Náttúrufræðingurinn - 2016, Side 66
Náttúrufræðingurinn
66
eldfjall í bakgarðinum. Jarðvegseyðing
og byggðaþróun í nærsveitum Heklu.
25. janúar 2016. Aagot Vigdís
Óskarsdóttir, lögfræðingur. Nýju
náttúruverndarlögin.
Náttúrufræðingurinn
Frá síðasta aðalfundi hafa komið
út tvö tvöföld hefti af Náttúru-
fræðingnum, þ.e. 1.–2. og 3.–4.
tölublað 84. árgangs. Álfheiður
Ingadóttir, líffræðingur, er ritstjóri
og endurnýjaði ritstjórasamning
sinn í árslok 2015:
Í ritstjórn sitja nú:
Droplaug Ólafsdóttir, líffræðingur,
formaður,
Esther Ruth Guðmundsdóttir,
jarðfræðingur,
Hafdís Hanna Ægisdóttir,
plöntuvistfræðingur, fulltrúi
stjórnar HÍN,
Hlynur Óskarsson, vistfræðingur,
Rannveig Magnúsdóttir, líf-
fræðingur,
Tómas Grétar Gunnarsson, dýra-
vistfræðingur og
Þóroddur F. Þóroddsson, jarð-
fræðingur.
Farið var í auglýsingaherferð
um áramótin og var tímaritið
auglýst nokkrum sinnum á góðum
auglýsingatíma í sjónvarpi. Þetta er
nýbreytni sem þótti gefa góða raun
og ákveðið var að auglýsa ritið með
líkum hætti næst þegar það kemur
út.
Endurnýjaður var samstarfs-
samningur milli HÍN og Lands-
bókasafns-Háskólabókasafns um
netbirtingu greina á vefsetrinu www.
timarit.is. Um árabil hafa greinar
úr tímaritinu verið aðgengilegar
á þessu vefsvæði með fimm
ára birtingartöf. Formið hefur á
hinn bóginn verið gamaldags og
myndgæði slök. Nú hyggst safnið
uppfæra efnið og betrumbæta
þessi útlitsatriði. Í nýrri útgáfu af
vefsetrinu er sá möguleiki í boði að
sækja stakar greinar í heild sinni
og prenta út sem eitt pdf-skjal.
Upphaflegir samningar gerðu ekki
ráð fyrir þessum möguleika við
miðlun efnis. Í leiðinni var taftími
birtinga styttur úr fimm árum í
þrjú. Safnið hefur heimild til að
birta öll eintök Náttúrufræðingsins
innan veggja Þjóðarbókhlöðu,
þ.e. í tölvum með IP-tölum sem
tilheyra safninu. Gengið var frá
endurnýjuðum samningi í janúar
2016.
Nefndir
Samstarfshópur frjálsra félagasamtaka
á sviði umhverfismála á vegum
umhverfis- og auðlindaráðuneytis:
Hópurinn á fulltrúa í nokkrum
nefndum á vegum umhverfis-
og auðlindaráðuneytis, svo sem
í Ráðgjafarnefnd hagsmunaðila um
stjórn vatnamála og í stjórn og
svæðisráðum Vatnajökulsþjóðgarðs.
Árni Hjartarson er fulltrúi HÍN í
samstarfshópnum en Hólmfríður
Sigurðardóttir hjá Fuglavernd er
talsmaður og tengiliður hópsins við
ráðuneytið. Hópurinn hefur verið
beðinn um tilnefningar í nefndir og
ráð og fleira smálegt. Starfið fer að
mestu fram með tölvusamskiptum
en einu sinni hefur verið kallað
til fundar í ráðuneytinu til skrafs
og ráðagerða í tíð núverandi
ríkisstjórnar.
Styrkveitingar
Loforð fékkst um styrk frá
Hinu íslenska fræðafélagi í
Kaupmannahöfn, 2.000.000 kr.,
(og viðbót ef í harðbakkann slær)
til að gefa út sérstakt þemahefti
Náttúrufræðingsins með heitinu
„Náttúra Þingvallavatns og Mývatns
– Einstök vistkerfi undir álagi“.
Styrkurinn verður reiddur fram
þegar þemaheftið kemur út.
Rekstrarstyrkur barst frá
umhverfis- og auðlindaráðuneyti,
1.000.000 kr.
Verkefnastyrkur kom frá sama
ráðuneyti til að uppfæra vefsetur
félagsins, 460.000 kr.
HÍN þakkar kærlega traust og
vinsemd sem í þessum styrkjum
felst.
Flóruspjaldið
Margir kannast við Flóru Íslands,
vatnslitamyndina sem Eggert
Pétursson listmálari málaði að beiðni
Hins íslenska náttúrufræðifélags
og gefin var út á veggspjaldi
árið 1985. Nú að þrjátíu árum
liðnum hefur Náttúruminjasafn
Íslands haft forgöngu um að
gefa veggspjaldið út í fjórða sinn.
Frummyndin er í eigu HÍN en í
vörslu safnsins. Frumgerð Eggerts
er nú sýnd opinberlega í fyrsta
sinn á sýningunni Sjónarhorn í
Safnahúsinu við Hverfisgötu og
Línuritið sýnir fjölda félagsmanna HÍN frá árinu 2000. Fjöldinn hefur verið að sveiflast
kring um töluna 1200. Athyglisvert er að þegar gróðahyggjan og útrásin var í hámarki
2007 fækkaði félagsmönnum en eftir hrunið kom kippur í upp á við. Nú þegar hagvöxtur
eykst á ný lækkar félagsmannatalan.