Náttúrufræðingurinn - 2016, Page 9
9
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
og þéttleiki lúpínu voru notaðar sem
skýringarbreytur í greiningunni.
Tegundum sem komu aðeins fyrir
einu sinni eða tvisvar í gagnasafninu
var sleppt til að takmarka áhrif mjög
sjaldgæfra tegunda á niðurstöðurnar
og byggðist hnitunargreiningin
því á 47 tegundum æðplantna.
Gögnunum var umbreytt með
náttúrulegum lógaritma (ln(Ay + B)).
Hnitunargreiningin var gerð með
forritinu Canoco fyrir Windows,
útg. 4.5.
Niðurstöður
Árið 2010 tóku aðgerðir gegn lúpínu
í hverjum 100 m2 reit að jafnaði
9–10 mínútur og var ekki munur á
því hvort slegið var eða eitrað fyrir
lúpínu.
Þekja lúpínu í ómeðhöndluðum
reitum var um 85%, sem er nálægt
mögulegri hámarksþekju vegna
þekjukvarðans sem notaður var
(87,5%, miðgildi einkunnar 8).
Lúpína hafði hins vegar gefið
verulega eftir bæði í slegnum og
eitruðum reitum ári eftir upphaf
aðgerða (2011) og eftir fimm ár var
þekja hennar marktækt minni en í
ómeðhöndluðu reitunum (2. mynd
og 3. mynd A). Þekja lúpínu var
svipuð í eitruðu reitunum 2011
og 2015 en var minni í seinni
mælingunni í slegnu reitunum.
Samspil á milli tíma og meðferða
var marktækt (2. tafla).
Þéttleiki blómstrandi lúpínu-
plantna fylgdi svipuðu mynstri og
þekjan (3. mynd B, 2. tafla). Ári eftir
fyrstu aðgerðir var þéttleiki minni
3. mynd. Meðalþekja (A), meðalþéttleiki blómstrandi lúpínuplantna (B) og kímplantna (C) í tilraunareitum í Stykkishólmi, einu og fimm
árum eftir að aðgerðir til að eyða lúpínu hófust. Heil lína á milli punkta táknar að marktæk breyting hafi orðið á meðaltali einstakra
meðferða frá 2011 til 2015 en ekki var marktækur munur árið 2015 á þeim meðferðum sem merktar eru með sama bókstaf (P>0,05). –
Average cover (A), density of mature plants (B) and density of cotyledonary seedlings (C) of lupine in experimental plots in Stykkishólmur,
West Iceland, one and five years after initiation of annual removal of lupine treatments. Significant change between 2011 and 2015 is
indicated with a solid line, and treatments not significantly different in 2015 are given the same letter (P>0.05).
Blokk
Block
F(4, 8)
Meðferð (M)
Treatment
F(2, 8)
Tími (T)
Time
F(1, 12)
M × T
F(2, 12)
Þéttleiki lúpínuplantna / Lupine density
Blómstrandi / Flowering 0,9 82,5*** 0,4 4,7*
Ungplöntur / Young plants 0,9 1,5 0,1 2,1
Kímplöntur / Seedlings 1,6 6,2* 39,1*** 0,8
Tegundaauðgi / Species richness
Í ramma (0,25 m2) / Quadrat scale (0.25 m2) 1,3 15,1** 33,5*** 16,3***
Í reit (100 m2) / Plot scale (100 m2) 1,1 27,5*** 31,6*** 19,2***
Þekja / % Cover
Lifandi gróður / Vegetation 1,6 95,6*** 19,9*** 15,7***
Sina / Litter 1,0 17,2** 20,8*** 15,7***
Ógróið yfirborð / Bare ground 1,3 16,6** 11,9** 13,9***
Mosar / Mosses 7,5** 4,6* 0,4 0,7
Lúpína / Lupine 2,2 147,7*** 7,7* 7,9**
Aðrar tvíkímblaða jurtir / Herbs other than lupine 2,0 5,7* 23,4*** 7,0**
Grös / Grasses 3,5 224,2*** 204,6*** 133,1***
Hærur og sef / Rushes and sedges 0,7 1,8 0,8 1,3
2. tafla. Niðurstöður fervika-
greininga á áhrif meðferða (slegin,
eitruð eða ómeðhöndluð lúpínu-
breiða) á mismunandi breytur
2011 og 2015 (endurteknar
mælingar). Hver blokk inni heldur
þrjá reiti, einn af hverri gerð;
slegið, eitrað og ómeðhöndlað.
Frítölur fyrir F-próf eru gefnar
innan sviga. ***: P≤0,001; **:
0,001<P≤0,01 og *: 0,01<P≤0,05.
– Results of ANOVA for the effects
of treatments (cut, herbicide and
untreated) on various vegetation
parameters 2011 and 2015
(repeated measures). Each block
contains three plots; cut, herbicide
and untreated. Degrees of freedom
for F-tests are shown in
parentheses. ***: P≤0,001; **:
0,001<P≤0,01 og *: 0,01<P≤0,05.