Náttúrufræðingurinn - 2016, Page 58
Náttúrufræðingurinn
58
föstum punktum í þeim tilgangi
að leggja mat á fjölda og þéttleika
fugla frá ári til árs. Talningar fara
fram að vori en einnig er fylgst með
komu- og brottfarartíma farfugla og
umferðarfugla.
Upplýsingar um gróðurfar og
útbreiðslu háplantna á svæðinu
byggjast að miklu leyti á rannsóknum
Steindórs Steindórssonar frá árinu
1934. Útbreiðsla háplantna hefur
verið skráð á rúmlega 50 stöðum
á norðanverðri Melrakkasléttu
og eru skráðar meira en þrjú
þúsund færslur í gagnagrunn
svæðisins hjá Náttúrufræðistofnun
Íslands. Vegna kortlagningar
Náttúrufræðistofnunar á vist-
gerðum á Íslandi voru rúmlega 20
rannsóknarsnið lögð út og mæld
á Melrakkasléttu sumarið 2013. Á
sniðunum var skráð þekja háplantna
og auk þess safnað sýnum af fléttum
og mosum. Sumarið 2016 stefna
starfsmenn Náttúrufræðistofnunar
að því að setja upp föst gróðursnið
á landi Rifs. Þar með opnast
möguleikar á ýmsum rannsóknum,
svo sem á plöntusamfélögum og
breytingum innan þeirra, og ekki
síður á tengslum gróðurfars við
loftslagsbreytingar og breytta
landnýtingu. Melrakkasléttan er
einnig áhugavert landsvæði fyrir
jarðfræðinga og hafa töluverðar
rannsóknir verið stundaðar á
svæðinu á því sviði.
Ráðgert er að setja upp veðurstöð
á landi Rifs árið 2016 í samstarfi við
Landbúnaðarháskóla Íslands, sem
mun gera vísindamönnum kleift
að afla gagna um veðurfar, hitastig,
úrkomu o.fl. rannsóknum sínum til
stuðnings.
Þótt áherslur stöðvarinnar
liggi fyrst og fremst á sviði
náttúrufarsrannsókna má einnig
nefna að Melrakkasléttan og
Raufarhöfn eru afar áhugaverður
vettvangur til rannsókna á samspili
manns og náttúru og á byggðaþróun
almennt. Rannsóknir á þessu sviði
eru þegar í deiglunni. Í vor dvaldist
doktorsnemi í mannvistarlandfræði
í stöðinni í fimm vikur og kannað
áhrif kvótakerfisins og breytinga í
sjávarútvegi á byggðaþróun.
Líklegt er að norræn náttúra
Melrakkasléttu, harðbýlt umhverfi,
einangrun og yfirgefin eyðibýli
í margskonar mynd verði mikið
aðdráttarafl fyrir ferðamenn í náinni
framtíð. Því er mikilvægt að standa
vel að verki við uppbyggingu
ferðaþjónustu á svæðinu svo
viðkvæm náttúran beri ekki skaða
af aukinni umferð ferðamanna. Hér
eru því tækifæri fyrir rannsakendur
á sviði ferða- og umhverfismála til að
skipuleggja innviði og landnotkun
af hálfu ferðaþjónustunnar nánast
frá upphafi slíkrar starfsemi.
Aðstaða
Sjávarþorpið Raufarhöfn, aðsetur
rannsóknastöðvarinnar, stendur á
austurströnd Melrakkasléttu og er
nyrsti byggðakjarni landsins. Góð
náttúruleg höfn er meginforsenda
byggðar á Raufarhöfn og ýmsir
aðrir innviðir staðarins eru sterkir,
þótt dregið hafi úr þjónustu
samhliða fólksfækkun. Nú eru íbúar
Raufarhafnar tæplega 200 talsins.
Íbúum hefur farið ört fækkandi
undanfarna áratugi, sérstaklega
þegar litið er til síðustu 10–15 ára.
Rannsóknastöðin Rif býður fram
húsnæði í þorpinu fyrir vísindamenn
sem hug hafa á að nýta sér þá
einstæðu möguleika sem í boði eru
á Rifsjörðinni og Melrakkasléttunni
allri. Aðstaðan er samrekin með
gistiheimilinu Hreiðrinu. Um er
að ræða gisti- og eldunaraðstöðu,
einfalt vinnurými til grunnvinnslu
á sýnum og skrifstofuaðstöðu
með góðu netsambandi. Þá eru
uppi hugmyndir um frekari
uppbyggingu rannsóknaaðstöðu í
samstarfi við grunnskóla staðarins,
sem myndi þá meðal annars nýtast
nemendahópum, en mikill áhugi
virðist vera fyrir því að halda hér
sumarnámskeið fyrir háskólanema.
Stefnt er að því að vísindamenn
dveljist að staðaldri í stöðinni við
fjölbreyttar rannsóknir og að jörðin
Rif verði mikilvægur vettvangur
rannsókna og vöktunar á náttúrufari
norðurslóða.
Sanderlur (Calidris alba) við fæðuleit á norðurströnd Melrakkasléttu. Ljósm.: Yann
Kolbeinsson.
Um höfundinn
Jónína Sigríður Þorláksdóttir (f. 1988) hefur
starfað fyrir Rannsóknastöðina Rif síðan í
júlí 2015 og gegnir stöðu verkefnastjóra.
Jónína er líffræðingur (BS) frá Háskóla
Íslands síðan 2012 og útskrifaðist með MS-
próf í umhverfis- og auðlindafræði frá sama
skóla haustið 2015. Jónína er uppalin í
Þistilfirði, skammt frá Melrakkasléttu, og er
því bæði mannlífi og náttúru staðarins vel
kunnug.
Póst- og netfang
Jónína Sigríður Þorláksdóttir
Rannsóknastöðinni Rifi
Aðalbraut 16
675 Raufarhöfn
Netfang: rif@nna.is