Leira - Mudflat 8 L1 Lambadalseyri N65 51.479 V23 18.677 Leira - Mudflat 3 L2 Botn N65 50.480 V23 12.046
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.