Náttúrufræðingurinn - 2016, Síða 10
Náttúrufræðingurinn
10
4. mynd. Meðalþekja lifandi gróðurs (A), hlutfall ógróins yfirborðs (B), og meðalþekja sinu (C), grasa (D), tvíkímblaða jurta annarra en
lúpínu (E) og mosa (F) í tilraunareitum í Stykkishólmi einu og fimm árum eftir að aðgerðir hófust. Marktæk breyting varð á meðaltali
einstakra meðferða milli 2011 og 2015, sem tengdar eru með heilli línu, en ekki var marktækur munur árið 2015 á þeim meðferðum sem
merktar eru með sama bókstaf (P>0,05). Athugið að kvarði á myndum E og F er annar en á myndum A–D. – Average vegetation cover
(A), bare ground (B), litter (C), grasses (D), herbs others than lupine (E), and mosses (F) in experimental plots in Stykkishólmur in West
Iceland one and five years after initiation of annual lupine removal treatments. Significant change between 2011 and 2015 is indicated
with a solid line, and treatments not significantly different in 2015 are given the same letter (P>0.05).
en 0,2 plöntur á fermetra, bæði í
eitruðum og slegnum reitum, og
var enn lágur fjórum árum síðar
þótt hann ykist aðeins í eitruðum
reitum. Í ómeðhöndluðum
reitum var þéttleiki blómstrandi
lúpínuplantna hins vegar tæplega 7
plöntur á fermetra 2011 en lækkaði
um þriðjung til 2015. Þéttleiki
ungplantna var að meðaltali um 5
plöntur á fermetra árið 2011 og um
4 plöntur á fermetra árið 2015 (ekki
sýnt) en ekki urðu marktæk áhrif
af meðferðum né tíma á þéttleika
ungplantna (2. tafla). Kímplöntum
fækkaði í öllum meðferðum milli
2011 og 2015, þó breytingin væri
aðeins marktæk í slegnu reitunum
(3. mynd C). Ekki var marktækur
munur á fjölda kímplantna
eftir meðferðum 2015, en mikill
breytileiki var í gögnunum.
5. mynd. Meðalfjöldi tegunda í tilraunareitum (100 m2) í Stykkishólmi einu og fimm árum
eftir að aðgerðir hófust. Marktæk breyting varð á meðaltali einstakra meðferða milli 2011 og
2015, sem tengdar eru með heilli línu, en ekki var marktækur munur árið 2015 á þeim
meðferðum sem merktar eru með sama bókstaf (P>0,05). – Mean species richness in
experimental plots (100 m2) in Stykkishólmur, West Iceland one and five years after
initiation of annual lupine removal treatments. Significant change between 2011 and 2015
is indicated with a solid line, and treatments not significantly different in 2015 are given
the same letter (P>0.05).