Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2016, Side 32

Náttúrufræðingurinn - 2016, Side 32
Náttúrufræðingurinn 32 Ólafsson, Flatey og Stykkishólmi. – Í bók Guðmundar Þjórsárver7 er ljósmynd af vatnamúsum (bls. 100). Ekki er nánar kveðið á um fundarstað innan veranna, fundartíma né fjölda eintaka. Á myndinni sjást a.m.k. 58 mosavöndlar en hafa sennilega verið fleiri. 9. Eyrarselsvatn, Fljótsdalsheiði, N.-Múl. (64.990468°N; 15.211977°V), 30. júní 2007. Eintök í hundraðatali en aðeins nokkrum þeirra var safnað. Skarp- héðinn G. Þórisson, Náttúrustofu Austurlands. – Mosavöndlarnir höfðu kastast mislangt upp á land (3.–4. mynd). Finnandi hefur ferðast víða um hálendi Austurlands um áratugaskeið og komið að hundruðum vatna og tjarna. Hvergi hefur hann orðið var vatnamúsa nema við þetta eina vatn. 10. Nafnlaus tjörn, Öxi, S.-Múl. (64.843127°N; 14.674030°V), 24.–27. júní 2008. Nokkur eintök og var einu safnað. Benóný Jónsson og Karólína 3. mynd. Vatnamýs á víð og dreif í sandfjöru við Eyrarselsvatn á Fljótsdalsheiði. – False lake balls distributed on the sandy beach at Lake Eyrarselsvatn on Fljótsdalsheiði. Ljósm./Photo: Skarphéðinn G. Þórisson, 30.6. 2007. 4. mynd. Vatnamýs í fjörunni við Eyrarselsvatn á Fljótsdalsheiði. Linsulok (77 mm) sýnir stærð þeirra. – False lake balls found beached at Lake Eyrarselsvatn on Fljótsdalsheiði. A 77 mm camera lid is shown for comparison. Ljósm./Photo: Skarphéðinn G. Þórisson, 30.6. 2007.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.