Náttúrufræðingurinn - 2016, Page 13
13
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
reita: 1) Í reitum þar sem eitrað var
gætu aðrar tegundir en lúpína hafa
orðið fyrir neikvæðum áhrifum af
eitrinu, sérstaklega eftir fyrsta árið
þegar lúpínan óx ekki lengur í
breiðu. Þótt leitast hafi verið við
að eitur bærist ekki á aðrar plöntur
gæti það hafa gerst við úðunina
eða eitur skolast af lúpínunni í
næstu rigningu og borist þannig
á aðrar plöntur, sjá t.d. Wiseman
o.fl.31 2) Við slátt tættist lúpínan og
myndaði lífrænt lag sem dreifðist
nokkuð jafnt um reitina. Vegna
þessa er líklegt að frostlyfting, sem
getur takmarkað landnám plantna
á lítt grónu landi,32,33 hafi verið
minni í slegnum reitum en þeim
sem voru eitraðir. 3) Með því að
lúpínan tættist niður við sláttinn
hafa næringarefni sem bundin voru
í plöntunum sennilega skilað sér
fyrr í jarðveginn en í reitum sem
voru eitraðir. Aðrar plöntur gætu
því hafa átt greiðari aðgang að
þeim næringarefnum sem voru í
lúpínunni.30,34 Við teljum líklegt að
allar þrjár skýringar geti átt hér við.
Af niðurstöðum eyðingar-
tilraunarinnar í Stykkishólmi
ályktum við að sláttur sé æskilegri
leið en eitrun við að eyða lúpínu
eða hamla útbreiðslu hennar. Fyrir
því eru nokkrar ástæður. Þótt ekki
hafi verið mikill munur á áhrifum
aðgerðanna tveggja á lúpínuna
sjálfa var annar gróður öflugri í
slegnum reitum en eitruðum. Þessi
niðurstaða ætti að vega þungt við
val á aðferð þar sem tilgangur með
því að eyða lúpínu er væntanlega
að flýta fyrir landnámi annars
gróðurs. Einnig ber að hafa í
huga að takmörkuð gróðurþekja
í eitruðum reitum eykur hættu á
jarðvegsrofi og frostlyftingu, sem
getur enn hægt á framvindu. Loks
var ekki munur á þeim tíma sem
fór í að slá og eitra fyrir lúpínunni
fyrsta árið þegar lúpínan var sem
þéttust. Hins vegar getur eitrið haft
heilsuspillandi áhrif á þá starfsmenn
sem sjá um dreifingu þess35,36 og
skekkt samkeppnisstöðu einstakra
plöntutegunda.37 Almennt er
einnig óæskilegt að dreifa eitri í
vistkerfum.38 Fátt mælir því með
notkun eiturs við aðstæður eins
og hér.
Vegna mikils og langlífs fræforða
lúpínu í jarðvegi39 koma fljótt upp
kímplöntur þar sem henni hefur
verið eytt af yfirborði en einnig
getur fræ borist úr umhverfinu ef
lúpína vex á nálægum svæðum. Í
rannsókn Ástu Eyþórsdóttur o.fl.27
var fræforði lúpínu í jarðvegi þar
sem henni var eytt með eitri aðeins
20% fræforðans í ómeðhöndluðum
lúpínureitum en engu að síður var
svo mikið af fræi enn til staðar
í eitruðum reitum að það gat
viðhaldið lúpínu ef ekki var gripið
til frekari aðgerða. Í tilraun á Korpu
í Reykjavík voru flestar kímplöntur
í reitum þar sem lúpína hafði verið
slegin um mitt sumar árið áður vegna
þess að sláttur á þeim tíma hafði
neikvæðustu áhrifin á fullorðnar
lúpínuplöntur.26 Aðeins var slegið
einu sinni í þeim tilraunareitum
og plöntur mældar síðast einu eða
tveimur árum seinna. Fimm árum
síðar var lúpínubreiðan aftur orðin
samfelld að sjá.26 Þetta er í samræmi
við reynsluna í Stykkishólmi. Þar
7. mynd. Gróðurmælingar í slegnum reit sumarið 2015. Innan reitsins eru grös ríkjandi en umhverfis hann vex þétt lúpína. – Vegetation
measurements in 2015 within a plot that had been annually cut. Grasses dominate the plot whereas lupine dominates the untreated
surroundings. Ljósm./Photo: Menja von Schmalensee.