Náttúrufræðingurinn - 2016, Blaðsíða 49
49
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Þegar niðurstöðurnar eru
skoðaðar fyrir mismunandi tegundir
og árstíðir kemur í ljós eftir tektar-
verður munur milli talningar-
svæðanna og endurspeglar hann
væntanlega gæði mismunandi
búsvæða sem Fossvogur hefur upp
á að bjóða. Þannig virðast fuglar
nýta svæði 1 (4. mynd) og svæði 2
lítið og tilviljunarkennt, en svæðin
eru uppfyllt og svipuð að gerð.
Að jafnaði sáust þar æðarfugl og
tjaldur en einnig komu þar fyrir
andartegundir auk tildru og stelks.
Á svæði 3 er að finna blandaða
fjörugerð. Nokkru fleiri tegundir
sáust þar en á svæðum 1–2 og
þar var einnig að finna heldur
fleiri fugla (5. mynd). Mest var
af æðarfugli en stokkendur sáust
einnig alloft og einnig vaðfuglar,
stelkur, tildra, tjaldur o.fl. Jafnframt
sótti stari nokkuð í fjöruna á þessu
svæði. Þá sáust haustgestir, meðal
annars heiðlóa, á leirublettum
svæðisins og vetrarfuglar á borð
við rauðhöfðaönd. Svæði 4 sker sig
verulega úr framantöldum svæðum,
bæði hvað varðar fjölda fugla
og tegundasamsetningu. Þar eru
vaðfuglar uppistaðan í fjöldanum
og það sem hér vekur sérstaka
athygli er fjöldi heiðlóa sem sækir í
leiruna á haustin og rauðbrystingur
sem þarna sést fyrst og fremst á
vorin (6. mynd). Stelkur, tjaldur og
tildra halda einnig til á þessu svæði.
Þá halda rauðhöfðaendur sig einnig
við leiruna á haustin og veturna. Á
svæði 5 má segja að tvær tegundir
séu ráðandi, þ.e. tjaldur og æðarfugl,
en einnig sást nokkuð af heiðlóu
(7. mynd). Segja má að tjaldurinn
sé einkennisfugl þessa svæðis. Á
svæði 6 var æðarfugl áberandi og
sker það sig talsvert úr með nokkuð
reglulega vetrartoppa í fjölda anda,
sérstaklega hávellu (8. mynd).
Umræður
Samanburður við nálæg svæði
Þótt vissulega sé töluvert um fugla
í Fossvogi, og þá sérstaklega á
Fossvogsleiru, fellur fjöldi þeirra
nokkuð í skugga annarra svæða
í nágrenninu. Þetta stafar m.a. af
mismunandi dýpi og fjörugerð
á svæðunum, sem og af stærð
leirnanna. Hinn 5. október 2009
voru gerðar samanburðartalningar
í Fossvogi og Kópavogi og kom
í ljós að þá voru töluvert fleiri
fuglar í Kópavogi en í Fossvogi.11
Svipað er uppi á teningnum þegar
Fossvogur er borinn saman við
Arnarnesvog,12 en í þessum vogum
tveimur er strandlína álíka löng þótt
Arnarnesvogurinn sé nokkru meiri
að flatarmáli. Að jafnaði voru fleiri
fuglar í Arnarnesvogi en í Fossvogi
þó að breytileikinn væri mikill, eða
að meðaltali um 350 í Arnarnesvogi
á móti um 250–270 í Fossvogi. Í
þessu ljósi er vert að benda á að
bæði Arnarnesvogur og Kópavogur
eru grunnir og hafa að mestu
óröskuð strand- og fjörusvæði. Að
auki er leiran verulega stærri í
Kópavogi en í Fossvogi.
Eftirtektarvert er að fjöldi heiðlóa
var svipaður í Fossvogi og Kópavogi
5. október 2009 eða tæplega 180
fuglar á hvorum stað. Þess ber
þó að geta að þetta er óvenjuhá
tala fyrir Fossvog. Algengt var í
þessari rannsókn að fjöldi heiðlóa
í Fossvogi á þessum árstíma væri á
bilinu 100–140 fuglar. Í talningum á
sambærilegum árstíma í Kópavogi
árið 2013 var fjöldi heiðlóa 177–250
fuglar.11 Þetta er athyglisvert í ljósi
þess að Kópavogsleira er langtum
stærri en Fossvogsleira, eða um 21
ha.5 Í Arnarnesvogi hafa tölur fyrir
heiðlóu að hausti verið á svipuðu
róli eða ívið hærri en í Fossvogi.12
Þetta bendir til að Fossvogsleira
hafi verulegt gildi fyrir heiðlóur
á Skerjafjarðarsvæðinu. Hvað
aðrar fuglategundir varðar virðist
samkvæmt sömu heimildum að
hávella sæki mun meira í Fossvog en
Kópavog. Hinsvegar sækir verulega
meira af rauðhöfða, stelk og
stokkönd í Kópavog. Rauðbrystingar
sáust á hverju vori á Fossvogsleiru,
þó ekki í jafnstórum hópum og á
nágrannaleirum í Kópavogi eða
Arnarnesvogi.11,12 Það virðist því
ljóst að fuglategundir Skerjafjarðar
dreifast um svæðið og nýta þau fjöl-
breyttu búsvæði sem þar eru í boði.
8. mynd. Meðalfjöldi ásamt staðalskekkju
(SE) algengustu fuglategunda á talningar-
svæði 6 eftir árstíðum. Sjá skilgreiningu
árstíða í aðferðalýsingu. – Seasonal average
number of most common bird species in
area 6 and standard error. See Table 1 for
definition of seasons.