Náttúrufræðingurinn - 2016, Page 56
Náttúrufræðingurinn
56
Rannsóknastöðin
Rif á Raufarhöfn
Jónína Sigríður Þorláksdóttir
Rannsóknastöðin Rif ses. á
Raufarhöfn var formlega stofnuð
árið 2014 og á rætur að rekja til verk-
efnis hjá Byggðastofnun sem snýr að
„brothættum byggð um“. Stöðin er til
húsa á Aðalbraut 16 og er aðstaðan
samrekin með gistiheimilinu
Hreiðrinu. Að stöðinni standa sex
íslenskar rannsóknastofnanir auk
sveitarfélagsins Norðurþings og er
stjórn Rifs skipuð fulltrúum þessara
aðila. Rannsóknastofnanirnar eru
Náttúrustofa Norðausturlands,
Náttúrufræðistofnun Íslands,
Há skóli Íslands, Land búnaðar-
háskóli Íslands, Háskólinn á
Akureyri og Stofnun Vilhjálms
Stefánssonar.
INTERACT
Rannsóknastöðin Rif er aðili að
INTERACT (e. International
Network for Terrestrial Research and
Monitoring in the Arctic) sem er
öflugt, fjölfaglegt samstarfsnet
rannsóknastöðva á norðurslóðum.
Í gegnum samstarfsnetið nýta
þúsundir vísindamanna hvaðanæva
úr heiminum aðstöðu stöðvanna til
rannsókna á margvíslegum sviðum:
Jöklar, sífreri, loftslag, vistfræði,
líffræðilegur fjölbreytileiki og
hringrás næringarefna. Samvinna
á sviði rannsókna og vöktunar
er kjarnaverkefni INTERACT-
netsins og vinna stöðvarnar með
margvíslegum rannsóknahópum og
öðrum alþjóðlegum samstarfsnetum
á því sviði. Stöðvarnar koma einnig
oft að fræðslumálum, meðal annars
með því að halda sumarnámskeið í
einstökum greinum.
Hvers vegna
rannsóknastöð á
Melrakkasléttu?
Melrakkasléttan er það landsvæði
Íslands sem helst ber einkenni
norðurheimskautssvæða (norður-
slóða) og er norðurhluti hennar
skilgreindur sem lágarktískur.
Rannsóknastöðinni er ætlað að
Séð yfir að Rauðanúp, ísaldareldstöð með stórri gígskál. Mikið fuglalíf er við Rauðanúp og
er þar meðal annars að finna nyrstu súlubyggð á Íslandi. Ljósm.: Yann Kolbeinsson.
Starfsfólk Náttúrustofu Norðausturlands hefur stundað fuglarannsóknir á Melrakkasléttu
frá því árið 2004. Hér heilsar Yann Kolbeinsson upp á æðarkollu (Somateria mollissima)
sem liggur á hreiðri. Ljósm.: Þorkell Lindberg Þórarinsson.
Náttúrufræðingurinn 86 (1–2), bls. 56–58, 2016