Náttúrufræðingurinn - 2016, Side 55
55
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
ing these 10 years, while the wind turns
90˚, or more, 47 times (0.1% of cases). If
the wind speed is 8,0 m/s or more, the
respective numbers are 0 and 11. In 7 out
of the 11 cases of winds turning more
than 90˚, the turning of the wind was as-
sociated with well predicted changes in
the synoptic scale pressure field, while
in the remaining 4 cases, Hveravellir is
in the wake of nearby glaciers
(Hofsjökull and Langjökull). In short,
large changes in wind direction are very
rare if sustained winds are 8,0 m/s or
more, and if such a change happens, it
has most likely been predicted by the
numerical weather prediction systems.
Niðurlag
Hér hafa verið skoðaðar tíu ára
samfelldar vindmælingar frá
Hveravöllum. Þær benda eindregið
til þess að vindátt á hálendi Íslands
sé harla stöðug þegar vindur er yfir
6,0 m/s. Það er afar ólíklegt að
miklar vindáttarbreytingar í kalda
eða strekkingi komi að óvörum
og því verður ekki annað séð en
að litlar líkur séu á að fólk sem
nálgast eldstöðvar af skynsemi
þegar vindar eru hagstæðir lendi
óvænt í mengunarskýi. Rétt er í
þessu sambandi að taka fram að
oft er flökt á vindátt í hægum vindi
og þá er líka hætt við að mengun
safnist fyrir í lægðum.
Abstract
Changes in wind direction
Recent volcanic eruptions have drawn
attention to the persistence of wind di-
rections. In this paper, 10 years of hourly
wind observations from Hveravellir,
Iceland, are explored for such persis-
tence. In sustained winds greater than
6,0 m/s, the wind turns to the opposite
direction within an hour only twice dur-
Heimildir
1. Haraldur Ólafsson 1998. Vindstrengir og skjól við fjöll.
Ungmennafélagsveðrið 14. júlí 1990. Náttúrufræðingurinn 68 (1), 37–46.
2. Haraldur Ólafsson 2004. Sandfoksveðrið 5. október 2004.
Náttúrufræðingurinn 72 (3‒ 4), 93–96.
3. Gísli Einarsson (ritstjóri) 2011, 4. nóvember. Í „Landanum“, sjónvarps-
þætti í Ríkisútvarpinu. Viðmælendur: Haraldur Ólafsson og Þórbergur
Hjalti Jónsson. Reykjavík, Ríkisútvarpið. http://www.ruv.is/thaettir/
landinn/(Smámynd yfir Kjalarnesi).
4. Hálfdán Ágústsson, Cuxart, J., Mira, A. & Haraldur Ólafsson 2007.
Observations and simulation of katabatic flows during a heatwave in
Iceland. Meteorologische Zeitschrift 16 (1), 99–110.
5. Trausti Jónsson 2002. Sveiflur I. Frumstæð athugun á dægursveiflu
vindhraða og vindáttar í júnímánuði. Greinargerð Veðurstofu Íslands nr.
02030. VÍ-ÚR18. 12 bls.
6. Flosi Hrafn Sigurðsson, Þóranna Pálsdóttir &Torfi Karl Antonsson 2003.
Veðurstöð og veðurfar á Hveravöllum á Kili. Rit Veðurstofu Íslands nr.
20, VÍ-TA. 122 bls.
Um höfundinn
Haraldur Ólafsson (f. 1965) er prófessor í veðurfræði við
Háskóla Íslands með aðsetur á Veðurstofu Íslands.
Hann lauk cand. mag.-prófi við Háskólann í Ósló 1986,
cand. scient.-prófi við sama skóla 1991 og doktorsprófi
við Paul Sabatier-háskólann og Centre National de
Recherces Météorologiques í Toulouse 1996. Hann hefur
starfað á Veðurstofu Íslands og við Háskóla Íslands, og
stýrði um hríð veðurdeild Háskólans í Björgvin í Noregi.
Haraldur stóð fyrir stofnun Rannsóknastofu í veður-
fræði, Veðurfélagsins og Reiknistofu í veðurfræði.
Póst- og netföng höfundar
Haraldur Ólafsson
Veðurstofa Íslands
150 Reykjavík
haraldur@vedur.is
4. mynd. Horft til suðurs að eldstöðvunum í Holuhrauni skömmu eftir hádegi 25. september
2014. – A view to the south towards the Holuhraun eruption shortly after noon on 25
September 2014. Ljósm./Photo: Haraldur Ólafsson.